Morgunblaðið - 19.10.2012, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2012
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Nýir húseigendur á Siglufirði hafa
óskað eftir skýringum frá Rarik
vegna reiknings frá ríkisfyrirtæk-
inu. Talsmaður þeirra segir að
starfsmaður Rarik hafi í símtali
sagt að það kostaði 45-50 þúsund
krónur að veita heitu vatni á kerfi
hússins á ný en reikningurinn fyrir
viðvikið hafi síðan hljóðað upp á um
250 þúsund krónur. Munurinn sé
mikill og óútskýrt sé í hverju hann
liggi. Hann áréttar að starfsmenn
Rarik á Siglufirði hafi verið eig-
endum mjög innan handar en allt
hafi komið fyrir ekki.
Borga fyrst
Fólkið keypti hús á Siglufirði fyr-
ir skömmu. Húsið hafði ekki verið í
notkun í um áratug og ekkert vatn
verið á því en fyrrverandi eigandi
stendur reyndar í málaferlum við
Rarik vegna vatnsleka í húsinu í
sumar. Talsmaðurinn segir að sam-
kvæmt verkbeiðni hafi ekki mátt
byrja á verkinu fyrr en búið væri að
greiða reikninginn og það hafi ver-
ið gert með fyrirvara í fyrradag.
„Við báðum um þjónustu sem var
auglýst á um 47 þúsund krónur en
borguðum um 251 þúsund krónur,“
segir hann.
Að sögn talsmannsins bendir Ra-
rik á að fyrirtækið hafi heimild til
þess að innheimta fyrrnefnda upp-
hæð hafi þjónusta ekki verið þegin í
fimm ár. Norðurorka, HS og Orku-
veitan segist ekki beita þessu
ákvæði en þau geti ekki skipt við
þessi fyrirtæki og Rarik nýti sér
einokunina á Siglufirði. „Við borg-
uðum reikninginn með fyrirvara og
viljum fá muninn á uppgefnu verði
og endanlegu endurgreiddan.“
Talsmaðurinn áréttar að þegar
hann hafi spurt um kostnaðinn hafi
ekki farið á milli mála um hvaða
hús væri að ræða því heitavatns-
inntakið í því hafi sprungið í sumar,
kjallarinn „soðnað“ og málaferli
séu í gangi. „Það voru allir mjög já-
kvæðir þar til reikningurinn kom,“
segir hann.
Reikningur Rarik fyrir
tengingu fimmfaldaðist
Kostnaður úr 50 þúsundum króna í 250 þúsund krónur
Siglufjörður Heita vatnið kostar.
Falli notkun á heitu vatni niður í
a.m.k. fimm ár telst heimæð af-
lögð og hefjist notkun á ný þarf
að greiða fullt tengigjald með
7% vsk., 250.480 kr. Hjá Rarik
fengust þær upplýsingar að
hæpið væri að heimtaug entist
án vatns í langan tíma vegna
t.d. tæringarvandamála og oft
þyrfti að skipta um mælitæki og
fleira. Því væri um viðhalds-
kostnað að ræða.
Verðskrá
RARIK OG HEITA VATNIÐ
VIÐTAL
Ingvar P. Guðbjörnsson
ipg@mbl.is
„Eini staðurinn þar sem fjármála-
kerfið hefur verið skoðað ofan í kjöl-
inn er á Íslandi. Við vitum mikið um
brotalamirnar og við vitum að The
Goldman Sachs ráðlögðu viðskipta-
vinum sínum að eiga viðskipti með
bréf í eigin fyrirtækjum og að þeir
högnuðust á því en enginn hefur
stefnt þeim. Þeir hafa þó verið sekt-
aðir,“ sagði Eva Joly, sem í dag held-
ur fyrirlestur í Hörpu um kreppuna í
banka- og fjármálaheiminum. Blaða-
maður settist niður með henni í gær
og ræddi við hana um afleiðingar
fjármálahrunsins, lærdóminn af því,
stöðuna á Íslandi og í heiminum al-
mennt og um efni fyrirlestrarins.
Kreppan ekki kennt sanngirni
„Ég mun ræða um bankakerfið og
hlutverk þess í heiminum. Ég mun
beina sjónum mínum að því sem ekki
er að virka í kerfinu og því að krepp-
an hefur ekki kennt fjármálamönn-
um að vera sanngjarnari. Ég mun
notast við mikið af dæmum í þessu
samhengi. Dæmi um peningaþvott í
Mexíkó, um meðferðina á verkafólki
og varpa ljósi á ágóðann sem fjár-
málaheimurinn hefur af því. Hann
skiptir milljörðum. Ég mun fjalla um
þessi mál í stóru samhengi,“ segir
Joly sem kemur hingað í boði Sam-
taka fjárfesta og viðskiptafræði-
deildar Háskóla Íslands.
Joly segist munu fjalla um nýlega
skýrslu finnska seðlabankastjórans
sem hafi ráðlagt að fjárfestinga-
bankar fengju ekki að meðhöndla
fjármagn sparifjáreigenda og að
bankakerfinu yrði skipt upp.
„Þeir geta eyðilagt heiminn“
„Evrópskir bankar eru í mun
verri málum en þeir bandarísku og
þeir eru mun hættulegri fyrir heim-
inn. Þeir eru of stórir til að þeim
verði bjargað. Þeir geta eyðilagt
heiminn. Þetta er ástæðan fyrir því
að við sem stjórnmálamenn höfum
gríðarlega ábyrgð. Mínar áhyggjur
eru að flestir stjórnmálamenn skilji
ekki alvarleika málsins. Að þeir
treysti um of á ráðgjafa sína og að
ráðgjafar þeirra séu ekki nægilega
óhlutdrægir,“ segir Joly.
Eva segist treysta almannavilja
og leggur áherslu á nauðsyn þess að
stjórnmálamenn tali við íslenskan al-
menning og fari að almannavilja.
– Nú starfaðir þú um tíma sem
ráðgjafi sérstaks saksóknara.
Hvernig sýnist þér ganga þar á bæ í
dag?
„Ég hef ekki verið hér í tvö ár, en
mun eyða smátíma núna í að setja
mig inn í málin aftur. En eins og ég
hef margoft sagt þá eru lagalegar
rannsóknir mjög hægfara. Ég er
sannfærð um að þar eru mál á loka-
stigi sem brátt verður saksótt í.
Þegar bankarnir hafa fengið sinn
dóm, bæði siðferðislegan fyrir bank-
ana sjálfa og eins einstaklingarnir
sem þar unnu og sáu um fram-
kvæmd mála mun það gera spari-
fjáreigendum, sem töpuðu í hruninu
og eru ekki hluti af rannsókninni,
ljóst að þeir voru fórnarlömbin. Það
mun verða sannað í réttarkerfinu.“
– En hvað getur þú sagt um við-
brögð hinna saksóttu?
„Ég hef ekki lesið íslensk dagblöð.
En þeir sem eru saksóttir eru vissu-
lega ekki sáttir og hafa allir sínar
ástæður til að vera ekki sáttir.“
– Þú tókst þátt í yfirheyrslum yfir
seðlabankastjóra Evrópu. Hvernig
gengu þær fyrir sig?
„Mér var falið að vera fyrir hönd
Græningja á Evrópuþinginu í þess-
um yfirheyrslum. Ég hitti Mario
Draghi [seðlabankastjóra] í fyrsta
skipti og það var ekki gert á jafn-
ræðisgrunni. Draghi sat frammi fyr-
ir þingnefndinni og hann svaraði
ekki öllum spurningum sem að hon-
um var beint. Ég fékk svar við einni
af spurningum mínum um kaup
seðlabankans á þjóðarskuldum. Þá
spurði ég hann hvort hann hefði ekki
áhyggjur af átökunum á milli gjald-
miðilsstefnu og hlutverks banka sem
eftirlitsaðila. Vegna þess að fólk sæi
það alltaf með öfugum formerkjum.
En þeirri spurningu svaraði hann
ekki.“
Bónusar fimmföld föst laun
– Hafa banka- og fjármálamenn
almennt lært eitthvað af hruninu?
„Nei, það hafa þeir ekki. Það er
verulegt áfall fyrir mig að risabónus-
ar eru aftur orðnir að veruleika.“
Joly segir seðlabanka Evrópu ný-
lega hafa veitt risavaxin lán og að
engin takmörk hafi verið sett á bón-
usa vegna þeirra viðskipta. Hún
gagnrýnir kaup seðlabanka á þjóð-
arskuldum og segir þær sjálfvirkt
skapa gróða fyrir fjármálafyrirtæki.
„Þetta er ástæðan fyrir því að við
þurfum að hafa sjálfstæða þingmenn
sem sjá að þetta er ekki eðlilegt,“
segir Joly og bætir við: „Bankastjóri
Citybank var rekinn úr starfi í fyrra-
dag ásamt næstráðanda. Hann hafði
beðið um 15 milljónir dollara í laun.
Þar ofan á væri hægt að borga hon-
um ótakmarkaða bónusa. Í Evrópu
höfum við þó reynt að hámarka laun
bankamanna. Við Græningjar höfum
lagt áherslu á að umsamin laun væru
hámarkslaun og að það væri ekki
hægt að greiða hærri bónusa en sem
væru fyrirfram umsamdir, en það
var ekki samþykkt. Það eru dæmi
þess að bankamenn hafi á síðasta ári
fengið fimm sinnum hærri bónusa en
þeir höfðu í föst umsamin laun.“
„Vantar fleiri konur til starfa“
– Hefur þú áhyggur af því að það
komi önnur fjármálakreppa?
„Já, ég hef áhyggjur af því og er
reið yfir því hversu kerfið er veikt og
skil ekki af hverju svo er. En barátt-
unni er ekki lokið og það er fullt af
góðu fólki að vinna að þeim málum.
En það vantar fleiri konur til að
koma að þessum störfum.“
Bankamenn ekkert lært eftir hrun
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Baráttukona Eva Joly hefur um árabil helgað krafta sínum baráttunni gegn spillingu í fjármálakerfinu. Hún flytur
í dag fyrirlestur í Hörpu um banka- og fjármálakreppuna. Hún segir bankamenn ekkert hafa lært af kreppunni.
Eva Joly segir bankakerfi Evrópu of stórt til að því verði bjargað og segir kerfið það veikt að ann-
að hrun gæti komið til og eyðilagt heiminn Hún segir stjórnmálamenn ekki skilja alvarleika mála
Fjármálahrunið
» Eva Joly heldur í dag hádeg-
isfyrirlestur í Hörpu um krepp-
una í fjármálakerfinu.
» Joly segir risavaxna bónusa
aftur komna til sögunnar. Hún
er reið yfir ástandinu í fjár-
málakerfinu.
» Stofnun Evu Joly var sett á
laggirnar í fyrra á Íslandi og
markmiðin eru að efla baráttu
gegn spillingu og skatta-
skjólum, efla lýðræði, opna
stjórnsýslu og þátttöku al-
mennings í stjórnmálum.
SHEA BUTTER
VERNDAR OG NÆRIR
Kringlan - Sími: 577 7040 | www.loccitane.com
T
ilb
o
ð
in
gi
ld
a
1
8
.-
2
2
.o
k
tó
b
e
r
2
0
1
2
e
ð
a
m
e
ð
an
b
ir
gð
ir
e
n
d
as
t.
HANDKREMS-
TVENNA
Ýmsar tegundir - 2x30 ml
TILBOÐSVERÐ:
1.650 KR.
Verð áður: 2.300 kr.