Morgunblaðið - 05.10.2012, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ | 31
Suðurhraun 2B | 210 Garðabær | Sími 544 8866 | info@isafoldtravel.is | www.isafoldtravel.is
Ævintýralegar jeppaferðir fyrir starfsmannafélög, við-
skiptavini fyrirtækja og aðra hópa. Landróverarnir
okkar eru allir á 38“ dekkjum og fullbúnir til fjalla-
ferða. Þið keyrið sjálf undir leiðsögn og upplifið
einstakt ferðalag með hæfilegri áskorun í bland.
Hálfur dagur, heill eða helgi..., hafið samband og
biðjið um tilboð.
Einnig
einstaklingsleiga.
Þrír dagar á verði
tveggja í vetur.
Spennandi starfsmannaferðir
keyrir!Þú
Icetrack ehf. - Umboðsaðili
STZ
mtdekk.is
28”-33”
Söluaðilar:
Hljóðlát og endingargóð
Allt útlit er fyrir að Datsun-bíllinn
sem Nissan er að endurvekja verði
seldur á aðeins um 3.000 dollara
þegar hann kemur á götuna í Ind-
landi, Indónesíu og Rússlandi árið
2014.
Þetta staðfestir forstjóri Renault-
Nissan, Carlos Ghosn, við banda-
ríska blaðið Wall Street Journal.
Blaðið kveðst hafa heimildir fyrir því
að Datsun-bíllinn billegi verði seldur
á bilinu 3-5 þúsund dollara eftir bún-
aði.
Bíllinn verður fábúinn að tækni-
búnaði og nútíma akstursþægindum
og ekki seldur í þróaðri löndum eins
og Evrópu og Bandaríkjunum vegna
strangra öryggisákvæða.
agas@mbl.is
Datsun á 370
þúsund
Annað árið í röð hefur
Volkswagen Jetta Sport
verið valinn besti bíllinn til
dráttar á hjólhýsum árið
2013. Það er svonefndur
The Caravan Club sem fyr-
ir útnefningunni stendur.
Engum öðrum bíl hefur
hlotnast þessi viðurkenn-
ing tvö ár í röð í 30 ára
sögu verðlaunanna. Auk
heildarverðlaunanna vann
Jetta einnig sinn stærð-
arflokk.
Tíu manna dómnefnd
lofaði bílinn fyrir viðmóts-
þýða og fágaða hönnun, notagildi og
mikla afkastagetu við drátt við ýmsar
aðstæður. Volkswagen Jetta Sport er
búinn 2ja lítra og 140 hesta dísilvél
og sex hraða DSG-gírkassa. Tuttugu
og þrír bílar voru teknir til prófana í
sömu braut áður en dómnefnd gerði
upp hug sinn.
sbs@mbl.is
Volkswagen Jetta 1,4 TSI Reynsluakstur
Dásamaður dráttarklár
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Þ
eir eru ófáir sem dreymir
um að spana á of-
ursportbíl. Nú þurfa karl-
menn og konur ekki leng-
ur að láta það stoppa sig
að eiga ekki olíulindir í Rússlandi
eða hafa tekið þátt í stofnun Fa-
cebook því víða úti í heimi er hægt
að leigja ofurbílana.
Meðal þeirra sem bjóða ofurbíla
er bílaleigukeðjan Hertz. Þeir bjóða
upp á ofurbíla bæði í Bretlandi og
eins í Flórída í Bandaríkjunum.
Vestanhafs er úrvalið takmarkað
við Lamborghini Gallardo og Ferr-
ari F430 Spider. Í Bretlandi er úr-
valið töluvert betra og hægt að
leigja Mercedes SLS, Maserati
Gran Cabrio, Ferrari 458 Italia og
Aston Martin DB9, svo aðeins séu
talin nokkur dæmi.
Allt að 200.000 kr dagurinn
Þeir sem ekki vilja lága og lipra of-
urbíla geta skoðað lúxusdrossíur
eins og Bentley Continental GTC
og meira að segja Rolls Royce
Phantom með öllu tilheyrandi.
Auðvitað kostar leigan á of-
ursportbíl eða lúxudrossíu meira en
dæmigerðum Golf. Að leigja Ferr-
ari 458 Italia kostar þannig frá 826
pundum á dag, eða um 160.000 kr.
á gengi dagsins í dag. McLaren
MP4-12C er enn dýrari, á 906 pund
fyrir daginn eða tæpar 180.000 kr.
Hins vegar kostar ekki meira en
427 pund að spana um á blæju
Bentley Continental, eða 84.000 kr.
Síðan þarf að ganga úr skugga
um að nóg sé af heimild á kred-
itkortinu því leggja þarf fram all-
hressilega tryggingargreiðslu. Fyr-
ir McLaren-kaggann nemur
tryggingin 5.000 pundum, eða hátt í
einni milljón króna, en 3.500 pund-
um fyrir Bentleyinn, um 700.000 kr.
Á Lotus í Lissabon?
Ef leiðin liggur annað en til Lond-
on eða Flórída má reyna að finna
sjálfstæðar lúxusbílaleigur. Fljótleg
leit á Google ætti að leiða í ljós úr-
valið. Kjörin geta jafnvel verið
betri en hjá Hertz og hægt að
semja um afslátt ef bíllinn er leigð-
ur í nokkra daga.
Vissara er að huga vel að trygg-
ingamálunum. Sum íslensk
greiðslukort bjóða upp á ókeypis
bílaleigutryggingu ef greitt er með
kortinu. Í kortaskilmálunum kann
þó að vera tekið fram að tryggingin
nær ekki yfir ofurbíla og lúxuskerr-
ur.
Þá er það yfirleitt regla að leigj-
andi ofurbíls þarf að hafa náð mun
hærri lágmarksaldri en gildir um
almennar leigur.
ai@mbl.is
Á Lamborghini
í sumarfríið?
Víða um heim er hægt að leigja lúxusbíla og
ofursportbíla og gera ferðalagið þannig enn
eftirminnilegra.
Aston Martin DB9
Ferrari 458 Italia
Mercedes-
Benz SLS
Þeir sem ekki vilja lága og
lipra ofurbíla geta skoðað
lúxusdrossíur eins og
Bentley Continental GTC
og meira að segja Rolls
Royce Phantom með öllu
tilheyrandi.