Morgunblaðið - 19.11.2012, Qupperneq 40
MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 324. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. Segir Vilhjálm hafa krafist gjafar
2. Varað við tónleikum með Brown
3. Lýst eftir 15 ára stúlku
4. Ákvað að skila gjöfinni til Eirar
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Kristinn Sigmundsson mun á nýju
ári fara með hlutverk Landgrave í
óperunni Tannhäuser eftir Richard
Wagner, fyrst hjá Nýja þjóðleikhúsinu
í Tókýó og síðan hjá Rínaróperunni í
Frakklandi. Með vorinu syngur hann
síðan í Don Carlos eftir Verdi í Óper-
unni í Toulouse í Frakklandi.
Morgunblaðið/Kristinn
Kristinn syngur í
Tókýó á nýju ári
Þrjár skáldkon-
ur lesa upp á
Amtsbókasafninu
á Akureyri í nóv-
ember. Steinunn
Sigurðardóttir les
í dag úr bók sinni
Fyrir Lísu, Úlfhild-
ur Dagsdóttir
kemur 21. nóv. og
fjallar um vampírur og birtingar-
myndir þeirra í bókmenntum og kvik-
myndum og Margrét Blöndal les 26.
nóv. úr bók sinni um Elly Vilhjálms.
Allir viðburðirnir hefjast kl. 17.
Upplestur á Amts-
bókasafni í nóvember
Tökur hefjast upp úr áramótum á
næstu kvikmynd Baldvins Z, Vonar-
stræti. Handritið skrifuðu Baldvin og
Birgir Örn Steinarsson, jafnan nefnd-
ur Biggi í Maus. Kvikmyndin er
dramatísk og ætluð full-
orðnum. Síðasta kvik-
mynd Baldvins Z, Órói,
hefur hlotið fjölda
verðlauna á erlendum
kvikmyndahátíðum,
sem besta mynd, fyrir
bestan leik og
besta handrit.
Vonarstræti í tökur
upp úr áramótum
Á þriðjudag Norðaustanátt, víða á bilinu 10-15 m/s, en hvassari
við SA-ströndina. Bjartviðri á S- og V-landi, annars dálítil él.
Á miðvikudag Norðaustanátt, víða 10-18 m/s. Snjókoma eða él
um landið N- og A-vert, en slydda við ströndina. Heldur hlýnandi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 8-15 og bjartviðri á S- og V-
landi, dálítil él annars staðar. Bætir í vind í kvöld. Frost 0 til 7 stig.
VEÐUR
Kristján Helgi Carrasco er
karatekóngur Íslands eftir
þrefaldan sigur á Íslands-
mótinu í kumite á laugar-
daginn. „Ég var búinn að
bíða í heilt ár eftir þessu.
Þetta var mjög sætt,“
sagði Kristján við Morgun-
blaðið. Telma Rut Frí-
mannsdóttir varði Íslands-
meistaratitilinn í
kvennaflokki og þurfti að
hafa minna fyrir því en áð-
ur. »2
Kristján Helgi er
karatekóngurinn
Arnór Atlason leikur ekki meira með
Flensburg í Þýskalandi og spilar ekki
með íslenska landsliðinu í handknatt-
leik í heimsmeistarakeppninni á
Spáni í janúar. Hann sleit hásin í fæti
í leik Flensburg og
Hamburg í
Meistaradeild
Evrópu í gær og
verður frá
keppni fram á
næsta sumar.
„Þetta er mikill
missir fyrir
landsliðið en
fyrst og fremst er
þetta gríðarlega
svekkjandi fyrir
Arnór sjálfan,“
segir Aron Krist-
jánsson landsliðs-
þjálfari. »1
Áfall fyrir Arnór Atlason
og íslenska landsliðið
Knattspyrnumennirnir Ari Freyr
Skúlason og Veigar Páll Gunnarsson
hugsa sér til hreyfings eftir að lið
þeirra féllu úr efstu deildum í Svíþjóð
og Noregi. Ari Freyr segir að hann
yfirgefi örugglega lið Sundsvall en
Veigar Páll fundar með forráðamönn-
um Stabæk sem vilja halda honum í
sínum röðum. Annars kemur hann
væntanlega heim í Stjörnuna. »1
Hugsa sér til hreyfings
eftir fall liða sinna
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Það er nóg að gera hjá ullarvinnsl-
unni Ístex á þessum árstíma. Nú er
rúningstími hjá sauðfjárbændum og
ullin af íslensku sauðkindinni
streymir í ullarþvottastöð Ístex á
Blönduósi. Þar hefur hún fyrst við-
komu áður en hún er send í Mos-
fellsbæ þar sem hún er spunnin í
band í spunaverksmiðjunni.
Guðjón Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Ístex, segir mikinn
annatíma að hefjast. Á Blönduósi er
vinnslan árstíðabundin. Þvotturinn
fer á fullt í nóvember og er unnið á
vöktum, tuttugu tíma á sólarhring,
fram í júní. „Bændur haustrýja
flestir og senda okkur ullina og þá
keyrum við nánast allan sólarhring-
inn til að koma ullinni sem fyrst í
gegn. Við reynum að vera búin að
þvo alla ull sem til fellur í landinu
fyrir lok júní,“ segir Guðjón. Ístex
tekur við tæpum 1.000 tonnum af
óhreinni ull ár hvert og er eini band-
framleiðandinn á Íslandi. Þegar
þvottastöðin er í gangi starfa 50
manns hjá fyrirtækinu, 11 á Blöndu-
ósi og 39 í Mosfellsbæ þar sem er
líka unnið á tveimur vöktum á sólar-
hring til að halda í við eftirspurnina.
Stóraukin sala á prjónabandi
Guðjón segir að salan á lopa og
prjónabandi hafi stóraukist jafnt og
þétt síðustu ár, eftir að prjónaæði
skall á landann. Ullin er misjöfn að
gæðum og sú besta fer í lopann en
lakari ullin, sem fellur í annan flokk,
er mestöll seld til Bret-
lands þar sem hún fer
í framleiðslu á gólf-
teppabandi. „Áður en
lopasalan jókst svona
mikið framleiddum við
töluvert af gólfteppa-
bandi en nú önnum við
varla eftirspurn með
prjónabandið og lopann,“
segir Guðjón. Hann bætir við að
bændur séu mjög meðvitaðir um að
reyna að skila inn góðri ull.
„Við erum ekki búin að fá mikið af
ull úr haustrúningnum ennþá en ég
hugsa að óveðrið sem gerði í sept-
ember á Norðurlandi eigi eftir að
hafa töluverð áhrif á gæðin núna, að
ullin verði þófnari og blakkari. En
ég er að vona að við fáum nóg af
fyrsta flokks ull.“
Ullin úr haustrúningnum er fal-
legust og best í lopann en bændur
rýja aftur í mars eða apríl og þá er
svokallað snoð tekið af kindunum
sem voru haustrúnar. Snoðið fer
beint í 2. flokk, enda ullarhárin stutt
í snoðinu og ekki sérlega góð til
vinnslu á gæðabandi að sögn Guð-
jóns.
Annatími í ullarvinnslunni
Íslenska ullin
þvegin og spunnin
í band hjá Ístex
Morgunblaðið/Golli
Spunaverksmiðja Guðjón Kristinsson, framkvæmdastjóri Ístex, við nýja sjálfvirka framleiðslu og pökkunarlínu sem
verið var að taka í notkun í ullarvinnslunni. Vélin tekur m.a. af hespunum, vindur yfir á dokkur og pakkar þeim inn.
Hjá Ístex er ullin ekki aðeins unnin
í band því þar eru líka framleidd
ullarteppi. Þá eru þau með prjóna-
hönnuði á sínum snærum sem þau
kaupa hönnun af og gefa út
prjónabækurnar Lopa.
Ístex stendur fyrir
Íslenskur textíliðn-
aður. Fyrirtækið hef-
ur starfað frá árinu
1991. „Álafoss og
Gefjun á Akureyri
voru sameinuð 1987 og rekin undir
nafninu Álafoss til 1991 en þá fór
það í gjaldþrot. Við fjórir starfs-
menn ásamt sauðfjárbændum og
þeirra samtökum stofnuðum þá Ís-
tex og keyptum þrotabú Álafoss af
Landsbankanum. Starfsmenn eiga
tæpan helming í félaginu og sauð-
fjárbændur og þeirra samtök tæp-
an helming og síðan eru það nokk-
ur einstök fyrirtæki sem eiga lítinn
hluta,“ segir Guðjón.
Ullarteppi og prjónabækur
ÍSLENSKUR TEXTÍLIÐNAÐUR