Morgunblaðið - 05.10.2012, Síða 4
4 | MORGUNBLAÐIÐ
V
ið höfum miklar væntingar
til Dacia Duster og horf-
um vonandi fram á spenn-
andi tíma,“ segir Loftur
Ágústsson, markaðsstjóri
bílaumboðsins BL í samtali við
Morgunblaðið. BL hefur hafið sölu á
hinum fjórhjóladrifna Duster sem
hlotið hefur mjög
góðar móttökur í
Evrópu, ekki síst
í Frakklandi og
Þýskalandi, ekki
síst sakir hag-
stæðs verðs.
Sigurför í Evrópu
Dacia Duster
er smíðaður í
smiðjum Nissan/
Renault sam-
steypunnar í Rúmeníu. Hafa Dacia-
bílar farið sigurför um fjölmörg lönd
í Evrópu á undanförnum misserum,
ekki síst vegna hagstæðs verðs.
Dacia Duster mun kosta 3.990.000
krónur með dísilvél og fjórhjóladrifi.
„Ástæðan fyrir því að við erum
ekki byrjaðir fyrir löngu að flytja
þennan bíl inn er hrunið. Við höfum
um tveggja ára skeið átt í viðræðum
við Renault og Nissan um að fá að
selja hann. Á sama tíma vorum við
að koma Renault á koppinn hér og
þetta hefur bara tekið sinn tíma, að
koma öllu heim og saman,“ segir
Loftur.
Mjög spurt um ódýrari bíla
Spurður hvers vegna BL ráðist í
að bæta þessu nýja merki í umboða-
hóp sinn stóð ekki á svari. „Í fyrsta
lagi átti sér stað umræða hér innan-
húss um hvort þessi bíll væri að
standast væntingar. Það er hið
fyrsta við þurfum að gera upp við
okkur, er þetta vara sem við viljum
láta kenna okkur við. Og rannsóknir
okkar leiddu í ljós, að þessi bíll er að
gera sig, standast væntingar,“ segir
Loftur ennfremur.
Hjá BL var það viðhorf ríkjandi
að Dacia væru einfaldlega spennandi
bílar. „Svo er ekki framhjá því að
horfa, að við teljum að verðið sem
við getum boðið eigi eftir að falla í
góðan jarðveg. Við verðum vör við,
að það er mjög leitað eftir bílum sem
eru bæði hagkvæmir í rekstri og
kosta minna í upphafi. Og við eigum
engin útspil önnur með fjór-
hjóladrifsbíl sem kostar undir fjór-
um milljónum króna,“ segir Loftur.
Bætir við að reynsla fyrirtækisins af
dísilvélunum í Renault, eins og 1500-
vélinni sem verið hefur í Meg-
anbílnum, hafi mælt með því að
bjóða upp á Daciamerkið. Dusterinn
er með sömu vél sem er mjög eyðslu-
grönn.
„Okkur sýnist þetta gæti orðið
valkostur sem fólk vill skoða. Auð-
vitað þurfa neytendur að yfirstíga þá
hindrun að þetta er bíll sem engin
reynsla er af á Íslandi. En við getum
boðið hann á verði, með þriggja ára
ábyrgð, sem margir eru að bjóða
notaða bíla á. Og það er mjög sterkt
fyrir okkur að í öðrum löndum, eins
og Frakklandi, hefur þessi bíll farið
afar vel af stað. Þá var Dusterinn
sjöundi söluhæsti bíllinn til ein-
staklinga í Þýskalandi í sumar en
það er mjög kröfuharður markaður
og segir því sitt um bílinn.“
Sandero næstur á dagskrá
Loftur segist telja að í tilfelli Re-
nault og Dacia megi sjá við hlið-
stæður við framleiðslu hjá Volkswa-
gen og Skoda.
„Þar virðist um svipaða uppbygg-
ingu að ræða. Framleiðandinn segist
einungis nota íhluti sem notaðir hafa
verið með góðum árangri í öðrum
bílum. Hann kveðst og forðast að
vera með mjög tæknilegar útfærslur
og úrlausnir sem geta bilað og eru
mjög dýrar í upphafi og hækka bíla
mjög í verði. Skodinn er ofboðslega
vinsæll bíll hér á landi og með
margra ára forskot, en við væntum
þess að Duster höfði með svipuðum
hætti til fólks,“ segir Loftur.
Sandero er næstur
Aðrir bílar frá Dacia hafa notið mik-
illa vinsælda, eins og til dæmis Sand-
ero. Segir Loftur Ágústsson stefnu
BL að byrja með Duster og fá
reynslu á hann áður en næsta skref
sé stigið. „Það er ekki ólíklegt að
næsta vor, 2013, munum við taka
Sandero inn. Hann verður með nýju
boddíi og lofar góðu. Hann er næst-
ur á dagskrá hjá okkur.“
agas@mbl.is
Nýtt útspil með fjórhjóladrifi
Dacia Duster til Íslands.
Vinsæll bíll á einkar
góðu verði. Fjórar millj-
ónir kr. Talinn standast
væntingar markaðarins.
Hliðstæður við fram-
leiðslu hjá Volkswagen
og Skoda.
Kraftur Duster er vinsæll og ódýrar og því eru væntingar BL talsverðar.Einfalt Íburðurinn er lítill og fyrir vikið er bílinn mjög ódýr og góður kostur.
Morgunblaðið/Dacia
Óhætt er að segja að töggur sé í Dacia Duster. Bíllinn hefur farið sigurför víða um lönd og löngu tímabær á Íslandsmarkaði, enda góður við hérlendar aðstæður.
Dacia Duster
Eldsneyti Dísil
Eldsneytisnotkun
utanbæjar (l/100 km) 5
Eldsneytisnotkun
meðal (l/100 km) 5,3
Útblástursstuðull EURO-5
Fjöldi strokka 4
Hámarksafl kW EEC
(hestöfl DIN) 80 (109) 80 (110)
Hámarksafl við snúninga
á mín. (rpm) 4.000
Rúmtak (cm3) 1.461
Staðalbúnaður:
Stöðugleikastýring ESC
(Electronic Stability Control)
ABS hemlar
Loftpúði fyrir ökumann
Loftpúði fyrir farþega (hægt að
aftengja)
Gardínuloftpúðar fyrir höfuð
6-aðgerða aksturstölva: vega-
lengdir og eldsneytisnotkun
Útvarp með geislaspilara og 4
hátölurum og MP3 tengingu
Handfrjáls símabúnaður
Loftur
Ágústsson
Öflugir TUDOR High Tech
rafgeymar fyrir jeppa.