Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2012, Qupperneq 42
Jeroo Billimoria frá Indlandi er svokall-aður raðfrumkvöðull í að stofna fyr-irtæki í samfélagsþágu og segir að Vest-
urlönd geti lært margt af
þróunarlöndum hvað varðar meðferð pen-
inga – horfa þurfi til barna sérstaklega og
kenna þeim fjármálalæsi.
Börnin skorti fé
Jeroo stofnaði sín fyrstu samtök 16 ára og
hefur nú stofnað samtals sex samtök en
hún hefur einnig starfað sem kennari. Hún
er margverðlaunuð fyrir framlag sitt í
þágu samfélagsins og hefur gefið út bækur
um fjármálalæsi fyrir börn. En hvernig
kom það til að hún fór að beina augum að
fjármálalæsi fyrir börn?
„Það var enginn einn upphafsreitur,“
svarar hún. „Fyrir mörgum árum vann ég
með hjálparsamtökum fyrir börn á Ind-
landi. Við vorum með símanúmer sem þau
gátu hringt í til að fá aðstoð og nýttu
mörg börn sér þessa þjónustu. Við kom-
umst hins vegar aldrei að rót vandans og
það skorti alltaf fjármagn þannig að við
fórum að kenna börnunum sjálfum að afla
sér peninga. Fljótlega kom í ljós að það
var ekki nóg.
Einnig þurfti að kenna börnunum með-
ferð fjármuna, að fóta sig í samfélaginu og
sýna samfélagslega ábyrgð. Það má því
segja að þetta tengist allt og því hefur
þetta þróast smám saman, frekar en að
hægt sé að nefna einhvern einn tíma-
punkt.“
Yfir milljón barna
Jeroo rekur nú samtökin Aflatoun, eða
Aflatún, sem kenna börnum á aldrinum 6-
14 ára samfélagslega ábyrgð og fjármála-
læsi. Samtökin ná til yfir milljón barna í
yfir 80 löndum, einkum í þróunarlöndum,
en þau eru nú að færa sig yfir til Vest-
urlanda. Þar er, þegar öllu er á botninn
hvolft, þörfin fyrir fjármálalæsi engu síðri
en í þróunarlöndum. Þó að það sé ekki
eins augljóst þegar allt gengur vel.
Það má segja að þetta sé öfug þróun-
araðstoð: Vesturlönd læra nú af þróunar-
löndum í þessum málum en ekki öfugt. Á
Vesturlöndum eru sam-
tökin þegar starfrækt í
Bretlandi og Hollandi, en
eru að skjóta rótum í fleiri
löndum, m.a. Íslandi og
Noregi.
„Við setjum þetta ekki á
stofn sjálf, heldur finnum
rétta fólkið,“ segir Jeroo.
„Á Íslandi erum við í sam-
starfi við stofnun um fjár-
málalæsi um að hleypa
þessu af stokkunum. Afla-
tún er þó sjálfstætt verk-
efni og þegar ráðist hefur
verið í þýðingu á námsefn-
inu og það aðlagað íslensk-
um aðstæðum, ásamt því að þjálfa kennara
og leiðbeinendur, þá er það fyllilega sjálf-
bært.“
Var áður hent út
Fjármálakreppan beindi augum Jeroo að
því að þörf væri fyrir fjármálalæsi á Vest-
urlöndum en hvernig hefur kreppan hitt þá
fyrir sem vinna við að lesa fjár-
mál? „Bæði vel og illa,“ segir
hún. „Áður en þessir erfiðleikar
urðu í fjármálaheiminum var
mér eiginlega hent út ef ég fór
á fund fyrirtækja til að leita
eftir fjármagni til að kenna
börnum fjármálalæsi og sam-
félagslega ábyrgð. Nú er það
hins vegar svo að flestir skilja
þetta og taka mér með kostum
og kynjum, en eiga hins vegar
ekkert fjármagn til að leggja í
verkefnin. Áhrif fjármálakrepp-
unnar eru því bæði jákvæð og
neikvæð hvað það varðar.
Það er þó þannig að sam-
starfslöndum fjölgar mjög hratt og við
stefnum á að vera í 75 löndum eftir ár og
horfum núna sérstaklega til Vesturlanda.
Fyrir mér er Ísland mikilvægur áfangi í
byrjun þess verkefnis að kynna fjármála-
læsi fyrir börnum á Vesturlöndum. Við
þurfum að hefja þessa vegferð,“ segir
Jeroo Billimoria að lokum.
KENNA ÞARF BÖRNUM AÐ FÓTA SIG Í SAMFÉLAGINU
Öfug þróunaraðstoð
JEROO BILLIMORA BYRJAÐI AÐ VEITA BÖRNUM Í FÁTÆKRAHVERFUM Á INDLANDI RÁÐGJÖF. NÚ TEYGJA SAMTÖKIN AFLATÚN SIG UM ALLAN HEIM.
Steinar Þór Sveinsson steinarth@hotmail.com
* Milljón barna í 80 löndum Afla-tún er sérþróað námsefni fyrir börn og
unglinga í fjármálalæsi, samfélagsábyrgð og
frumkvöðlastarfsemi. Þróun Aflatúnsnáms-
efnisins hófst á Indlandi fyrir nær 20 árum
þegar leitast var við að veita börnum, sem
oft bjuggu við erfiðar félagslegar aðstæður,
grunnþekkingu í fjármálum og á sama tíma
upplýsa þau um réttindi sín og skyldur.
Námsefnið náði til rúmlega 1,1 milljónar
barna í tæplega 80 löndum um mitt ár
2012 en stefnan er sett á að ná til 10
milljóna barna í 120 löndum árið 2015.
* Skila til baka til samfélagsins Nemendur skipuleggi og beri sameigin-lega ábyrgð á verkefni með það fyrir augum að „skila til baka til samfélagsins“. Í
þróunarlöndum hafa nemendur víða stofnað lítinn rekstur til að bæta eigin hag og
aðstöðu til náms og á sama tíma stuðlað að efnahagslegri framþróun í samfélagi
sínu. Þannig hafa þau lært að fyrirtæki eru ekki aðeins til bóta fyrir eigendur
þeirra heldur samfélagið allt.
* 10 þúsund verkefni Í þróuðumsamfélögum er takmarkið fremur að nem-
endur skipuleggi og beri ábyrgð á sam-
félagslegu verkefni eða góðgerðarstarfsemi.
Verkefnin geta bæði verið til góða fyrir
fólk sem býr á Íslandi eða annars staðar í
heiminum. Það eina sem skiptir máli er að
verkefnið sé komið frá nemendum sjálfum,
stuðli að bættu samfélagi og betri heimi.
Nú þegar hafa börn skipulagt yfir 10 þús-
und slík verkefni um allan heim fyrir tilstilli
Aflatúnsnámsefnisins.
* Tilraunakennsla í BolungarvíkHaustið 2012 hófst tilraunakennsla Aflatúns-
námsefnisins við Grunnskólann í Bolungarvík.
Farið var í gönguferðir um nágrenni skólans
og samfélagið skoðað með öðrum augum en
vanalega. Farið var í leiki og rætt saman um
hvað nemendur ættu sameiginlegt. Þótt þau
vissu margt hvert um annað kom ýmislegt á
óvart. Eldri hóparnir unnu út frá samfélaginu,
ræddu hvaða stöðu þeir gegndu í því og
hvernig þeir gætu látið til sín taka. Jafnframt
við fólk úr atvinnulífinu sem og bæjarstjórn
um Aflatún og hvernig nemendur og sam-
félagið gætu sameinað krafta sína til að bæta
samfélagið, öllum til góða.
Jeroo Billimoria
Fjármál heimilanna
Aflatún eru samtök sem fræða krakka í 80 löndum um fjármálalæsi og samfélagslega ábyrgð