Morgunblaðið - 05.10.2012, Qupperneq 18
18 | MORGUNBLAÐIÐ
Meira í leiðinni
GERÐU BÍLINN
KLÁRAN FYRIR
VETURINN
FYRSTA FLOKKS VETRARDEKK Á FRÁBÆRU VERÐI
WWW.DEKK.IS
Á DEKKJAHÓTELI N1
BÝÐST ÞÉR AÐ
GEYMA DEKKIN
GEGN VÆGUGJALDI
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA N1:
Fellsmúli 440 1322 | Ægisíða 440 1320 | Bíldshöfði 440 1318
Réttarháls 440 1326 | Dalbraut Akranesi 440 1394
Langatangi Mosfellsbæ 440 1378 | Reykjavíkurvegur Hafnarfirði 440 1374
Grænásbraut Reykjanesbæ 440 1372
Tryggvabraut Akureyri 440 1438
Í
framleiðslu dekkja er þróunin
ör og stöðugar breytingar. Hjá
leiðandi framleiðendum eins og
Michelin er miklum fjármunum
varið til að auka öryggi,
minnka eldsneytiseyðslu og auka
þægindi og stöðugleika bifreiða.
Samkvæmt gæðakröfum Evrópu-
sambandsins þurfa dekk að standast
ákveðna staðla sem taka gildi nú í
nóvemberbyrjun,“ segir Dagur Ben-
ónýsson rekstrarstjóri þjón-
ustuverkstæða N1.
Átta verkstæði
Þjónustunet N1 nær til landsins alls
og á vegum fyrirtækisins eru til
dæmis rekin átta dekkjaverkstæði.
Þau eru öll gæðavottuð af Michelin
og aðeins örfá verkstæði í Evrópu
hafa skorað hærra en verkstæði N1
í þessari gæðaúttekt.
„Á verkstæðum N1 eru margir
starfsmenn með áratuga reynslu. Á
verkstæðum N1 er hægt að fá dekk-
in geymd, bílinn smurðan, gert við
bremsur og ýmsar aðrar viðgerðir.
Það er þó mismunandi eftir verk-
stæðum hve umfangsmiklum við-
gerðum við sinnum, en okkar styrk-
ur er sá að hafa aðgang að stærsta
varahlutalager landsins,“ segir Dag-
ur.
„Gott verkstæði í dag þarf að
bjóða faglega þjónustu og starfs-
menn með reynslu og góða vöru-
þekkingu. Það er meðal annars hluti
af þeim kröfum sem Michelin gerir
svo fyrirtæki fái gæðavottun. Bílar
eru orðnir mun flóknari en áður sem
kallar á sérhæfðari tækjakost við
meðhöndlun dekkja,“ segir Dagur.
Vakning fyrir umhverfisþáttum
Dekkjaframleiðendur sem N1 skipt-
ir við eru meðal annars Michelin,
sem er með höfuðstöðvar í Frakk-
landi og hefur í sínum röðum meira
en 6.000 starfsmenn sem helga sig
rannsóknum og þróun á dekkjum.
„Michelin ver mestum fjármunum
allra dekkjaframleiðenda í heimi til
þróunar á dekkjum. N1 er einnig
með umboð fyrir Cooper og Kumho.
Þegar ég byrjaði í bransanum 1978
þá voru nánast eingöngu nælondekk
á markaði og 12 til 15 stærðir pöss-
uðu á allan bílflota landsins,“ segir
Dagur og bætir við að í dag hlaupi
stærðir og gerðir undir venjulega
heimilisbíla á hundruðum.
„Mikil þróun hefur orðið í dekkj-
um; þar má helst nefna að heml-
unarvegalengd hefur styst, ásamt
því að stöðuleiki og grip hefur auk-
ist til mikilla muna svo sem í rign-
ingu og hálku. Einnig hefur orðið
vakning á síðustu árum í umhverf-
isþáttum dekkja. Michelin leggur
áherslu á að framleiða dekk sem
hafa minna rennslisviðnám þannig
að bílar eyði minna eldsneyti. Álag á
dekk í dag er margfalt á við það sem
var þegar ég hóf störf á þessum
vettvangi og þess vegna er mik-
ilvægt að velja dekk sem hentar
notkun bílsins.“
Betri dekk fækka slysum
Slysum hefur fækkað mikið á und-
anförnum árum. Hver er að þinni
hyggju fylgnin milli þess og að
dekkin séu betri?
„Það hefur klárlega mikið að
segja. Með betri dekkjum er heml-
unarvegalengd styttri, gripið meira
og stöðugleikinn sömuleiðis. Þá hef-
ur vitund og þekking fólks á mik-
ilvægi þess að vera á góðum dekkj-
um aukist til mikilla muna,“ segir
Dagur og heldur áfram:
„Dekkjavertíðin hefst svo fyrir al-
vöru þegar fyrstu snjókorn falla og
hálka kemur. Þetta hefur lítið
breyst á síðustu árum en þó eru
sumir fyrirhyggjusamir og vilja
vera komnir á vetrardekkin áður en
snjóar, sérstaklega þeir sem vilja
óneglanleg vetrardekk sem við bjóð-
um uppá í miklu úrvali.“
sbs@mbl.is
Mikilvægt að dekkin henti notkun bílsins
Rétta dekkið skiptir öllu,
segja menn hjá N1.
Stöðug þróun í fram-
leiðslunni. Hundruð
gerða undir heimilisbíl-
inn. Eyðslan minni og
öryggið meira.
Morgunblaðið/RAX
Dekkjamaður Dagur Benónýsson stjórnar þjónustverkstæðum N1. „Nánast eingöngu nælondekk og 12 til 15 stærðir pössuðu á allan bílflota landsins,“ segir Dagur.
Með betri dekkjum er
hemlunarvegalengd
styttri, gripið meira og
stöðugleikinn sömu-
leiðis. Þá hefur vitund
og þekking fólks á mik-
ilvægi þess að vera á
góðum dekkjum aukist
til mikilla muna
Við val á dekkjum ráðleggja
starfsmenn N1 fólki að velja rétt
dekk og í samræmi við notkun.
Þar getur margt spilað inn í.
Spurningarnar eða minnispunkt-
arnir sem leggja þarf til grund-
vallar eru meðal annars eft-
irtaldar og eftir svörunum má svo
velja dekkin
Hvers konar akstur?
Hvers konar vegir?
Hvers konar bíll?
Búseta?
Er bíllinn atvinnutæki?
Ætlar þú til dæmis að nota
dekkin allt árið?
Mikilvægir
minnis-
punktar
Hjólbörðum í dag fylgja með
álímdum miðum upplýsingar um
þrjá gæðastaðla. Þar eru upplýs-
ingar sem sýna gæði dekksins
varðandi hávaða, orkunotkun, og
grip í bleytu. Flestir stærri fram-
leiðendur vilja fá sýnda á mið-
anum fleiri staðla svo sem líftíma.
Þessir staðlar þurfa sömuleiðis
að uppfylla viðmið ESB en reglur
þess í dekkjamálum taka gildi í
byrjun næsta mánaðar.
Uppfylli þrjá
gæðastaðla