Morgunblaðið - 19.10.2012, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2012
FRÉTTASKÝRING
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Á morgun ganga íbúar Garða-
bæjar og Álftaness til kosninga um
sameiningu sveitarfélaganna
tveggja en atkvæðagreiðslan fer
fram samhliða þjóðaratkvæða-
greiðslunni um tillögur stjórnlag-
aráðs.
Ef sameining Garðabæjar og
Álftaness verður að veruleika
stendur til að hið nýja sameinaða
sveitarfélag muni bera nafnið
Garðabær. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Sambandi íslenskra
sveitarfélaga voru íbúar Garða-
bæjar tæplega 11.300 talsins á síð-
asta ári en á sama tíma voru íbúar
Álftaness rúmlega 2.400 talsins.
Gera má því ráð fyrir að íbúar
Garðabæjar verði tæplega 14.000
talsins ef af sameiningunni verður.
Þá má geta þess að hið sameinaða
sveitarfélag mun eiga landsvæði
sem nemur um 4.700 hekturum.
Ráðgefandi hverfisstjórn
Ýmsar breytingar verða á
stjórnsýslu sveitarfélaganna ef þau
sameinast í nýtt sveitarfélag.
Þannig er ekki gert ráð fyrir því
að kosið verði um nýja bæjarstjórn
fyrr en í sveitarstjórnarkosning-
unum sem fram fara 2014. Þangað
til er stefnt að því að stjórn hins
sameinaða sveitarfélags verði í
höndum núverandi bæjarstjórnar
Garðabæjar en hinsvegar muni
bæjarstjórn Álftaness starfa út
kjörtímabilið sem ráðgefandi
hverfisstjórn með áheyrnarfulltrúa
í nefndum Garðabæjar. Þá hefur
ekki ennþá verið tekin ákvörðun
um hversu margir bæjarfulltrúar
munu skipa bæjarstjórn hins sam-
einaða sveitarfélags en í dag eru
sjö fulltrúar í sveitarstjórnum
Garðabæjar og Álftaness. Einnig
er gert ráð fyrir því að skrifstofur
sveitarfélaganna verði sameinaðar
og að rekið verði eitt þjónustuver
fyrir alla íbúa hins nýja sveitarfé-
lags í ráðhúsi Garðabæjar.
Með sameiningu sveitarfélag-
anna tveggja er einnig gert ráð
fyrir hagræðingu í yfirstjórn sem
gæti numið allt að 120 milljónum
króna á ári. Þar að auki er einnig
stefnt að því að sameina þjónustu-
miðstöðvar Garðabæjar og Álfta-
ness á einum stað. Engin áform
eru hinsvegar um breytingar á
skipan skólamála.
Skuldir Álftaness niðurfærðar
Skuldir Álftaness námu um 7,2
milljörðum króna við lok árs 2009.
Náðst hefur samkomulag um að
niðurfæra skuldir sveitarfélagsins
um tæpa fjóra milljarða gegn því
skilyrði að það sameinist öðru
sveitarfélagi. Þá er gert ráð fyrir
því að skuldir Álftaness muni
nema um 3,2 milljörðum króna við
lok þessa árs. Gert er ráð fyrir því
að skuldir og skuldbindingar hins
sameinaða sveitarfélags muni því
nema um 7,5 milljörðum króna við
lok næsta árs en stefnt er að því
að lækka skuldirnar niður í um
það bil fimm miljarða króna á
fyrsta kjörtímabili með hærri
framlögum úr Jöfnunarsjóði sveit-
arfélaga og auknum skatttekjum.
Áætlað er að rekstrarafgangur
hins sameinaða sveitarfélags verði
um 412 milljónir á næsta ári. Við
sameininguna verða álagning-
arprósentur bæði útsvars og fast-
eignaskatts samræmdar frá og
með 1. janúar 2013. Stefnt er að
því að álagningarprósenturnar
verði þær sömu og nú eru við í
lýði í Garðabæ en álagning-
arprósenta útsvars er þar nú
13,66%.
Þá er reiknað með því að eigið
fé hins nýja sveitarfélags styrkist
á tímabilinu til ársins 2017 en á
ætlanir gera ráð fyrir að það nemi
rúmum 12,3 milljörðum við árslok
2017 í samanburði við rúmlega 9,7
milljarða króna á árinu 2013.
Tekist á um sameiningu
Kosið verður um sameiningu sveitarfélaganna Garðabæjar og Álftaness á morgun Skuldir Álfta-
ness hafa lækkað en eftir standa 3,2 milljarðar Skrifstofur sameinaðs sveitarfélags verða í Garðabæ
Bæjarmörk hins nýja sveitarfélags
Garðabær
Álftanes
Kópavogur
Hafnarfjörður
„Ég er hlynntur sameiningu. Við erum búin að vera að
ræða þessi mál í tvö ár og bora okkur ofan í allar tölur og
þætti sem skipta máli í þessu og ég er algjörlega sann-
færður um það að þetta sé skynsamlegt og heilladrjúgt
skref fyrir Garðbæinga að stíga,“ segir Gunnar Einarsson,
bæjarstjóri Garðabæjar, og bætir við að eftir sameininguna
myndist bæði öflugra og sterkara sveitarfélag.
„Það sem við höfum haldið fram sem svona sterkustu
rökunum fyrir sameiningu er að í fyrsta lagi er þetta ekki
fjárhagslega íþyngjandi fyrir hinn almenna Garðbæing. Það er búið að ná
skuldunum það vel niður á Álftanesi að þær munu ekki íþyngja Garðbæing-
um og þjónustan verður alveg sú sama og álögurnar líka. Auk þess er búið
er að taka verulega til í rekstri Álftaness þannig að það samfélag á alveg að
geta staðið undir sér sjálfbært,“ segir Gunnar.
Þá bendir Gunnar á að einnig skipti verulegu máli í þessari umræðu að
með sameiningu sveitarfélaganna tveggja sé skipulagsvaldið áfram inni í
hinu nýja sameinaða sveitarfélagi. „Við erum með sömu hugsun í skipulags-
málum og Álftnesingar, að hafa þarna lágreista byggð og varðveita útivist-
arsvæðin, og við myndum þá halda áfram þeirri hugsun og ráða yfir skipu-
laginu. Ef Reykjavík kemur þarna með skipulagsvaldið þá vitum við ekkert
hvort komi þarna flugvöllur og hvernig menn muni þróa byggðina áfram.“
Öflugra og sterkara sveitarfélag
„Ég er alveg sannfærður um það að kostirnir eru töluvert
fleiri, það er margt sem mælir með sameiningunni. Við telj-
um í fyrsta lagi að stærra og öflugra samfélag veiti okkur
meiri möguleika til að efla þjónustuna,“ segir Snorri Finn-
laugsson, bæjarstjóri Álftaness.
Að sögn Snorra er bæjarstjórn Álftaness búin að vinna í
skuldaleiðréttingu sveitarfélagsins sl. þrjú ár. „Við höfum
verið hér undir fjárhaldsstjórn frá því í febrúar 2010 og höf-
um verið með það meginmarkmið að koma skikki á skuld-
irnar. Þar fyrir utan höfum við algjörlega snúið við rekstri sveitarfélagsins og
hann er kominn í mjög gott horf myndi ég segja, við erum réttum megin við
strikið bæði í ár og í fyrra,“ segir Snorri.
Aðspurður hvort farið verði í viðræður við Reykjavík ef ekki verður af sam-
einingu Garðabæjar og Álftaness, segir Snorri að reikna megi með því. „Ég
vona auðvitað að til þess komi ekki því ég er algjörlega sannfærður um að
sameining við Garðabæ er besti kosturinn og verði því samþykktur. Ef það
verður hinsvegar ekki, hef ég sagt að það séu tvær leiðir til fyrir Álftnesinga.
Sveitarstjórnin myndi byrja á því að ræða við annað sveitarfélag um frjálsa
sameiningu sem endi þá með því að íbúarnir segi sitt álit í íbúakosningu. En
það er alveg til í dæminu og lagalega mögulegt að ráðuneytið hreinlega semji
við eitthvert annað sveitarfélag um að sameinast sveitarfélaginu Álftanesi, þá
hefðu íbúarnir ekkert um það að segja og það finnst mér slæmt. Því þurfa íbú-
arnir að nýta rétt sinn á morgun og mæta og kjósa,“ segir Snorri.
Hafa snúið við rekstri Álftaness
„Ég held að þessi sameining sé í raun og veru hönnuð af og
fyrir kröfuhafana. Það sem er að gerast er það að kröfuhaf-
ar Álftaness eru ekki að gefa neitt eftir nema kannski ein-
hverjar vaxtagreiðslur upp á 300 milljónir, þeir fá allt sitt,“
segir Jón Árni Bragason, verkfræðingur og íbúi í Garðabæ.
Hann segir að verið sé að setja fram leik að tölum fyrir
venjulega kjósendur til þess að telja þeim trú um það að
þetta sé hið besta mál fyrir Garðbæinga.
„Í talnaleikfiminni sem framkvæmd er í þessari skýrslu
[skýrslu R3-Ráðgjafar ehf.] er verið að ofmeta eignir Álftaness og vanmeta
rekstrarkostnað. T.d. eins og verðið á þessari sundlaug sem eign, það er ekki
hægt að selja hana og hún er einskis virði í sjálfu sér nema sem sundlaug. Á
sama tíma er talsverður hluti af óbyggðu svæði úti á Álftanesi í einkaeigu
þannig að þó svo að af sameiningu yrði þá væri Garðabær ekki búinn að
tryggja sér yfirráð yfir því svæði,“ segir Jón Árni og bætir við: „Garðabær
þarf ekki aukið byggingarsvæði. Það er búið að skipuleggja tólf eða fimmtán
þúsund manna byggð á Garðaholti sem er nú þegar í Garðabænum, fyrir ut-
an Urriðaholtið sem er einungis rétt byrjað að byggja.“
Að sögn Jóns Árna telur hann ekkert óeðlilegt við sameiningu á jafnræðis-
grunni og segist hann hingað til ekki hafa verið á móti sameiningu við Álfta-
nes en honum þyki þó eðlilegt að þeir sem hafi lánað grimmt í lítið sveitar-
félag, sem stendur ekki undir greiðslubyrðinni, eigi að taka skellinn af því.
Það eigi ekki alltaf að bjarga kröfuhöfunum með því að færa byrðarnar yfir
á stærri samfélagshóp.
Eðlilegt að kröfuhafar axli ábyrgð
„Í fyrsta lagi er Álftanes mjög sérstakt sveitarfélag, sveit í
borg, með mikið af opnum svæðum þar sem eru varpfuglar,
óspilltar fjörur og gönguleiðir. Ég er mjög hræddur um að
Álftnesingar verði yfirkeyrðir í skipulagsmálum af bygg-
ingaglöðum Garðbæingum þegar þeir hafa yfirtekið sveitar-
félagið, því að það er alveg klárt að það er bæjarstjórnin í
Garðabæ sem yfirtekur stjórnina á Álftanesi,“ segir Þór
Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, íbúi á Álftanesi.
Þór bendir á að hann hefði viljað að í samningunum um
sameiningu sveitarfélaganna tveggja væri ákvæði um að Álftnesingar hefðu
áfram sjálfdæmi, að því leyti sem hægt er, í skipulagsmálum. „Hitt atriðið er
skólinn. Það hefur sýnt sig í öllum sameiningum sveitarfélaga hingað til að
það hefur því miður aðeins verið spurning um tíma hvenær skóla minni sveit-
arfélagsins er lokað og nemendurnir keyrðir í skólann. Það er ekkert í þess-
um samningi við Garðabæ um það að Álftnesingar hafi eitthvað um það að
segja hvort það verði áfram skóli á Álftanesi og þegar skólinn er farinn, ef
hann fer, þá er hjartað í samfélaginu farið,“ segir Þór.
Óttast yfirkeyrslu í skipulagsmálum
Þjónusta
Vörubílastöðin Þróttur býður fjöl-
breytta þjónustu s.s. jarðefnaflutninga,
hífingar, fjarlægja tré og garðúrgang
o.fl. og ræður yfir stórum flota
atvinnutækja til margvíslegra verka.
Sjáðu meira á heimasíðunni okkar
www.throttur.is
ÞRÓTTUR TIL ALLRA VERKA
Þekking • Reynsla • Traust þjónusta
Þið þekkið okkur á merkinu
SÆVARHÖFÐA 12 · SÍMI 577 5400 · THROTTUR.IS
• Vörubílar
• Kranabílar
• Flatvagnar
• Körfubílar
• Grabbar
• Grjótklær
• Hellusandur
• Holtagrjót
• og óteljandi
aukabúnaður
Bílar - tækjakostur og efni