Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2012, Síða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2012, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.11. 2012 Matur og drykkir * „Ég vil að þeir líti út fyrir að veraeinfaldir, en þeir eru ekkert endi-lega einfaldir en þurfa virkilega að líta út fyrir það. Ég vil að maturinn sé rosalega ferskur og lifandi. Það er mat- urinn sem ég væri til í að borða á hverjum degi.“ G leðin skein af andliti Bjarna Siguróla Jakobssonar matreiðslumanns, þegar blaðamaður hitti hann á Slippbarnum á dögunum og hann er sjálfsöryggið uppmálað. Bjarni vann nýlega titilinn „matreiðslumaður ársins“ 2012 eftir keppni við 13 aðra matreiðslumenn og Sunnudagsblaðið vildi fræðast meira um þennan unga og metnaðarfulla Íslending. Bjarni fæddist í Danmörku árið 1988 og ólst upp á Húsavík til 18 ára aldurs. „Ég fór á samning á VOX á Hilton Hóteli og lærði mína fræði þar frá 2006 til 2009 og vann þar svo í eitt ár í viðbót út árið 2010.“ Það ár tók hann þátt í matreiðslukeppninni Bocuse d’or sem aðstoðarmaður, en hún er ein sú stærsta í heiminum. „Ég held að ég sé búinn að keppa í flestum einstaklingskeppnum sem í boði eru í heiminum,“ sagði Bjarni. Hann á jafnvel von á að taka sjálfur næsta sumar þátt í Bocuse d’or. „Það er rosa stór ákvörðun að fá að taka þátt í þeirri keppni og leggja það á sig. Þetta er ekki eitthvað sem maður ákveður með tveggja mánaða fyr- irvara.“ Eftir veruna á VOX hélt Bjarni utan til Danmerkur þar sem hann vann meðal annars með einum besta matreiðslumanni heims á veitingastaðnum Geranium. Hann vann einnig á Henne Kirkeby Kro, sem var valinn besti veitingastaður Norðurlanda 2011. „Þetta var eitt og hálft ár í það heila og var tími sem ég nýtti til að kynna mér aðra veitingastaði. Vinna með mismunandi fólki og læra alveg helling á stuttum tíma,“ segir Bjarni og að dvöl sín í Danmörku hafa hjálpað sér mikið og átt stóran þátt í því að hann hampi nú þessum titli. „Það vantaði ekki metnaðinn í mig áður en ég fór út. Ég vissi vel af því að ég væri efnilegur en ég fór út virkilega til þess að „mastera“ sjálfan mig og vinna með allra bestu matreiðslumönnum Danmerkur. Ég vissi svolítið mikið hvað mig langaði til að læra og sjá. Þess vegna var ég mikið að ferðast á milli staða og kynnast þessu.“ Bjarni útbjó þrjá rétti sem hann gefur lesendum uppskriftir að (fyrir fjóra). Réttirnir eru jafnframt allir á matseðli Slippbarsins. Uppskriftin að salatinu sem hann útbjó með- an ljósmyndari fylgdist með honum að störfum fæst þó ekki uppgefin. Það var athyglisvert að fylgjast með Bjarna setja eftirréttinn saman. „Ég vil að þeir líti út fyrir að vera einfaldir, en þeir eru ekkert endilega einfaldir en þurfa virkilega að líta út fyrir það. Ég vil að maturinn sé rosalega ferskur og lifandi. Það er maturinn sem ég væri til í að borða á hverjum degi,“ segir Bjarni. Hann keppti í byrjun september í keppninni Norden Challange sem snýst um ný- norræna matreiðslu. „Skemmtilegasta keppni sem hægt er að taka þátt í og gríðarlegur heiður að fá að kynna Ísland í þeirri keppni. Ég lenti í öðru sæti. Það var næstum því jafn mikill sigur og hérna á Íslandi þar sem ég var að keppa í miklu erfiðari keppni. Fyrir mig varð ég að vinna þessa keppni á Íslandi í framhaldinu,“ segir Bjarni að lokum. BJARNI SIGURÓLI JAKOBSSON ÆTLAÐI Í TÓNLIST EN ENDAÐI Í MATREIÐSLU OG ER ORÐINN EINN BESTI MATREIÐSLUMAÐUR LANDSINS EINUNGIS 24 ÁRA AÐ ALDRI. Texti: Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is Ljósmyndir: Ómar Óskarsson omar@mbl.is Lærði af þeim allra bestu MATREIÐSLUMAÐUR ÁRSINS 2012 Djúpsteiktur sm og chili ai 200 g smokkfiskur 250 g tempura-hveiti 200 g kolsýrt vatn 100 g majónes 1geiri hvítlaukur 1/2 stk. chili 1/4 tsk. chiliduft 2 skvettur tabasco-sósa 1stk. lime salt Djúpsteikingarpottur með ol 1. Djúpsteikingarolían er hitu 2. Smokkfiskurinn er brjóskh inn til í 5 mm þykka hringi og 3. Næst er 50 g af tempura-hv smokkfiskinn þannig að hann 4. Restinni af tempura er blan og hrært kekkjalaust saman o salti. 800 g nautaribeye 16 stk. kartöflusmælki 4 stórir vorlaukar 8 perlulaukar 100 g majónes 25 g steinselja 10 g fáfnisgras (estragon) 10 g eplaedik 200 g grísk jógúrt 15 g svört piparkorn 1 msk. dijon-sinnep rifsber sítrónutimjan vínberjasteinaolía og salt 1. Ristið piparkornin á meðalh 1 mín. og myljið vel í kryddkvö við gríska jógúrtið ásamt sinne með salti. 2. Blandið majónesi, eplaediki, isgrasi saman í skál og maukið sprota. 3. Skolið kartöflurnar því næst íu og salti, bakið við 200°C í 15 helminga. Grillað na grilluðu

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.