Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2012, Blaðsíða 41
Elínrós Líndal tók þátt í fjör-legum nýsköpunarviðburði,Iceland Innovation UnConfe-
rence, sem fram fór um síðustu helgi.
Landsbankinn stóð fyrir viðburðinum
í samstarfi við Háskóla Íslands og
MassTLC.
Leiðbeinendur á ráðstefnunni
veittu sprotafyrirtækjum meðal ann-
ars einkaviðtöl og deildu af sinni
reynslu en Elínrós hefur farsællega
rekið hönnunarfyrirtækið ELLU.
„Ráðstefnan var mjög áhugaverð
og vel að henni staðið. Á ráðstefnum
sem þessum eru kannski ekki svo
mörg fyrirtæki eins og ELLA, því við
tilheyrum svokallaðri „Lean Startup“
hreyfingu sem er ný af nálinni. Í
Lean Startup snýst allt um að þróa
vöruna með tilliti til samfélagsins; að
hlusta á þarfir þess og læra af því.
Ekki er lagt upp úr að byrj-
unarkostnaður sé mikill heldur vex
fyrirtækið lífrænt. Við spyrjum;
Hvað getum við gert fyrir samfélagið
í stað þess að spyrja hvað samfélagið
getur gert fyrir okkur,“ segir Elínrós.
Elínrós bætir við að fyrir hana sem
frumkvöðul sé þetta það eina sem
virki. Tilgangslaust sé að eyða tím-
anum í eitthvað sem enginn skilur né
vill kaupa. Hún vilji búa til verðmæti
fyrir samfélagið. „Hvar annars staðar
á að vinna hugmynd en í samfélagi
sem elur þig, skilur og jafnvel treyst-
ir. Ég reyni að vera opin og hlusta.
Ég tek sem dæmi að ef við-
skiptavinur kemur inn í búðina og
segist vera að leita að ákveðnum túr-
kísbláum lit þá bið ég hann jafnvel að
koma með litaprufu. Ég hengi hana
upp á vegg, get auðvitað ekki lofað
neinu, en lít ekki framhjá því að það
er kona í samfélaginu sem er búin að
vera að leita að þessum lit ógurlega
lengi. Við segjum ekki konum hvern-
ig þær eigi að vera heldur hlustum á
þær og þjónustum.“
Elínrós er líka hluti af hreyfing-
unni sem kallast Slowfashion. Sam-
félagsleg ábyrgð skiptir þar miklu, í
tilfelli Elínrósar er það til dæmis
nálgun að fataefni; uppruna þeirra og
gæðum. „Það kom skemmtilega á
óvart að þetta var ekki erfiður róður
því það er farið að skipta fólk máli
hvernig framkoma fyrirtækja er í
heiminum. Að lokum má segja að það
hefur komið mér skemmtilega á óvart
að framlög frá ELLA til baráttu gegn
ofbeldi gegn konum er að vekja at-
hygli erlendis. Ég veit til
þess að glærur um fyrirtækið hafa
verið notaðar á fundum hjá Styrkt-
arsjóði Sameinuðu þjóðanna til að af-
nema ofbeldi gegn konum. Þannig að
ég get klárlega mælt með því að ný-
sköpunarfyritæki sé með skýra sam-
félagslega ábyrgð í stefnumótun sinni
allt frá byrjun.
EKKI MÖRG FYRIRTÆKI EINS OG ELLA
Vinnum
fyrir samfélagið
Elínrós Líndal.
Framboð og eftirspurn eftir tísku-
fatnaði í anda þriðja áratugarins
hefur rokið upp í tískuverslunum í
Bretlandi á sama tíma og þriðja
sería Downton Abbey, þáttarað-
arinnar vinsælu, var sýnd þar á dög-
unum. Gerist hún á þriðja áratugn-
um sem jafnan er kenndur við
„Roaring twenties“. Flapper-kjólar
með kögri, töff blússur með
blúndukrögum, víð þægileg snið og
skraut á borð við perlur og fjaðrir
hafa allt rokið upp úr öllu valdi,
segir á vef Daily Mail.
Þá fara herrarnir ekki varhluta af
sömu bylgju en kaupmenn merkja
m.a. aukna sölu á vel sniðnum
tweed-jökkum í anda sama tíma.
Tíska í anda Downton Abbey
11.11. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
DÖMU&HERRA SMÁRALIND/HERRA KRINGLAN
FACEBOOK.COM/SELECTEDICELAND
Full verslun af
FALLEGUM FATNAÐI
Eins og öll almennileg og nútímaleg
tískublöð heldur eitt það þekktasta,
breska Vogue, úti facebooksíðu.
Aðdáendur Vogue sem gætu hugsað
sér að deila fatastíl sínum með les-
endum um allan heim ættu að íhuga
að senda ljósmynd af sér til blaðsins
því daglega eru myndir valdar út og
birtar á facebooksíðu blaðsins.
Tölvupósturinn sem senda skal á
er voguetiw@condenast.co.uk en
myndirnar eiga fyrst og fremst að
endurspegla hversdagslegan klæða-
burð.
Sendu stílinn þinn til Vogue
Vogue birtir daglega myndir af
smörtustu lesendum sínum.