Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2012, Síða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2012, Síða 15
val rithöfundur fengist til að skrifa um hjónaband þeirra Jóhannesar Kjarvals. Næst þegar ég kom til Kaupmannahafnar hafði Sveinn undirbúið fund okkar Tove og hún vissi erindi mitt. Ég bankaði upp á hjá henni og til dyra kom björt hefðarkona sem bauð upp á kaffi og kökur. Þarna sátum við í nokkrar klukkustundir og hún tal- aði afar hlýlega og með mikilli virðingu um Jóhannes og samband þeirra. Eftir því sem á viðtalið leið varð mér æ ljósara að hún myndi ekki vilja skrifa neitt um þetta samband. Hún sagði: „Hugur hans var allur í listinni. Við urðum að skilja.“ Þegar ég kvaddi hana með virktum áttaði ég mig á því að ég hafði aldrei borið upp erindið.“ Óður rithöfundur Hverjir eru þér minnisstæðastir af þeim sem þú hefur unnið með? „Á þessum 70 árum sem ég hef verið á vinnumarkaði hefur mér alltaf þótt gaman í vinnunni og hef hlakkað til hvers dags. Kynni mín af bókum, bókmenntaheimi og höf- undum hafa verið afar gefandi. Á þeim áratugum sem ég hef verið í bókaútgáfu hef ég haft marga sam- starfsmenn en tveir standa upp úr, vinir mínir í meira en hálfa öld. Annars vegar Þorsteinn skáld frá Hamri, öðlingur og stórskáld sem hefur síðustu fimmtíu árin lesið prófarkir af svo að segja öllum þeim bókum sem ég hef gefið út. Hins vegar Sigurbjörn Einarsson biskup. Vinátta okkar stóð í 55 ár og ég gaf út eftir hann tíu bækur.“ Hefurðu sem útgefandi aldrei lent í vandræðum í samskiptum við rithöfunda? „Það var ekki alltaf létt að hafna handriti rithöfunda. Það er sérstök kúnst að gera það og bókaútgef- endur vita að þar ber að fara var- lega og tala kurteislega. Það tel ég mig alla tíð hafa gert. Samt varð ég einu sinni hræddur því rithöf- undurinn varð óður þegar ég hafn- aði handriti hans og krafði mig svara og útskýringa. Öldurnar lægði að lokum og við skildum sæmilega sáttir.“ Þú ert búinn að vera lengi að. Ertu að hugsa um að hætta? „Við erum fjölskyldufyrirtæki og það hefur fallið í minn hlut að stjórna bókaútgáfunni í þessi 60 ár. Ég er orðinn 87 ára. Er ég að hætta? Sennilega. Eigandinn og forstjórinn hafa átt langt eintal en ekki komist að niðurstöðu.“ Þú ert bókaútgefandi en lestu mikið? „Nú hef ég orðið rýmri tíma en áður til að lesa. Ég les mikið af ljóðum og segi: Eru það ekki for- réttindi að Íslendingar skuli eiga skáld eins og Hannes Pétursson, Þorstein frá Hamri, Gerði Kristn- ýju og Gyrði Elíasson? Núna er ég lagstur í þrjá erlenda höfunda: Walt Whitman, höfuðskáld Banda- ríkjanna, og tvo spænskuskrifandi, ljúflinginn Garcia Lorca og Pablo Neruda sem er snúnari en mikið skáld. Ég uni mér vel meðal skáld- jöfra.“ Morgunblaðið/Golli 11.11. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 Arion banki býður nú kaupleigu og bílalán til að fjármagna bílakaup. Viðskiptavinir í Vildarþjónustu njóta hagstæðra kjara og geta sparað sér töluverða fjármuni. AÐILD AÐ FÍB Viðskiptavinir sem fjármagna bílakaup sín hjá Arion banka fá ársaðild að Félagi íslenskra bifreiðaeigenda. Aðildin felur m.a. í sér neyðarþjónustu allan sólarhringinn, öflugt afsláttarkerfi og lögfræði- og tækniráðgjöf um allt sem lýtur að bílnum. Á arionbanki.is finnur þú reiknivél sem sýnir með einföldum hætti muninn á þeim valkostum sem í boði eru. Arion bílafjármögnun auðveldar þér að eignast og reka bílinn þinn á hagkvæman hátt. HAGKVÆM BÍLAFJÁRMÖGNUN 4% MINNI eldsneytiskostnaður með réttum loftþrýstingi í dekkjunum H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA 1 2 -1 9 8 8

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.