Morgunblaðið - 19.11.2012, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 19.11.2012, Blaðsíða 31
lýsingastofunni og starfar nú hjá þýðingastofunni Skjali. Skáldverk Ágústar Ritverk Ágústs eru Eftirlýst augnablik, með myndskreytingum eftir Jón Óskar Sólnes, ljóð, 1987; Síðasti bíllinn, smásögur, 1988; Í síðasta sinn, smásögur, 1995; Hringstiginn, smásögur, 1999; Sum- arið 1970, smásögur, 2001; Tvisvar á ævinni, smásögur, 2004; Hliðarspor, skáldsaga, 2007, og Stolnar stundir, skáldsaga, 2011. Auk þess er hann nú með skáldsögu í smíðum. Ýmsar sögur Ágústs hafa birst í Tímariti Máls og menningar og verið lesnar í útvarp. Nokkrar þeirra hafa unnið til verðlauna en þekktust verð- launasagnanna er Hverfa út í heim- inn sem hlaut 1. verðlaun í smá- sagnasamkeppni Strik.is 2001. Ein saga eftir Ágúst, Afraksturinn, var þýdd á þýsku og birt í þýska safnrit- inu Wortlaut Island sem kom út 2000 og geymir ljóð og smásögur eft- ir helstu samtímahöfunda Íslands. Þá má geta ritdóms um smá- sagnasafnið Hringstigann í alþjóð- lega bókmenntatímaritinu World Literature Today 2000. Hleypur í Vesturbænum Ágúst lærði ungur að lesa og hef- ur verið sílesandi síðan, einkum bók- menntir, skáldsögur, smásögur og ljóð, sem og heimspeki og sögu. Hann er afar eindreginn KR- ingur, mætir á alla heimaleiki og flesta útlileiki meistaraflokks karla í knattspyrnu á sumrin og er reiðubú- inn í alvarlegar og djúpar rökræður um stöðuna í deildinni, knattspyrnu almennt og bókmenntir, hvar og hvenær sem er. Þá er Ágúst töluverður skokkari, hleypur mikið um Vesturbæinn ásamt konu sinni og hefur tekið þátt í fjölda götuhlaupa í Reykjavík. Fjölskylda Ágúst kvæntist 11.6. 1994 Erlu Kjartansdóttur, f. 8.4. 1965, við- skiptafræðingi og deildarstjóra hjá Íslandspósti. Foreldrar hennar: Jón- ína Hannesdóttir húsmóðir og Kjartan Björnsson, stöðvarstjóri Pósts og síma á Vopnafirði, en þau eru bæði látin. Börn Ágústs og Erlu eru Freyja Ágústsdóttir, f. 17.12. 1994; Kjartan Ágústsson, f. 2.11. 1999. Alsystkini Ágústs: Aðalbjörn Jón Sverrisson, f. 3.7. 1958, bifreiðastjóri í Reykjavík; Ragnheiður Jónína Sverrisdóttur, f. 11.2. 1957, há- skólanemi í Reykjavík; Sæmundur Pétur Sverrisson, f. 14.4. 1965, d. 9.4. 1974. Fóstursystir Ágústs: Þorbjörg Steinarsdóttir, f. 18.1. 1967, graf- ískur hönnuður, búsett í Reykjavík. Foreldar: Sverrir Aðalbjörnsson, f. 11.3. 1936, d. 21.11. 2010, sjómaður í Reykjavík, og Freyja Jónsdóttir, f. 5.10. 1932, rithöfundur. Úr frændgarði Ágústs Borgþórs Sverrissonar Ágúst Borgþór Sverrisson Steinunn Steinsdóttir bróðurdóttir Maríu Vigfúsdóttur, langömmu Péturs Sigurðssonar, tónskálds og söngstj. Ólafur Sæmundsson b. á Dúki í Skagafirði Jón Kristinn Ólafsson b. á Efra-Vatnshorni í Húnavatnssýslu Jónína Guðbjörg Björnsdóttir húsfr. á Efra-Vatnshorni Sigríður Freyja Jónsdóttir blaðam. í Rvík Kristín Bjarnadóttir húsfr. á Bessastöðum Björn Jónsson gullsm. á Bessastöðum á Hegg- staðanesi, af Guðlaugsstaðaætt Ágústa Bjarnadóttir húsfr. á Súgandafirði og í Rvík Guðjón Jóhannsson skósm. og bátasm. frá Súgandafirði Ragnheiður Nordahl húsfr. í Kópavogi og á Úlfarsfelli í Mosfellssveit Aðalbjörn Pétursson gullsm. á Sigluf. og í Rvík Sverrir Aðalbjörnsson sjóm. í Rvík Ingibjörg Jónsdóttir frá Arnarbæli í Dölum Pétur Pétursson hákarlaform. frá Melum Sæmundur Ólafsson organisti Kristín Steinarsdóttir húsfr. á Ögmundarstöðum Jóhanna Steinsdóttir húsfr. á Litlu-Seylu í Skagafirði Sigurður Skagfield söngvari Margeir Jónsson b. á Ögmundarstöðum Björn L. Jónsson hreppstj. í Glaumbæ Jón Björnsson tónskáld og söngstj. Margrét Eybjörg Margeirsdóttir fyrrv. borgarfulltrúi Morgunblaðið/Sigurgeir S. Afmælisbarnið Ágúst Borgþór. ÍSLENDINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2012 Jóhann fæddist í Vík í Mýrdal19.11. 1902, sonur ÓlafsArinbjarnarsonar, verslunar- stjóra í Vík og útgerðarmanns í Vestmannaeyjum, og k.h., Sigríðar Eyþórsdóttur húsfreyju. Foreldrar Jóhanns voru Arinbjörn Ólafsson, bóndi og útgerðarmaður í Tjarnar- koti í Innri-Njarðvík, og Kristín Björnsdóttir, f. Beck. Sigríður var systir Ásgeirs, föður Ásgeirs forseta og Ragnars ráðunautar, föður Úlfs læknis. Systir Sigríðar var Jóhanna, móðir Eyþórs Gunnarssonar, háls-, nef- og eyrnalæknis, föður Gunnars fréttamanns, föður Eyþórs tónlistar- manns. Sigríður var dóttir Eyþórs Felixsonar, kaupmanns í Reykjavík, og Kristínar Grímsdóttur húsfreyju. Jóhann lauk stúdentsprófi frá MR 1923, embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1927 og öðlaðist hrl.-réttindi 1968. Eiginkona Jóhanns var Ragna Haraldsdóttir húsfreyja og eign- uðust þau fimm börn. Jóhann var lögfræðingur í Vest- mannaeyjum, settur bæjarstjóri þar 1929 og kosinn bæjarstjóri 1930. Hann var settur sýslumaður í Skagafirði vegna forfalla 1939 og var bæjarfógeti á Ísafirði og sýslumaður Ísafjarðarsýslu 1943-68. Hann flutti þá til Reykjavíkur og fékkst þar við lögmannsstörf og sagnfræði. Jóhann var mikill bókamaður og feikilega fróður um hin margvíslegu efni. Hann var sannkallaður menn- ingarforkólfur í Eyjum og á Ísafirði, einn af stofnendum knattspyrnu- félagsins Týs í Eyjum og fyrsti for- maður þess, einn af stofnendum Tónlistarfélags Ísfirðinga og fyrsti formaður þess, hvatamaður að stofn- un Héraðsskjalasafns Ísfirðinga og stjórnarformaður Byggðasafns Ís- firðinga og aðalhvatamaður að stofnun Sögufélags Ísfirðinga. Eftir Jóhann liggur mikið safn af sagnfræðilegum þáttum og greinum í blöðum og tímaritum, margt býsna athyglisvert og skemmtilegt. Þar er ekki síst að finna söguþætti er lúta að Vestmannaeyjum og Ísafirði. Jóhann lést 1.9. 1979. Merkir Íslendingar Jóhann Gunnar Ólafsson 90 ára Stefán Karl Linnet 85 ára Margrét Guðvaldsdóttir Sigríður Eyjólfsdóttir Trausti Thorberg Óskarss. 80 ára Inga Skarphéðinsdóttir Jens Olsen Sigursteinn Sigursteinsson Þorsteinn Gíslason 75 ára Gerður Stefanía Elimarsd. Ingvi Rúnar Einarsson Jakobína S. Guðmundsd. Óskar Jakob Sigurðsson Tryggvi Berg Jónsson 70 ára Anna Guðmundsdóttir Elínborg Ingólfsdóttir Elín Káradóttir Elísabet Kristjánsdóttir Emilía Ásta Júlíusdóttir Jósefína Ásgeirsdóttir 60 ára Dóra Steinsdóttir Egill I. Hermannsson Gréta Vigfúsdóttir Guðmundur Einarsson Hreinn Kristófersson Jón Kristinn Guðmundsson Kristín Jóna Guðmundsd. Rúnar Svavar Svavarsson Sigríður Haraldsdóttir Sigrún Jóhannsdóttir Sigurrós Jónasdóttir Sævar Ólafsson Þorgeir Hauksson Þuríður Guðjónsdóttir Örn Sigurðsson 50 ára Brynja Birgisdóttir Eyþór Guðlaugsson Helga Hjaltested Kristín Sigríður Trausta- dóttir Leszek Tadeusz Step- niewski Oddur Haraldsson Ragnar Hólm Ragnarsson Valgeir Ólafsson Vigdís Vilhjálmsdóttir Wlodzimierz Stefan Utratny 40 ára Anna Benediktsson Anna Szablowska Björn Ólafur Árnason Eiríkur Daði Hrólfsson Elsa Roxana Yllescas Lopez Helgi Teitur Helgason Hjalti Helgason Karen Jenný Heiðarsdóttir Renata Gaciarska 30 ára Alfred Kamil Gwara Árni Páll Þorbjörnsson Beata Kamila Czech Beatriz Ramirez Martinez Brian Douglas Gerke Davíð Þór Arnarsson Egill Kári Helgason Guðmundur Stefán Mart- insson Guðný Hrefna Sverrisdóttir Ragnheiður Þórdís Jóns- dóttir Sigrún Helga Baldursdóttir Sigrún Helga Sigurðardóttir Til hamingju með daginn 30 ára Guðmundur ólst upp í Vestmannaeyjum. Hann lauk BS-prófi í sál- fræði frá HÍ 2010 og vinn- ur nú hjá fyrirtækinu Kos- mos og Kaos. Systkini: Karitas, f. 1997, og Hersir, f. 1997. Foreldrar: Haraldur Har- aldsson, f. 1962, starfs- maður við frystihús í Eyj- um, og Sæunn Helena Guðmundsdóttir, f. 1960, starfsm. hjá Vest- mannaeyjabæ. Guðmundur Daði Haraldsson 50 ára Þorsteinn stund- aði nám í Virginíu og er kerfisfræðingur. Maki: Guðrún Bryndís Einarsdóttir, f. 1960, bók- ari. Börn: Hjálmar Örn Leifs- son, f. 1983 (fóstursonur) Garðar, f. 1986; Bjarki, f. 1993, og Brynjar, f. 1993. Foreldrar: Garðar Þor- steinsson, f. 1910, d. 1984, stórkaupmaður, og Jóhanna T. Ólafsdóttir, f. 1919, húsfreyja. Þorsteinn Garðarsson 40 ára Lilja er með eigin rekstur á Selfossi. Maki: Skúli Franz Hjalta- son, f. 1972, framkvstj. tæknisviðs hjá Íslenska gámafélaginu. Dætur: Alma R. Franz- dóttir, f. 1999, og Eva M. Franzdóttir, f. 2010. Foreldrar: Halldór H. Haf- steinsson, f. 1939, d. 2011, bílamálari, og G. Lilja Hannibalsdóttir, f. 1940, hjúkrunarfræðingur á Selfossi. Lilja Jóna Halldórsdóttir mbl.is/islendingar islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Þar sem gæðagleraugu kosta minna ReykjavíkuRveguR 22 • S. 565 5970 • SjonaRholl.iS SJÓNARHÓLL gleraugu á verði fyrir ALLA Mikið úrval umgjarða• fisléttar og sterkar• flott hönnun• litríkar• Margverðlaunuð frönsk gæðagler verð uMgjarða 4.900 9.900 14.900 19.900 24.900

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.