Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2012, Blaðsíða 39
11.11. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
Á L E I Ð T I L Ú T L A N D A
OPTICAL STUDIO
FRÍHÖFN LEIFSSTÖÐ
Verslaðu á hagstæðara verði í okkar fullbúnu
gleraugnaverslun á fríhafnarsvæðinu í Leifsstöð
Ábyrgðar- og þjónustuaðilar:
Optical Studio Smáralind og Optical Studio Hafnargötu, Keflavík
Þegar Michelle Obama og bóndinn fluttu í Hvíta húsið ákvað húnstrax að fara sína eigin leið í klæðaburði. Hún hefði auðveld-lega getað farið örugga leið og klæðst virðulegum „óspennandi“
fötum en hún ákvað að vera hún sjálf. Hún hefði líka getað farið
„skinku-leiðina“ og dottið í óviðeigandi gellugír og hún hefði líka getað
tekið litagleðina út í öfgar og orðið eins og löngu týnda systir Línu
Langsokks. Einhvern veginn náði hún þó að laða fram það besta, vera
smart og klæðast litum án þess að það yrði vandræðalegt.
Hún ákvað að klæðast ekki bara fatnaði eftir hátískuhönnuði heldur
blanda saman ódýrari merkjum við þau fínni og fá þannig lipra og
fágaða heildarmynd. Sem gamall stílisti sá ég strax að hún þekkir lík-
ama sinn vel og veit hvað fer honum best.
Það er ekki hægt að segja að frú Obama sé þvengmjó. Hún er bara
venjuleg kona með venjuleg þykk læri og mjúkan rass (sem er alls ekki
neikvætt heldur sexí). Vandamálið með þykk læri og mjúkan rass er að
það er erfitt að fela það nema að klæðast kjólum allan ársins hring. Nú
rekur örugglega einhver upp stór augu því það hefur örugglega enginn
tekið eftir þykku lærunum og mjúka rassinum. Það er vegna þess að frú
Obama klæðir þetta alltaf af sér með rétt sniðnum fötum.
Hún gerir líka annað, notar smjörklípuaðferðina, og beinir athyglinni
að vel þjálfuðum og tónuðum handleggjum og mjóu mitti. „First“ er
undantekningarlaust í ermalausum kjólum sem eru þröngir um mitt-
ið. Til að ýkja mittislínuna notar hún gjarnan þunnt og lekkert belti.
Beltið dregur athyglina að mittinu og lengir fótleggina. Í byrjun árs
2011 fékk „first“ nýjan stílista, Meredith Koop, og bjuggust margir við
algerri breytingu en svo varð ekki. Fatastíllinn slípaðist enn meira til og
í dag slást hönnuðir um að klæða forsetafrúna.
Frú Obama er svolítið eins og íslenskar konur í
laginu eða perulaga. Hvernig væri að hvíla víðu
kjólana og leggings-buxurnar og fara að klæð-
ast vel sniðnum kjólum í anda „first“ og setja
belti í mittið? Er lífið ekki til þess að fá sem
mest út úr því, alla daga ársins allan ársins
hring? martamaria@mbl.is
Frú Obama 2008, áður en ofur-
stílistinn kom til sögunnar.
Smjörklípuaðferð
Michelle Obama
Í skærbleikri
dragt sem fer
henni vel.
Óvenjubreitt
belti miðað
við stílinn.
Einkennisbún-
ingur Obama,
berir handleggir
og belti í mittið.
Í kjól frá
Michael Kors
á kosninga-
kvöldi.