Morgunblaðið - 19.10.2012, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.10.2012, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2012 STUTTAR FRÉTTIR ● Liv Bergþórsdóttir hefur tekið við sem stjórnarformaður flugfélagsins Wow air. Þetta var samþykkt á stjórn- arfundi félagsins þann 20. september síðastliðinn, að því er fram kemur í gögnum sem voru send Fyr- irtækjaskrá í lok síðasta mánaðar. Liv, sem hefur gegnt starfi fram- kvæmdastjóra fjarskiptafyrirtækisins Nova undanfarin 5 ár, hefur setið í stjórn Wow air frá stofnun félagsins fyrr á þessu ári. Hún tekur við sem stjórn- arformaður af Skúla Mogensen, eig- anda Wow air, sem tók við starfi for- stjóra flugfélagsins fyrir skemmstu, auk þess sem hann mun áfram sitja í stjórn Wow air. Stjórnarformaður Wow Peningastefnunefnd Seðlabankans klofnaði í afstöðu sinni um vaxta- ákvörðun á síðasta fundi nefndarinn- ar fyrir tveimur vikum. Þetta kemur fram í fundargerð sem birt var á vef Seðlabankans í gærmorgun. Þrír nefndarmanna studdu tillögu seðla- bankastjóra um óbreytta vexti, en tveir töldu nauðsynlegt að hækka vextina um 0,25 prósentur. Í fundargerðinni segir meðal ann- ars að vegna hægs bata á vinnu- markaði og minni verðbólgu sé ekki tímabært að hækka vextina. „Þrír nefndarmenn studdu tillögu seðla- bankastjóra um óbreytta vexti. Töldu þeir hækkun vaxta ekki tíma- bæra að þessu sinni í ljósi vísbend- inga um veikari vöxt innlendrar eft- irspurnar en áður var reiknað með, hægs bata á vinnumarkaði, minni verðbólgu og snarprar aukningar að- haldsstigs peningastefnunnar á und- anförnum mánuðum. Gengi krón- unnar hefði að vísu veikst en það kæmi í framhaldi af hækkun á sum- armánuðum og óvissa væri um fram- haldið. Þá taldi einn þeirra sem studdu tillögu seðlabankastjóra að of skörp vaxtahækkun hefði neikvæð framboðsáhrif sem kæmi m.a. fram í auknum föstum kostnaði fyrir- tækja.“ Þeir nefndarmenn sem töldu ákjósanlegt að hækka vextina sögðu að hætta væri á veikara gengi krón- unnar og að það myndi ýta undir launaskrið og ýta á verðbólguna. „Tveir nefndarmenn greiddu at- kvæði gegn tillögu seðlabankastjóra og vildu að vextir yrðu hækkaðir um 0,25 prósentur. Töldu þeir hættu á að veikara gengi krónunnar yki launaþrýsting í útflutnings- og sam- keppnisgreinum og þar með hættu á annarrar umferðar áhrifum á verð- bólgu, þrátt fyrir að vísbendingar væru um hægari vöxt eftirspurnar. Verðbólga væri enn mikil og lang- tímaverðbólguvæntingar hefðu lítið breyst,“ segir m.a. í fundargerð nefndarinnar. Morgunblaðið/Ómar Klofningur Seðlabankastjóri og tveir aðrir ákváðu óbreytta vexti. Nefndin klofnaði í afstöðu sinni  Tveir vildu 0,25% vaxtahækkun Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, segir að orkuþörfin sé minniháttar í hinu stóra samhengi sem þarf til að knýja fyrirhugaða framleiðsluaukningu fyrirtækisins um 30-50 þúsund tonn á ári. Þetta muni ekki raska öðrum áformum, t.d að reisa álver í Helguvík, eða kalla á virkjanaframkvæmdir. Norðurál stefnir að því að ráðast í framkvæmdir sem auka framleiðslu- getu um 30-50 þúsund tonn á ári á Grundartanga, að því gefnu að tilskil- in leyfi fáist. Framleiðslugetan er nú 284 þúsund tonn á ársgrundvelli. Heildarfjárfestingin verður yfir tíu milljarðar á ári auk fjárfestingar móð- urfélags Norðuráls í rafskautsverk- miðju, og mun verkefnið taka fimm ár. Ragnar segir í samtali við Morgun- blaðið að það sé eftir að koma í ljós hve mikillar orku framleiðsluaukning- in krefst. Hann býst ekki við að þurfa að gera nýja samninga um orkukaup til að fyrirtækið geti tekist á við aukna framleiðslugetu. Ekki sé verið að ræsa ný ker, heldur sé t.d. verið að stækka rafskaut og horft sé til betri orkunýtingar. Spurður hvort um sé að ræða orku sem nýta átti til að knýja fyrirhugað álver í Helguvík sem Norðurál hyggst reisa á næsta ári, segir Ragnar það ekki vera. Orkan sem fari í stækk- unina á Grundatangi sé lítil í hinu stóra samhengi. Það sé til mikið af umframorku vegna þess að vöxtur á almennum markaði hafi verið minni og að afkastageta vatnsafls- og jarð- gufuvirkjana sé meiri en áætlað var. Ekki er búið að tryggja raforku fyrir Helguvík. „Við erum að vinna að því að hnýta lausa enda. Meginlínur HS Orku liggja fyrir,“ segir hann. Fyrirhugað álver í Helguvík mun auka hagvöxt í landinu, og reikna ASÍ og Íslandsbanki með því í sínum hag- spám. „Við spáum 3,4% hagvexti á næsta ári og erum þar að reikna með því að Helguvík komi inn af fullum þunga. En ef Helguvík hverfur úr myndinni má búast við að hagvöxt- urinn verði umtalsvert minni eða um 2,5%,“ sagði Ingólfur Bender hjá Ís- landsbanka í Morgunblaðinu á laug- ardaginn. Aukin álframleiðsla kallar á minniháttar viðbótarorku  Forstjóri Norðuráls segir að í hinu stóra samhengi sé orkuþörfin minniháttar Kemur í ljós Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, segir að það eigi eftir að koma í ljós hve mikillar orku framleiðsluaukningin krefst. Morgunblaðið/Ómar Helguvík eykur hagvöxt » Forstjóri Norðuráls segir að fyrirhuguð aukning á álfram- leiðslu um 30-50 þúsund tonn muni ekki raska öðrum áform- um, t.d. í Helguvík. » Greiningardeild Íslands- banka spáir því að hagvöxtur minnki í rúmlega 2,5% úr 3,4% á næsta ári ef ekki verði ráðist í framkvæmdir í Helgu- vík. » Ekki er búið að ganga frá samningum um orkukaup fyrir Helguvík. Unnið er að því að hnýta lausa enda, að sögn for- stjóra.                                          !"# $% " &'( )* '$* +,,-., +/0-11 +,2-+3 ,+-242 ,+-00 +5-0++ +3,-10 +-2.30 +5/-,+ +14-.3 +,,-0+ +/5-+. +,2-2 ,+-215 ,+-53. +5-011 +33-4. +-2.5, +5/-00 +14-55 ,,+-,0/. +,3 +/5-1, +,2-50 ,+-13+ ,+-5/5 +5-5,+ +33-.+ +-22,0 +/4-33 +1+-33 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á KORTIÐ GILDIR TIL 31. janúar 2013 – MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR MOGGAKLÚBBURINN Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða. Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á mbl.is/moggaklubburinn og fá tilboðin send í tölvupósti með því að skrá sig á mbl.is/postlisti Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér. FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT EÐA Í SÍMA 569 1100 33% AFSLÁTTUR Á GISTINGU FYRIR TVO Á HÓTEL GRÍMSBORGUM MOGGAKLÚBBUR Hótel Grímsborgir er staðsett á glæsi- legum stað við Sogið í Grímsnesi. Um 45. mín akstur er frá Reykjavík. Tveir gistimöguleikar eru í boði: Hægt er að bóka tilboðið allar gisti- nætur nema laugardaga á tímabilinu 17. október - 21. desember 2012 og frá 1. janúar - 15. mars 2013. Gefa þarf upp kennitölu áskrifanda og taka fram að um Moggaklúbbstilboð sé að ræða. Bókaðu á info@grimsborgir.com eða í síma 555 7878. • Gisting í 56 fm íbúð með tveimur svefn- herbergjum, stofu og baðherbergi, með sturtu. Fjórir geta bókað saman og deilt íbúð ef óskað er eftir því. • Tveggja manna hótelherbergi, með hjónarúmi og baðherbergi, með sturtu. Fullt verð: 29.600 kr. Moggaklúbbsverð: 19.900 kr. m/morgunverðarhlaðborði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.