Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2012, Síða 38
*Föt og fylgihlutir Elínrós Líndal hjá ELLA er með öðruvísi sýn á viðskiptalífið og tískuheiminn »40
F
atahönnuðurinn Guðmundur Jörundsson frum-
sýndi nýverið fyrstu herralínuna frá glænýju
fatamerki, JÖR by Guðmundur Jörundsson.
Guðmundur er jafnframt þekktur sem yf-
irhönnuður hjá fatamerkinu Kormáki & Skildi. Nýja
merkið er í eigu Guðmundar og Gunnars Arnar Pet-
ersen. Upphaflega höfðu þeir ætlað að vinna saman að
því að koma Kormáks & Skjaldar-merkinu víðar og
ætlaði Gunnar Örn að vinna að viðskiptahliðinni en
Guðmundur að hönnuninni sem fyrr. „Við vorum búnir
að vera að ræða við Kormák og Skjöld í nokkurn tíma
en þegar kom að því að gera samninga kom í ljós að
við höfðum ekki alveg sömu hugmyndir um hver stefn-
an ætti að vera. Þeir voru ekki alveg tilbúnir í þá
stækkun sem við höfðum í huga. Lausnin var sú að
stofna nýtt merki sem gæti fylgt þeirri stefnu sem við
vildum fara,“ segir Guðmundur og bætir við að allir
séu mjög sáttir við þessa lausn. Kormákur & Skjöldur
munu þá halda sig á hefðbundnari veiðilendum á með-
an JÖR verður vettvangur til tilrauna og til þess að
fara víðara. „Stefnan er að breikka JÖR meira,“ segir
hönnuðurinn.
Hvaðan kemur innblásturinn fyrir þessa nýju línu?
„Hann kemur úr mörgum áttum. Ég var til dæmis
að skoða hefðbundinn klæðnað gyðinga og presta og
fékk innblástur þaðan. Svo var ég mikið að skoða
kristalla og rósir, klisjur og hefðir,“ segir hann en
til dæmis eru jakkafötin
hér til vinstri með krist-
allamynstri. „Hug-
myndin var sú að
skoða allt það falleg-
asta sem til er í heim-
inum,“ segir Guðmundur
en heiti vor- og sumarlínu
JÖR 2013 ber nafnið
JEWLIA og vísar bæði
til gyðinga og gimsteina.
Línan er nokkuð fjöl-
breytt, bæði er þarna að
finna aðsniðin þrískipt
jakkaföt, jakka, vesti og buxur og líka afslappaðari tví-
hneppt jakkaföt. „Ég hef alltaf verið mikið fyrir tví-
hneppt,“ segir hann.
Ennfremur eru mörg jakkaföt í línunni úr hör, sem
eru léttari á sumrin og henta líka á Íslandi. „Ég er til
dæmis í hörfötum núna en er bara í föðurlandi undir.“
Fötin verða seld í Herrafataverzlun Kormáks og
Skjaldar við Laugaveg og eru væntanleg í mars/apríl.
Stefnan er að koma JÖR sem víðast og eru Guð-
mundur og Gunnar að vinna sem stendur að því að
fara út að kynna haustlínu JÖR 2013 í janúar, vonandi
í Kaupmannahöfn. „Þetta gerðist allt rosalega hratt,
við erum að vinna í þessu á fullu núna.“
Stafurinn er ómissandi fylgihlutur. Þrískipt og hefðbundin jakkaföt. Suðrænt og seiðandi í laxableiku.
NÝTT ÍSLENSKT HERRAFATAMERKI
Gimsteinar
og gyðingar
FATAHÖNNUÐURINN GUÐMUNDUR JÖRUNDSSON FRUMSÝNDI NÝVERIÐ
FYRSTU HERRALÍNUNA FRÁ GLÆNÝJU FATAMERKI SÍNU SEM NEFNIST JÖR.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Hönnuðurinn sjálfur,
Guðmundur Jörundsson.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Í anda hefðbundins gyðingaklæðnaðar.
Með
kristalla-
mynstri.
Lj
ós
m
yn
di
r/
In
gv
ar
H
ög
ni
R
ag
na
rs
so
n
Þessi
eru góð
í sólinni.