Morgunblaðið - 19.10.2012, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.10.2012, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2012 Dagskrá 10.30 Afhending gagna og skráning 11.00 Framsöguerindi Feminísk hugvekja í upphafi þings Jarþrúður Ásmundsdóttir, formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna Komum uppskerunni í hús Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins Korter í kosningar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingkona Verum breytingin sem við boðum Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti borgarstjórnarflokksins 12.15 Hádegisverður 12.45 Drög að ályktun kynnt 13.00 Örnámskeið Í kastljósinu Elín Hirst, fjölmiðlakona Hraðtengsl Þórhildur Birgisdóttir, M.A. í alþjóðaviðskiptum Mínútukynningar Lára Óskarsdóttir, markþjálfi 15.00 Konur undir áhrifum - Kokteill Sjálfstæðisflokkurinn Fundarstjóri verður Þórey Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins Konur til áhrifa Haustþing Landssambands sjálfstæðiskvenna, laugardaginn 20. október á Nauthóli, Nauthólsvegi 106, 101 Reykjavík Þinggjöld: 3.900 kr. Skráning og greiðsla þinggjalda á www.xd.is/haustfundur Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands heldur tíu málstofur um Evrópu- samrunann og Ísland í vetur. Stofn- unin hlaut styrki frá Evrópustofu og úr Jean Monnet-sjóði ESB til að stuðla að upplýstri umræðu um Evr- ópumál á Íslandi, segir í tilkynningu. Fyrsta málstofan verður í dag, föstudaginn 19. október kl. 12, í Odda, stofu 201. Umræðuefnið verð- ur: Kynjasamþætting í 15 ár: Alþjóð- leg viðhorf og stefna Evrópusam- bandsins. Um efnið ræða Joni Seager, pró- fessor og deildarstjóri við Bentley- háskóla í Bandaríkjunum, og Jenny Claesson, markaðsstjóri Add Gender í Svíþjóð. Þátttakandi í umræðum og fund- arstjóri er Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu. Ræða kynjasam- þættingu í Odda Bandalag íslenskra græðara stend- ur fyrir ráðstefnu um heildræna meðferð laugardaginn 20. október kl. 9-18 í veislusal Rúgbrauðs- gerðar, Borgartúni 6. Aðild að bandalaginu eiga félög svæðanudd- ara, höfuðbeina- og spjaldhryggs- jafnara, hómópata og heilsumeist- ara. Flutt verða erindi um heildræna meðferð og efni því tengt. Dagskrána má finna á vef BÍG, www.big.is. Allir velkomnir. Heildræn meðferð í brennidepli Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Líkur eru á að sjödepla af ætt maríuhæna og beltasveðja, sem er stór trjávespa, hafi náð bólfestu hér á landi. Þessar ólíku tegundir hafa reglulega fundist hér á landi, en í ár eru sterkar vísbendingar um að þær aðstæður hafi skapast í görðum og gömlum trjálundum að sjödeplan og beltasveðjan hafi fest sig í sessi. Erling Ólafsson, skordýrafræð- ingur á Náttúrufræðistofnun, segir að þessi þróun sé mjög athyglisverð, en samfara hlýnandi veðurfari komi hún ekki á óvart. „Það er ekki bein- línis þannig að smádýrin komi með áætlunarflugi og hreiðri um sig á nýjum stað. Það tekur talsverðan tíma frá því að pöddurnar gera fyrst vart við sig þar til þær festa sig í sessi,“ segir Erling. Frjálslega með varningi Á heimasíðu Náttúrufræði- stofnunar skrifar Erling að sjö- deplan sé vel þekkt hér á landi til langs tíma sem slæðingur frá megin- landi Evrópu og hafi „borist frjáls- lega með varningi ýmiskonar á flest- um árstímum og ekki síst dönskum jólatrjám síðla hausts“. Sjödeplan (maríubjalla eða maríuhæna eins og hún kallast líka) sé hin dæmigerða ímynd maríu- bjallna, rauð með svörtum doppum, lífleg og vel þokkuð. Hafi hún m.a. þótt sóma sér vel sem myndefni á jólakortum hjá nágrannaþjóðum. Af maríubjöllum hafi aðeins flikru- deplan verið landlæg hér til þessa. Í ár hafa Náttúrufræðistofnun Íslands borist þrjú eintök sjödeplu, sem öll fundust í húsagörðum á höf- uðborgarsvæðinu og ekkert benti til þess að þau hefðu tengst innkaupum á matföngum. „Sjödeplan verður seint talin til meinsemda þótt hún sé mikið átvagl. Hún leggur sér nefni- lega einvörðungu til munns blaðlýs sem garðræktendur koma seint til með að sakna af plöntum sínum,“ segir á ni.is. Verpir í dauð grenitré Lirfur trjávespu fundust í Evr- ópulerki á Mógilsá síðastliðinn vetur og mun það hafa verið í fyrsta skipti sem lirfur slíkra dýra finnast í trjám hér á landi. Ekki var hægt að teg- undagreina dýrin á lirfustigi og voru þau því geymd á Rannsóknastöð skógræktar á Mógilsá, í þeirri von að einhver myndu klekjast út. Í júlí birtust síðan fyrstu dýrin og reyndist um beltasveðju að ræða. Fram kemur á vef Skógræktarinnar að fullorðin beltasveðja verður 10-40 millimetrar á lengd. Beltasveðjan verpir einkum í dauð grenitré og trjáboli. Maríuhæna af jólakortum nemur land  Líkur á að sjödepla og beltasveðja hafi náð bólfestu hér á landi  Athyglisverð þróun en kemur ekki á óvart með hlýnandi veðurfari  Beltasveðja verpir einkum í dauð grenitré og trjáboli Ljósmynd/Erling Ólafsson Sjödepla Vísbendingar gefa til kynna að hún sé að festa sig í sessi. Beltasveðja Önnur tveggja tegunda sem kallaðar hafa verið trjávespur. Erling Ólafsson er að hefja úr- vinnslu gagna frá vöktun fiðr- ilda á Suðurlandi í sumar og segir hann langt í frá að smá- dýralíf hafi náð sér á strik undir Eyjafjöllum eftir eld- gosin í Eyjafjallajökli. Vikur- og öskufall hafi haft gríðarleg áhrif. Átvaglið spánarsnigill hefur lítið verið á kreiki í sumar enda veðurfar suðvestanlands mjög þurrt. Erling á þó von á því að hann geri í auknum mæli vart við sig að nýju ef geri vætusumar. Geitungar í jafnvægi Spurður um afkomu geitunga í ár segir Erling að trjágeit- ungur virðist í jafnvægi, en holugeitungur hafi aðeins gef- ið eftir í ár. Það sé honum eig- inlegt að sveiflast á milli ára og sennilega sé hann einnig að færast nær eðlilegu jafnvægi. Eldgos höfðu mikil áhrif SMÁDÝRALÍF VAKTAÐ STUTT Skurðdeild Landspítala Hring- braut hefur fengið að gjöf full- komnustu gerð af höfuðljósum ásamt ljósgjafa sem nýtast munu við ýmiss konar skurðaðgerðir, m.a. í kviðarholi en einnig við hjarta- og lungnaskurðaðgerðir. Eldri ljósabúnaður er kominn til ára sinna og þessi gjöf kemur því í góðar þarfir. Gjöfin var afhent 12. október sl. og er í minningu Katrínar Gísla- dóttur (f. 1903, d. 1997), skurð- hjúkrunarkonu og síðar yfirhjúkr- unarkonu á skurðdeild Landspítala. Katrín var einn af helstu frumkvöðlum í skurð- hjúkrun hér á landi. Gefandi er Erla Þorsteinsdóttir en hún er bróðurdóttir Katrínar. Á myndinni eru aðstandendur Katrínar Gísladóttur, Hrefna Clau- sen, Ingibjörg Kristín Ingólfsdóttir og Erla Þorsteinsdóttir ásamt Tómasi Guðbjartssyni, yfirlækni við skurðdeild LSH, og Birni Zoëga forstjóra Landsspítalans. Skurðdeild LSH fær höfuðljós að gjöf Umhverfisstofnun staðfesti í gær að eftirfylgni vegna þeirra frá- vika sem komu fram við eftirlit árið 2011 væri lokið og fallið væri frá áformum um álagningu dag- sekta á sveitarfélagið Skagafjörð. Í mars sem leið áformaði um- hverfisstofnun að leggja dagsektir á Skagafjörð vegna sjö frávika frá kröfum sem gerðar eru til urðunarstaða. Í kjölfarið töldu starfsleyfishafi og stofnunin heppilegra að loka urðunar- staðnum á Skarðsmóum frekar en að leggja í framkvæmdir og til- kostnað. Í tilkynningu frá stofnuninni segir að 3. október sl. hafi henni borist lokunaráætlun vegna urð- unarstaðarins á Skarðsmóum ásamt staðfestingu frá sveitar- stjóra um að urðun þar hafi verið hætt og sláturúrgangi sé nú ekið til urðunar í Stekkjarvík. Skagafjörður fær ekki dagsektir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.