Morgunblaðið - 05.10.2012, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ | 23
Sími: 577 1313 | Tangarhöfða 13 | kistufell.com
• Vélaviðgerðir
• Vélavarahlutir
• Almennar
bílaviðgerðir
TANGARHÖFÐA 13
VÉLAVERKSTÆÐIÐ
allt á einum stað
Við hugsum um vélina
Fagmennska í 60 ár
Fá mál hafa
fengið eins
mikla almenna
umfjöllun í þjóð-
félaginu og
frumvarp til
nýrra umferð-
arlaga, sagði
Ögmundur Jón-
asson innanrík-
isráðherra þeg-
ar hann fylgdi
málinu úr hlaði á Alþingi á dög-
unum. Hann reifaði þar efnisatriði
almennt og sagði mikilvægt að úr
efniviðnum sem fyrir liggur yrðu til
lög sem tækju gildi um næstu ára-
mót. Slíkt sé tímabært, gildandi
lög hafi verið sett fyrir meira en
tuttugu árum og margt hafi breyst
síðan þá.
Sé horft til einstaka efnisatriða
þá eru heimildir Vegagerðar til eft-
irlits með akstri bíla, til farþega og
farmflutninga, yfir 3,5 tonnum
auknar skv. frumvarpinu. Er sömu-
leiðis gert er ráð fyrir heimildum
Vegagerðar til að leggja á stjórn-
valdssektir, í stað þess að lög-
reglan geri fólk sekir. Þetta varðar
eftirlit með aksturs- og hvíld-
artíma ökumanna, búnaði, stærð
og þyngd og hleðslu ökutækja.
Einnig er lagt til að Vegagerð og
sveitarfélagi í þéttbýli sé heimilt
að setja upp myndavélar vegna
umferðarlagabrota – og þannig
megi efla allt eftirlit.
sbs@mbl.is
G
ildissvið ákvæða um bann
við ölvunarakstri og
akstri undir áhrifum áv-
ana- og fíkniefna verða
rýmkuð og gerð skýrari.
Þetta er meðal tillagna í nýja um-
ferðarlagafrumvarpinu. Í dag er
leyfilegt áfengismagn í blóði öku-
manns 0,5‰ en fer niður í 0,2‰
komist frumvarpið óbreytt í gegn.
Þá skulu vímuefni alfarið mæld í
blóði en ekki þvagi, en slíkt hefur
verið gert jöfnum höndum í gegnum
tíðina, rétt eins og lögin bjóða.
Ölvun eykur líkurnar
„Í breytingunni felst sú afdrátt-
arlausa stefna yfirvalda að áfengi og
akstur vélknúinna ökutækja fari
ekki saman, segir í greinargerð í
frumvarpinu. Er vísað í skýrslu frá
ESB frá 2006 þar sem kemur fram
að þjóðir skuli stefna að því að hafa
refsimörk 0,5 prómill eða lægri.
Rannsóknir sýni að séu ökumenn
með 0,2-0,4 prómill í blóði aukist
slysahætta þrefalt.
„Ökumaður, sem er með 0,5‰
áfengismagn í blóði sínu, er almennt
150 sinnum líklegri til að lenda í
banaslysi en ef hann væri allsgáður
og er um 30 sinnum líklegri til að
verða fyrir alvarlegu líkamstjóni,“
segir í greinargerðinni. Þar segir að
skiptar skoðanir séu um það sem
kalla megi minniháttar áfengismagn
í blóði, það er undir hálfu prósentu-
stigi. Þó hafi verið sýnt fram á að
marktækur munur sé á ökuhæfni
þeirra hafa 0,2‰ áfengismagn í
blóði og svo þeirra sem aka edrú.
„Rannsóknir hafa sýnt fram á að
mjög lítið magn áfengis í blóði trufl-
ar ... og dregur úr almennri aksturs-
hæfni,“ segir í greinargerð.
Gildistíminn fimmtán ár
Það eru almenn sannindi að einföld
mál sem alla snerta leiða af sér fjör-
legar umræður og tilfinningaríkar.
Hér á landi hefur sú regla gilt að
bráðabirgðaökuskírteini, sem til
dæmis sautján ára ungmenni fá,
gilda eitt ár. Sé ökuferilinn á þeim
tímasnurðulaus fær hinn sami svo-
nefnd fullnaðarréttindi, sem gilda í
hálfa öld eða fram undir sjötugt.
Þessu á að breyta og eru Evrópu-
reglur lagðar til grundvallar. Nú
stendur sem sagt til að ökuskírteini
verði gefin út til fimmtán ára í senn.
Ætla má að ýmsir hafi sterkar
skoðanir á þessu og eins því að nokk-
uð verður hert að eldri ökumönnum.
Þannig fá þeir sem orðnir eru sex-
tugir sem endurnýja réttindi sín,
þau aðeins til tíu ára í senn. Þeir sem
orðnir eru 65 fá ökuskírteini með
fimm ára gildistíma, sjötugir í fjögur
ár og svo framvegis. Áttræðir og
eldri skuli endurnýja réttindi sín ár-
lega.
Tekjutenging til skoðunar
Meðal nýmæla í umferðarlaga-
frumvarpinu er sú tillaga að fjárhæð
sekta vegna brota á lögunum verði
að vissu marki tekjutengdar. Sak-
borningar sem eru með minna en
hálf önnur lágmarkslaun, eins og
þau eru skilgreind í kjarasamn-
ingum, geta ef frumvarpið verður að
lögum, fengið 25% afslátt af sekt-
arfjárhæð felldan niður.
Samkvæmt núverandi umferð-
arlögum gildir sú meginregla að slá
skal fjórðung af fjárhæð sektar ef
hún er greidd að fullu innan mán-
aðar. Nú verður hinum efnaminni
hins vegar gerð sektin bærilegri –
og þeir fá hana á hálfvirði ef svo má
að orði komast. Hugmyndin að
þessu er frá Ögmundi Jónassyni inn-
anríkisráðherra. Í Morgunblaðinu-
um sl. helgi fjallaði hann um þetta
frá ýmsum hliðum. „Þótt sekt sé
jafnhá í krónum talið ræðst refsi-
máttur hennar af fjárhag hins sekt-
aða,“ sagði ráðherrann í greininni og
kallar eftir umræðu um málið.
sbs@mbl.is
Efnaminni fái sektirnar á hálfvirði
Morgunblaðið/Ómar
Bílalest Skerpt er á ýmsum ákvæðum í frumvarpi til nýrra umferðarlaga. Gildistími
ökuleyfa verður skemmri en nú er og almennt verða kröfur til ökumanna auknar.
Ölvunarmörkin verða lækkuð, skv. frumvarpi til
nýrra umferðarlaga. Réttindin gildi skemur en áður.
Hert að hinum eldri. Sektarákvæði í endurskoðun
og ráðherra kallar eftir umræðu um málið.
Breytingar eru
tímabærar
Ögmundur
Jónasson