Morgunblaðið - 19.10.2012, Blaðsíða 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2012
Skoðaðu úrvalið
www.jens.is
Kringlunni og
Síðumúla 35
Persónuleg ráðgjöf
Gjafavara
Mikið úrval gjafavöru,
borðbúnaðar, skúlptúra
og skartgripa.
Hurðarhanki
9.900 kr
Skeið fyrir t.d.
ofnrétti og ís
16.800 kr
Viðgerðaþjónusta, verkstæði og
verslun Jens í Síðumúla
Eilífðarrósin
lítil 41.500 kr
stór 44.800 kr
Blaðastandur
11.700 kr
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Sýndu samstarfsfólki þínu meiri
sanngirni og umburðarlyndi. Andstæðar
skoðanir leiða til hressandi samræðna og
hugsanlega ástar sem kraumar.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú færð tækifæri til að gera hluti sem
þú hefur aldrei komið nálægt áður. Fullviss-
aðu ástvin um að hegðun þín endurspegli
ekki tilfinningar þínar til hans.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það kostar sitt að komast áfram
svo þú skalt hvergi hika, þótt þér finnist
eitthvað ganga þér á móti. Þú ert allt of
stjórnsöm/samur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Gættu vel að heilsu þinni, jafnt and-
legri sem líkamlegri. Nú er tíminn til þess að
endurnýja kynnin við góða félaga og endur-
lifa gamlar minningar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér virðast engin takmörk sett ef þú
aðeins gætir þess að fara rétt í hlutina.
Gefðu þig alla/n í allt sem þú gerir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ef þú ferð í verslunarleiðangur er allt
eins víst að þín verði freistað með ein-
hverjum munaði. Litlar góðar fréttir eru líka
góðar fréttir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú verður að standast allar freistingar
um að segja frá leyndarmáli, jafnvel þótt
það brenni á þér. Leitaðu leiða til að stuðla
að því að peningamálin fari í jákvæðan far-
veg.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú sérð í gegnum lélega samn-
inga, hálfsannleika og hvers kyns fjölmiðla-
brellur í dag. Ferð án fyrirheits er vont
ferðalag.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Sambandið sem þú ert í gefur
hjarta þínu frelsi. Ekki væri vitlaust að bjóða
heim gestum. Er líkamsræktin ekki á
stundaskránni lengur?
22. des. - 19. janúar
Steingeit Samtal við móður þína eða ein-
hvern þér eldri gengur vel í dag. Brettu upp
ermarnar og hættu ekki fyrr en borðið er
hreint.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það eru gerðar miklar kröfur til
þín, jafnvel svo að þér finnst nóg um. Taktu
þér hlé frá brauðstritinu og dekraðu við þig.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú eru miklir dýrðartímar fyrir þig.
Reyndu að sigla á milli skers og báru meðan
óveðrið gengur yfir. Dagurinn gæti komið
skemmtilega á óvart, en þú þarft að vera á
varðbergi.
Þessi skemmtilega ljósmynd vartekin á árabilinu 1920 til 1930
af Trausta Ólafssyni og er til á
Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Á
myndinni eru „sællegar Reykjavík-
urstelpur“, nánar tilgreint þær
Rakel Kristjánsdóttir (1903-1989)
og Lilja Sölvadóttir (1898-1973).
Þegar myndin var valin ljósmynd
vikunnar á dögunum fylgdi ljóð,
sem eignað hefur verið bæði Jó-
hannesi Kjarval og Halldóri Lax-
ness:
Lilja mín Sölva
mér lá við að bölva
þegar ég heyrði að þú værir gift.
Gott á þinn maki
gjaldkerinn spaki
Guðmundur geturðu – skipt?
Ljóðið er um Lilju, sem er til
hægri á myndinni, en hún „þótti á
yngri árum með fegurri konum hér
í bæ,“ að því er kemur fram í minn-
ingargrein Einars Arnalds í Morg-
unblaðinu 13. desember 1973. Lilja
giftist Guðmundi Guðmundssyni
bankagjaldkera frá Reykholti.
Sýning á ljósmyndum Trausta
Ólafssonar (1891-1961) undir yfir-
skriftinni „Frá Breiðavík til Kaup-
mannahafnar“ stendur yfir fram í
janúar í Ljósmyndasafni Reykjavík-
ur. Á vef safnsins segir meðal ann-
ars: „Trausti fangar andrúmsloft
heimasveitarinnar, þar sem sjá má
börn og fullorðna svífa um slægj-
una með hrífur í hönd, glaðbeitta
sláttumenn með orf sín og ljái og
sællegar blómarósir koma sér vel
fyrir í heyfengnum.“
Þá lýsa myndirnar sem Trausti
tók í Kaupmannahöfn öðrum heimi:
„Hér er um að ræða fágætar ljós-
myndir af íslenskum háskólastúd-
entum sem dvöldust á Gamla Garði
(Regensen), hinu fornfræga stúd-
entaheimili við Stóra Kanúkastræti
í Kaupmannahöfn. Þetta eru hressi-
legar myndir af vel klæddu ungu
fólki að máta sig í hlutverki heims-
borgarans.“
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af ljósmynd og sællegum
Reykjavíkurstelpum
Enginn virðist vera maður meðmönnum um þessar mundir
nema hann sendi frá sér yfirlýsingu.
Að gefnu tilefni vill Víkverji því taka
eftirfarandi fram:
x x x
Víkverji hefur gætt þess að sofareglulega, borða vel og hreyfa
sig þess á milli. Lífsstíllinn hefur
verið til eftirbreytni um allan heim
og Víkverji er ánægður með að hafa
hagað sér eins og best verður á kosið
hvað þetta varðar. Stundum hefur
hann reyndar sofið of lítið eða of
mikið, neytt of mikillar fæðu eða of
lítillar og hreyft sig of lítið eða of
mikið, en þegar á heildina er litið og
dagafjöldanum deilt í lifða daga er
meðaltalið ágætt og verður vart
betra, þótt hann segi sjálfur frá.
x x x
Víkverji vann með skóla, laukhefðbundinni skólagöngu og fór
endanlega út á vinnumarkaðinn að
loknu háskólaprófi. Hann var nánast
með óaðfinnanlega mætingu í skóla
og fór að settum reglum. Var pínu
skotinn í bekkjarkennaranum í
barnaskóla þar til hann sá kennar-
ann kyssa annan kennara á gang-
inum fyrir framan stofuna. Lét samt
sem hann hefði ekki séð skot þeirra
enda kom honum það í sjálfu sér
ekki við. Með öðrum orðum skildi
Víkverji sáttur við menntakerfið og
er sérlega ánægður með að það var í
betri og fastari skorðum þegar hann
lauk námi en þegar hann steig sín
fyrstu spor í skóla.
x x x
Víkverji hefur ávallt verið trúrvinnuveitanda sínum hverju
sinni. Gengið að hverju verki nánast
með bros á vör. Hann hefur verið
stundvís, sem betur fer verið við
góða heilsu og því sjaldan frá vegna
veikinda. Hann hefur reynt að gera
sitt besta og sama er hvert litið er;
alls staðar hafa orðið framfarir frá
því Víkverji fót út á vinnumark-
aðinn. Fyrir það er hann þakklátur.
x x x
Margir hafa rætt við Víkverjavegna Alþingiskosninga og
hann er þakklátur fyrir það. Honum
er mikill heiður að tilkynna að hann
er ekki í framboði. víkverji@mbl.is
Víkverji
Hjá Guði er hjálpræði mitt og veg-
semd, minn örugga klett og athvarf
mitt hef ég í Guði. (Sálmarnir 62:8)
eftir Jim Unger
„VIÐ VILJUM SITT HVORT BORÐIÐ.“
HermannÍ klípu eftir Mike Baldwin
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að þola honum karl-
mannlega skeggrót.
ENGIN
AFSÖKUN.
VINSAMLEGAST
HJÁLPIÐ
HVAÐ SEGIRÐU,
LÍSA?
Á ÉG AÐ KOMA MEÐ
GRETTI Í SPRAUTU?
ÞETTA
VAR GRÍN!
NEI, ÞETTA
VAR SÓUN
Á KATTA-
MAT!
NÆST ÞEGAR VIÐ EIGUM AÐ KOMA
MEÐ EITTHVAÐ Í MATARBOÐ ...
... EKKI BJÓÐAST TIL
AÐ KOMA MEÐ SÚPU!