Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2012, Page 48

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2012, Page 48
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.10. 2012 É g var búin að ímynda mér, áður en ég fór út, að ég yrði að borða kartöflur í heilt ár. Heima var mikið starfsöryggi og við þurft- um ekki að hafa áhyggjur af því að hafa ekki nóg að gera. Við vissum ekkert hvað við vorum að fara út í þegar við flutt- um til Noregs. Það var orðið langt síðan Is it true kom út og ekki hægt að lifa enda- laust á þeirri frægð. Ég sá fyrir mér að þetta yrði hark í eitt eða tvö ár þannig að við erum auðvitað mjög ánægð með að sú varð ekki raunin. Ég hef aldrei haft jafn mikið að gera,“ segir Jóhanna Guðrún sem þó hefur alltaf haft í mörg horn að líta í söngnum. Jóhanna Guðrún og kærasti hennar, Davíð Sigurgeirsson, hafa komið sér fyrir í Kongsvinger í suðurhluta Noregs. Kongs- vinger er hálfgerð sveit, 17 þúsund manna bæjarfélag, en Jóhanna Guðrún segir það ekki skipta máli, Kongsvinger sé miðsvæðis og hvort sem er þurfi þau að ferðast á tón- leika út um allan Noreg. „Fyrir okkur er þetta mjög góð staðsetn- ing og oft er styttra að keyra þangað sem við erum að fara að spila heldur en ef við værum í Osló. Ánægðust erum við þó með að hér erum við í litlu einbýlishúsi og hund- arnir okkar geta verið frjálsir. Og að sjálf- sögðu þurfum við að geta verið með hávaða. Davíð er með græjurnar í botni og ég get sungið eins hátt og ég vil.“ Parið var komið með íbúð í Osló þegar sveitarstjórnin í Kongsvinger bauð þeim að búa frítt í sveitarfélaginu í sex mánuði. Í staðinn áttu Jóhanna Guðrún og Davíð að leggja til tónlist með því að spila öðru hverju opinberlega. „Með þessu voru bæjar- yfirvöld að reyna að laða til sín listamenn og efla menningarlífið. Þetta er gamall og afar fallegur bær en er staðsettur þannig að flestir Norðmenn keyra bara í gegn og áfram yfir til Svíþjóðar til að versla. Með sex mánaða búsetustyrk eru vonir bundnar við að fólk vilji eftir þann tíma búa hér áfram og það vildum við sannarlega. Við eig- um orðið góða vini hér í bænum og allir hafa tekið okkur mjög vel.“ En af hverju Noregur? Eftir að hafa náð öðru sætinu í Eurovision í Moskvu fyrir þremur árum opnuðust margar dyr og Jóhönnu buðust ótal verk- efni ytra, allan ársins hring. Jó- hanna bjó þó all- an þennan tíma á Íslandi. „Ég þurfti að velja. Að syngja er það sem ég kann, eða að minnsta kosti það sem ég kann vel. Að vera á Íslandi og ætla sér að geta sinnt verkefnum úti með því að fljúga á milli var ekki raunhæfur kostur. Umboðsmaðurinn minn, sem er norskur, vildi fá mig út. Það var hins vegar ekki fyrr en í janúar á þessu ári sem við Davíð fluttum þó að við værum búin að vera með annan fótinn ytra frá 2010.“ Eflaust eiga margir erfitt með að trúa því að Jóhanna Guðrún sé bara 22 ára. Skýring- in gæti verið sú að söngkonan hefur verið afar lengi að. Fyrsta plata hennar kom út þegar hún var 9 ára. Hún var ekki nema 18 ára þegar söng sig inn í hug og hjörtu Evr- ópubúa með Is it True? og Norðmenn muna margir hverjir eftir henni úr þeirri keppni. Jóhanna Guðrún segir það alltaf koma jafn skemmtilega á óvart. „Sá tími sem er framundan er þannig að ég held að ég hafi ekki áður verið jafn þétt- bókuð. Þótt ég sé alltaf tilbúin að reyna að troða viðburðum inn í dagskrá mína og sé mjög jákvæð hef ég þurft að segja nei við helling af hlutum og mér finnst það alltaf jafn leiðinlegt – að þurfa að segja nei. Ég held að það sé ekki einn dagur í desember sem ég verð í fríi og ég er auðvitað mjög þakklát líka fyrir það og spennt. Þetta eru auðvitað allt aðrar aðstæður en heima. Hver sýning sem sett er upp er sýnd oft og mikið fé lagt í þær og að þeim kemur miklu fleira fólk.“ Við hlið Jóhönnu stendur svo Davíð gítar- leikari og saman semja þau alla tónlist Jó- hönnu auk þess sem Davíð er á fullu í ótal öðrum tónlistarverkefnum. Næsta plata, með frumsaminni tónlist þeirra skötuhjúa, er í vinnslu og er væntanleg á næsta ári. „Nei, við byrjuðum ekki saman af því það hentaði okkar vinnu,“ segir Jóhanna og hlær. „Að geta unnið náið saman er bónus.“ Jóhanna Guðrún segir að samband þeirra sé í raun byggt á fremur skondnum aðstæðum – ást við fyrstu sýn í fermingarveislu fyrir um tveimur árum. „Ég var beðin um að syngja í veislunni og var svolítið skeptísk því faðir fermingarbarnsins sagði mér að hann ætlaði sjálfur að útvega gítarleikarann. Mér fannst Norðmenn sitja um Jóhönnu Guðrúnu JÓHANNA GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR OG KÆRASTI HENNAR, DAVÍÐ SIGURGEIRSSON KYNNTUST Í FERMINGARVEISLU OG ELTA NÚ STÓRA DRAUMINN Á MEGINLANDINU. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is * Við erum 22 og 25 ára og flestir vin-ir okkar hér, sem eru reyndar tónlist-arfólk upp til hópa, eru miklu eldri en við. Enda erum við talin vera mjög ung miðað við það sem við erum að gera. ALLT KLÁRT FY

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.