Morgunblaðið - 19.10.2012, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2012
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Gestir og gangandi á Vopnafirði
ættu ekki að láta sér bregða þótt
grænklæddur unglingur faðmi þá
þéttingsfast í dag, því í dag er knús-
dagur í bænum. Hin árlega Vinavika
stendur nú yfir en það eru 13-15 ára
ungmenni í æskulýðsfélagi Hofs-
prestakalls sem standa fyrir vik-
unni, sem nú er haldin í þriðja sinn.
Tilgangur Vinavikunnar er að
minna á kærleikann og vináttuna og
þá staðreynd að öll erum við öðrum
háð og þurfum að geta treyst hvert
öðru. Ungmennin hafa verið dugleg
við að sýna vinskap í verki en þau
hafa m.a. skreytt fyrirtæki í bænum,
boðið í ókeypis Vinabíó og í dag ætla
þau ekki bara að knúsa fólk heldur
verða þau reiðubúin til aðstoðar í
verslun bæjarins, þar sem þau ætla
að hjálpa fólki við að raða í pokana
og bera þá út í bíl.
Þarf svo lítið til
„Þegar allir hjálpast að þá er
þetta ekkert mál,“ segja Ágúst Máni
Jóhannsson og Þorbjörg Jóna Garð-
arsdóttir um undirbúninginn fyrir
vikuna en þau eru meðal þeirra 28
unglinga sem koma að hátíðinni. Þau
segja bæjarbúa hafa tekið vel í Vina-
vikuna en meðal þeirra uppátækja
sem hafa verið á dagskrá er græni
dagurinn, sem haldinn var á mið-
vikudag, en þá var öllum uppálagt að
klæðast grænu.
„Þá ókum við um bæinn á dráttar-
vélum, vorum uppi á vögnunum og
dreifðum gleði. Máluðum bæinn
grænan,“ útskýrir Ágúst. „Við
skreyttum ljósastaura með grænum
borðum og fórum t.d. í sjoppuna og
skreyttum þar. Gáfum blöðrur og
fleira,“ bætir Þorbjörg við.
Ungmennin segja vikuna mjög
skemmtilega, svo skemmtilega
raunar að á sunnudaginn ætla þau
að bjóða bæjarbúum aðstoð við
heimilisstörfin. Með bros á vör
væntanlega.
„Lykillinn í þessu er kannski að
það þarf ekki mikið í samskiptum til
að gleðja,“ segir Stefán Már Gunn-
laugsson, sóknarprestur í Hofs-
prestakalli. „Stundum þurfum við
bara aðeins að stíga út fyrir hringinn
okkar. Og það gera þau og sýna í
raun ótrúlegt hugrekki að þora
þaðs,“ segir hann um krakkana.
Bjóða fólki knús og
aðstoð með pokana
Vinaleg ungmenni standa að Vinaviku á Vopnafirði
Vinavika Ungmenni á Vopnafirði ganga fylktu liði í gær, í tilefni af Vina-
vikunni. Tilgangur vikunnar er að minna á mikilvægi kærleika og vináttu.
Bíó Vinavikan hófst síðastliðinn sunnudag en þá buðu ungmennin í fjölsótt
Vinabíó og Vinafánar voru dregnir að húni um allan bæ.
FRÉTTASKÝRING
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Laganefnd Lögmannafélags Ís-
lands, sem farið hefur yfir tillögur
stjórnlagaráðs að nýrri stjórnar-
skrá, telur þær þarfnast þónokkurr-
ar endurskoðunar og segist ekki
geta mælt með því að þær verði sam-
þykktar í óbreyttri mynd.
Í áliti laganefndarinnar er farið yf-
ir flestar greinar tillagnanna og
gerðar misalvarlegar athugasemdir
við þær. Meirihluti þeirra er við
mannréttindakaflann. Í langflestum
tilfellum telur nefndin þó að tillögur
stjórnlagaráðs séu óljósar og geti
valdið réttaróvissu á ákveðnum svið-
um.
Hindri aldursviðmið í lögum
Á meðal þess sem laganefndin lýs-
ir áhyggjum af er sú tillaga í mann-
réttindakaflanum að ekki megi mis-
muna vegna „kynferðis, aldurs,
arfgerðar, búsetu, efnahags, fötlun-
ar, kynhneigðar, kynþáttar, litar-
háttar, skoðana, stjórnmálatengsla,
trúarbragða, tungumáls, uppruna,
ætternis og stöðu að öðru leyti“.
Þannig gæti bann við mismunun
vegna tungumáls orðið til þess að
ekki mætti láta íslenskukunnáttu
eða kunnáttu á öðru tungumáli vera
ráðandi þátt við ráðningu í starf.
Jafnvel gæti það þýtt að ekki væri
hægt að gera kröfur til umsækjenda
um gott málfar.
Þá gæti bann við mismunun á
grundvelli aldurs takmarkað heimild
löggjafans til að festa í lög aldurs-
viðmið, til dæmis hæfnisskilyrði til
að hljóta embætti, að mati nefndar-
innar. Ákvæði um að ekki megi mis-
muna eftir búsetu gætu að sama
skapi haft áhrif á mikilvæg lög eins
og lög um tekjuskatt og gjaldeyris-
mál, að því er segir í álitinu.
Óvissa varðandi dreifingu
barnakláms
Nefndin telur að breytingar sem
stjórnlagaráð leggur til á tjáningar-
frelsisgrein stjórnarskrárinnar
breyti því efnislega. Með því að fella
út takmörkun á tjáningarfrelsi með
vísan til siðgæðis kunni að skapast
mikil réttaróvissa um heimildir hins
opinbera til þess að banna dreifingu
á klámi eins og almenn hegningarlög
kveða nú á um. Sérstaklega bendir
nefndin á að óvissa gæti skapast um
viðurlög gegn dreifingu á barna-
klámi.
Þá telur nefndin að breytingar á
ákvæðinu um félagafrelsi kunni að
fela í sér takmarkanir á möguleikum
ríkisins til þess að grípa til ráðstaf-
ana til dæmis gegn skipulögðum
glæpasamtökum, þjóðernishreyfing-
um og öðrum félögum með ólöglegan
tilgang.
Nýting sólarljóss takmörkuð?
Notkun á hugtakinu „þjóðareign“
í 34. grein tillagna stjórnlagaráðs
sætir gagnrýni laganefndarinnar
enda sé það ekki skýrt og hafi verið
umdeilt. Þá gerir nefndin athuga-
semd við orðið „náttúrugæði“ í ann-
arri málsgrein ákvæðisins þar sem
hluti þess sem telst til auðlinda í
þjóðareign sé skilgreindur. Það
orðalag gæti gefið til kynna hvers
kyns gæði, jafnvel sólarljós eða and-
rúmsloft. Svo víðtæk skilgreining
gæti haft ófyrirséð áhrif, til dæmis
að nýting sólarljóss á Íslandi yrði
takmörkuð. Ekki sé ljóst hvort til-
gangur ákvæðisins sé svo víðtækur
en orðalagið verði að teljast var-
hugavert.
Tillögurnar þurfi að endurskoða
Ekki hægt að mæla með að samþykkja tillögur stjórnlagaráðs óbreyttar að mati laganefndar
Lögmannafélags Íslands Tillögurnar sagðar óskýrar og geta skapað réttaróvissu í ýmsum málefnum
Morgunblaðið/Ómar
Samstaða Tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá voru samþykktar
einhljóða af fulltrúum ráðsins. Kosið verður um þær á morgun.
Þegar utankjörfundaratkvæða-
greiðslu lauk í Laugardalshöll í
gærkvöldi höfðu um 10.300
manns á landsvísu kosið um til-
lögur stjórnlagaráðs, þar af um
6.800 hjá sýslumanninum í
Reykjavík. Eingöngu í gær kusu
nærri 2.000 manns í Laugar-
dalshöllinni. Af þessum ríflega
10 þúsund kjörseðlum höfðu
um 700 verið aðsendir, aðallega
frá útlöndum.
Í samanburði við þjóðar-
atkvæðagreiðsluna árið 2011
hafa aðeins færri kosið utan
kjörfundar nú.
Bergþóra Sigmundsdóttir,
kjörstjóri utankjörfundar-
atkvæðagreiðslu í Reykjavík,
segir sífellt fleiri nýta sér þann
rétt að kjósa utan kjörfundar.
Hægt verður að kjósa í Laugar-
dalshöll til kl. 22 í kvöld og frá
kl. 10-17 á morgun fyrir þá sem
búa utan höfuðborgarsvæðis.
10.300 búnir
að kjósa
ATKVÆÐAGREIÐSLAN
BÍLARAF
BÍLAVERKSTÆÐI
Bílaraf
www.bilaraf.is
Strandgötu 75 • 220 Hafnarfjörður • Sími 564 0400 • bilaraf.is
Allar almennar
bílaviðgerðir
Tímapantanir í síma 564 0400
Gott verð, góð þjónusta!
Startarar og alternatorar
í miklu úrvali