Morgunblaðið - 19.11.2012, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2012
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Það er engin ein leið til aðtakast á við sorg, en þóer ótal margt sem ersammannlegt í þeirri
upplifun að missa ástvin,“ segir
Anna Ingólfsdóttir sem sendi ný-
lega frá sér bókina Makalaust líf –
um ást og sorg, úrvinnslu og upp-
byggingu við makamissi. Þar deilir
Anna reynslu sinni af að missa
manninn sinn. „Hann dó úr
krabbameini þegar ég var 35 ára
og á meðan hann var veikur og
fyrst eftir að hann dó, hélt ég dag-
bækur. Bókin Makalaust líf bygg-
ist á þeim dagbókarskrifum. Ég
skráði upplifun mína niður á með-
an þetta var að gerast en það
hjálpaði mér mikið í úrvinnslu
sorgarinnar. Það liðu þó mörg ár
þar til ég fór að huga að því fyrir
alvöru að gera eitthvað með þetta.
Það eru fimmtán ár frá því að
maðurinn minn dó.“
En Anna er ekki eini höf-
undur bókarinnar, Guðfinna Eydal
sálfræðingur skrifar um það hvað
Það er ávallt þess
virði að elska
Anna Ingólfsdóttir byggir bókina Makalaust líf, um ást og sorg, úrvinnslu og upp-
byggingu við makamissi, á dagbókarskrifum frá því hún missti manninn sinn.
Morgunblaðið/RAX
Bjartsýn Anna horfir björtum augum til framtíðar og leggur áherslu á að þó að lífið taki, þá gefi lífið líka.
Það passar vel við heimasíðu sem
snýr að heimilinu og daglegu lífi að
hún kallist www.thenest.com eða
hreiðrið. Á vefsíðunni má finna
uppskriftir að mat og drykk, góð
ráð er varða gæludýrin á heimilinu
og ýmislegt er lítur að heilsu og
heilbrigði. Sparnaðarráð er líka að
finna á thenest.com og er nú ágætt
að gá hvort maður geti ekki hag-
rætt dálítið og fundið hagkvæmar
lausnir fyrir komandi jólamánuð.
Góð lífsstílssíða með ýmsum góð-
um hugmyndum og ráðum sem má
nýta sér í hinu daglega lífi. Á heim-
ilinu er t.d. kósí að gera fínt og
hreint á þessum árstíma. Til að
skoða suma efnisþætti síðunnar
þarf að skrá sig inn en til þess þarf
bara netfang og lykilorð svo það er
fremur einfalt.
Vefsíðan www.thenest.com
Morgunblaðið/Golli
Fallegt Nú er rétti tíminn til að gera kósí heimafyrir og jafnvel að skreyta smá.
Kósí hreiðurgerð að vetri
Komin er út bókin Konur eiga orðið
allan ársins hring en í ár standa að
þessari dagatalsbók 55 konur. Bókin
er hugsuð til að skrifa hjá sér það
sem gera þarf í dagsins önn en í
henni má einnig finna ýmiss konar
spakmæli og vangaveltur frá íslensk-
um konum á aldrinum 9-84 ára. Um
ritstjórn sér Kristín Birgisdóttir en
um hönnun, teikningar og ljósmyndir
sér Myrra Leifsdóttir. Bókin er gefin
út af Sölku. Hún er rauð að lit og fal-
lega skreytt og ætti því að lífga vel
upp á skrifborðið um leið og fólk get-
ur haldið góðu skipulagi.
Endilega…
…haldið góðu
skipulagi
Skrautleg Konur eiga orðið.
Flestir verða fyrir einhverskonar erfiðri reynslu í lífinu.Slík reynsla getur verið allt
frá niðurlægingu í barnæsku, höfn-
un og eigin mistökum, en einnig
stærri áföll eins og ofbeldi, alvarleg
slys eða hamfarir. Atburðir hafa
mismikil áhrif á okkur en yfirleitt
vinnur fólk sjálfkrafa úr erfiðri
reynslu. Öll höfum við innbyggt
kerfi sem vinnur úr upplýsingum úr
umhverfinu og lagar að okkar fyrri
reynslu og þekkingu. Þegar við
verðum aftur á móti fyrir einhverju
sem er mjög yfirþyrmandi eða lend-
um í endurteknum áföllum getur
verið að ekki náist að vinna fyllilega
úr þeim.
Kerfið ræður ekki við að vinna
með allar þær tilfinningar, hugsanir
og þau líkamlegu viðbrögð sem
kvikna og þar af leiðandi vistast at-
burðurinn ekki á aðlögunarhæfan
máta. Minningar um atburðinn eru
því óunnar og trufla okkar daglega
líf mánuðum og jafnvel áratugum
seinna. Fortíðin festist því í nútíð-
inni sem þýðir að viðbrögð okkar í
dag litast af óunnum minningum og
valda okkur sársauka.
EMDR (Eye movement desensi-
tization and reprocessing) er árang-
ursrík meðferð við afleiðingum
áfalla. Meðferðin snýst um að vinna
úr erfiðum minningum sem tengjast
erfiðri reynslu okkar af lífinu. Í
meðferðinni er unnið með fortíð, nú-
tíð og framtíð. Farið er í gegnum
óunnar minningar á kerfisbundin
hátt, meðal annars með því að skoða
þau viðhorf, tilfinningar og líkamleg
óþægindi sem ekki hefur náðst að
vinna úr frá því áfallið átti sér stað.
Þegar fortíðin hefur verið gerð upp
þá er unnið með það sem kallar
fram svipaða líðan í nútíðinni, eða
svokallaðar kveikjur. Að því loknu
eru mögulegar framtíðaraðstæður
skoðaðar og lögð drög að viðeigandi
viðbrögðum okkar í þeim aðstæðum.
Í úrvinnslunni eru notaðar augn-
hreyfingar eða annað tvíhliða áreiti
sem er sérstakt við EMDR. Tvíhliða
áreiti virðist auðvelda úrvinnslu,
mögulega vegna þess að því svipar
til þess ástands sem ríkir í REM
svefni. Með úrvinnslu breytast við-
horf og tilfinningar tengdar atburð-
inum og hann fer að öðlast aðra
merkingu fyrir okkur. Atburðurinn
og upplýsingar tengdar honum fær-
ast til og kerfið klárar að vinna úr
Er fortíðin
föst í þinni nútíð?
Heilsustöðin
Aðalbjörg Heiður
Björgvinsdóttir
sálfræðingur
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Pöntunarsími: 535 1300
TA
K
T
IK
/3
8
7
4
/
2
4
o
k
t1
2
Draghálsi 4 - 110 Reykajvík
Sími: 535 1300 - Fax: 535 1305 - verslun@verslun.is
T
ilb
o
ð
ið
g
ild
ir
í3
0
d
ag
a
fr
á
b
ir
ti
n
g
u
au
g
lý
si
n
g
ar
Tilboð
mánað
arins
25%
afslátt
ur
Afsláttur
á öllum
upphengibúnaði
Fataslár
RAUF
APAN
ILL
Til á lager:
Raufapanill er fáanlegur í hvítum
plötum í stærðinni
120 x 240 og 240 x 120 cm.
Einnig fáanlegur, tilbúinn fyrir
sprautun.
Smellulistar:
Snap-in smellulista er auðvelt að
skipta um og fáanlegir í mörgum
litum.
Upphengilausnir mikið úrval