Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2012, Side 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2012, Side 39
Á haustin brjótast tísku- gyðjurnar fram enda er fátt eins dásamlegt og að klæða sig upp á í hlýjar og lekkerar vetrarflíkur, setja dökkan blýant í kringum augun og lakka neglurnar með dökk- um lit. Ef við ættum að velja vinsælasta snið haustsins myndi „peplum“-sniðið komast fyrsta sæti verðlaunapalls- ins. Kjólar og toppar með „pepl- um“-sniði eru þröngir niður í mitti en þá víkka þeir út og mynda örlitla vídd yfir magann. Þær sem eru perulaga (grannar að ofan og breiðari að neðan) verða eins og grískar gyðjur í þessu sniði og einnig þær sem eru eins og stundaglös í laginu. „Peplum“-snið dregur at- hyglina að mittinu og fær- ir augað frá öðrum líkams- pörtum sem getur stundum verið heppilegt. Það sem er samt skemmtileg- ast við þetta snið er hvað það er fjandi kvenlegt. Það verða næstum því allar konur dásamlegar í þessu sniði. Á dögunum las ég grein um að karlar væru sjúkir í mittis- grannar konur. Ég gat því miður ekki gert rannsókn á því fyrir þessi pistlaskrif en ég hvet þær sem eru á lausu að prófa „peplum“-snið fyrir næstu „kóræfingu“ og athuga hvort sniðið virkar. „Pepl- um“-sniðið ýkir mittislínuna svo um munar og keyrir upp kynþokkann. „Peplum“ er líka um það bil fullkomið fyrir þær sem eru stöðugt að reyna að fela magann og kunna illa við sig níðþröngum fötum. Ef þú ert komin í topp með þessu sniði er hægt að fara í þröngar gallabuxur við, pils með pensil-sniði eða jafnvel víðar munstraðar buxur. Nútískan kallar á að við blöndum saman ólíkum efnum og munstrum. Í einhverjum sveitum hefði þetta verið kallað að klæða sig eins og jólatré. Þær sem eru fastar í því hugtaki ættu að gleyma því og einbeita sér að því að endurnýja sig. Ég vil alls ekki meina að við þurfum sífellt að hlaupa á eftir nýjustu tískustraumunum en við þurfum að þróast í klæðaburði líkt og við reynum að þróast sem manneskjur. Allar höfum við átt okkar há- punkta á ferlinum en það er vandræðalegt að festast í tískustraumum okkar besta tímabils. Þið vitið um hvað ég er að tala. martamaria@mbl.is ÞÚLEGGUR HANAEKKIFRÁ ÞÉRÁNÞESSAÐ KLÁRA... KOMIN ÚT Á ÍSLENSKU NÝ RÓMANTÍSK ÁSTARSAGA – KILJA Í STÓRU BROTI Í bandaríska smábænum South Downs búa þrjár æskuvinkonur með fjölskyldum sínum þegar heimsstyrjöldin síðari geisar í Evrópu og óvíst er um framvindu stríðsins og hugsanlega hernaðaríhlutun. Þetta er rómantísk ástarsaga sem lýsir vel litbrigðum lífsins þegar ungar konur þurfa að standa á eigin fótum, með brennandi ástarþrá og örvæntingu í hjarta. Fylgst er með lífi þeirra sem urðu eftir heima; kvenna er gengu í störf karla og þurftu jafnframt að halda heimilinu gangandi. Barna sem komu jafnvel undir í örvæntingarfullum skyndi- hjónaböndum, áður en feðurnir sneru aftur úr leyfi eða af frívakt. Foreldra sem sáu á eftir sonum sínum í stríðið. Hvað hélt fólki gangandi? Og heimkoman: Hverjir sneru aftur og voru þeir sömu menn og áður? Var hægt að halda áfram rétt eins og ekkert hefði gerst? Kannski læknar tíminn öll sár? Sagan gerist á árunum 1941–1964. Lesbók ehf. bókaútgáfa, sími 534-1100, info@lesbok.is 21.10. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39 Kjóll með „peplum“- sniði úr H&M. Marilyn Monroe- varalitur frá MAC 4.190 kr. Mittislínan keyrir upp kynþokkann Alklæðnaður úr sænska móðurskip- inu H&M. Sparikjóll úr Zöru. 16.995 kr. Prjónapeysa með „peplum“- sniði.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.