Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2012, Qupperneq 44

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2012, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.10. 2012 E kki má hafa það á móti ketti að hann sé veiðikló. Frá bæjardyrum villikattar- ins séð er sá eiginleiki vitnisburður um velheppnaða skepnu og fyrirheit um notaleg níu líf. En mýsnar eru ekki líklegar til að lokka leiftur- snöggan kött þeirrar gerðar inn í sitt nágrenni né heldur sólskríkjuhjón á hreiðri. Þær dýrategundir líta köttinn þann sömu augum og stara hrelldar á minkinn sem braut sér leið inn í hænsnabúið. Vogunarsjóðir eru ekki ólögleg glæpafélög. Og þeir fela ekki fyrir neinum hvað fyrir þeim vakir fremur en kötturinn. Þeirra verkefni er áhættusækin gróða- von, skammtímasnúningar, þar sem öllum brögðum er beitt, og stundum leitast við að ýta undir hagfellda atburðarás og lítt um það hirt þótt aðrir eigi ekki um að binda eftir þá snerru. Þetta vita allir sem eitthvað vita og hafa því vara á sér þegar slíkir nálgast. En á Íslandi settu Steingrímur J. og Jóhanna óvænt tvo ríkisbanka í hendur erlendra kröfuhafa og vogunar- sjóða, án athugunar, án undirbúnings og án samráðs við þingið og án nokkurrar upplýsingagjafar til þjóðarinnar. Vogunarsjóðirnir hafa nú orðið mikilla hagsmuna að gæta hér á landi, hafa keypt upp kröfur og bréf fyrir slikk og ætla að græða mikið. Því hafa þeir öfluga útsendara á sínum snærum, stórar lögfræðistofur og kunna hlaupadrengi með góð tengsl við stjórnarherrana. Hefur aðgengi vogunarsjóðanna að æðstu þrepum íslenskrar stjórnsýslu sætt sífellt meiri furðu í landinu og utan þess. Tilvera þeirra hér og ítök eru einn þáttur þess að loforð yfirvalda um að gjaldeyrishöft yrðu aðeins látin gilda í skamma hríð frá bankafalli hafa hvað eftir annað verið svikin. Sú ótrúlega gjörð að færa óljósum eigendum, vogunar- sjóðum og harðsvíruðustu spekúlöntum, forræði tveggja þriðju hluta íslenska bankakerfisins vekur margvíslegar spurningar. Þó hefur því verið ítrekað hafnað að láta hana sæta sérstakri rannsókn, þrátt fyrir ærið tilefni. Hvernig stendur á því að allt er gert sem má til að koma í veg fyrir að upplýsingar um þetta alvarlega mál komi upp á yfirborðið? Illa leikin loforð Tilurð, skipun og starfshættir þeirra sem fengu í hendur vald til að stjórna uppgjöri gömu bankanna og hafa síðan makað svo krókinn, að langt er síðan að sást glitta í hann síðast, hafa heldur aldrei verið skýrð eða rannsökuð. Þó eru til skrásett loforð þeirra sömu, Jóhönnu og Steingríms, um að með því öllu yrði fylgst og á því tekið af festu, ef út af brygði. Nú, þegar að- eins fáeinir mánuðir eru til loka kjörtímabilsins, eru þau tvö enn með látalæti um að „kíkja í pakkann“ þann eins og hinn. Lesanda er auðvitað vorkunn að skilja lítt í því að loforð þessara tvímenninga séu yfirleitt nefnd til sög- unnar á prenti og er sjálfsagt að biðjast velvirðingar á því, eins og komið er. Nú í vikunni var raunar rætt á Alþingi um loforð ríkisstjórnarinnar til erlendra fjár- festa í áliðnaði um skattamál, en þau loforð voru sögð hafa verið forsenda þess að yfirleitt var farið í þá fjár- festingu, sem um var að tefla. Jóhanna byrjaði á því að fullyrða að engin slík loforð hefðu verið gefin! En þegar skriflegt loforð var dregið fram og veifað fram- an í hana, undirritað af hennar eigin fjármálaráð- herra (vissulega ekki í hópi orðheldnustu manna mannkynssögunnar), þá hljóp hún í það veika vígi að segja að loforðið hefði verið efnt á þeim tíma sem það hafði verið í gildi. Í skriflegri yfirlýsingu fjár- málaráðherrans var þó engin slík tímasetning og virð- ist Jóhanna því telja að loforð þeirra Steingríms gildi almennt og yfirleitt aðeins til þess tíma er þau kjósa að svíkja þau. Því er ekki að neita að loforðasaga rík- isstjórnarinnar og þessara tveggja ráðherra hennar sérstaklega sýnir að í þessum efnum hefur Jóhanna mikið til síns máls. Ljót sjón lítil Nú þegar tifið í klukkunni verður háværara með degi hverjum, birtingarmynd þess að þetta er að verða bú- ið, hlýtur að vera ömurlegt fyrir þessa tvo forystu- menn að horfa um öxl. Hvað stendur eftir? Skjald- borgin, sjálf háborg allra heitstrenginga, hrundi ekki til grunna. Það gat hún ekki því hún var aldrei reist. Af villiköttum og vogunar- sjóðum *Hefur aðgengi vogunarsjóðannaað æðstu þrepum íslenskrarstjórnsýslu sætt sífellt meiri furðu í landinu og utan þess. Reykjavíkurbréf 19.10.12
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.