Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2012, Side 51
Flókin og löng atburðarás lá að baki inn-rásinni í sendiráðið í nóvember 1979.Stuðningur Bandaríkjanna við Mohamm-
ad Reza Pahlavi, sjah af Íran, hafði magnað
upp óvild almennings í garð vestræna risa-
veldisins. Sjahinn hafði gengið hart fram í að
nútímavæða landið og að mati trúarleiðtoga
gert lítið úr sjía-menningararfi þjóðarinnar.
Margt verkaði saman til að fella Mohammad
Reza í ársbyrjun 1979 og hafa stjórn-
málaskýrendur m.a. bent á að niðursveifla í
olíuverði hafi veiklað getu ríkisins til að við-
halda þeirri uppbyggingu og framförum sem
hafði verið lofað og haldið höfðu lands-
mönnum góðum.
Árásin á sendiráðið var skipulögð af hópi
námsmanna og segja heimildir að upphaflega
hafi ekki annað staðið til en að ná athygli
heimsbyggðarinnar með mótmælum á lóð
sendiráðsins, eða í hæsta lagi halda gíslunum
ekki lengur en í nokkra daga. Þegar á hólm-
inn var komið reyndist Ayatollah Khomeini,
nú æðsti leiðtogi landsins, styðja aðgerðir
námsmannanna og fór því sem fór.
Námsmennirnir kröfðust þess m.a. að
Bandaríkin bæðust afsökunar á afskiptum sín-
um af innanríkismálum Írans og að fryst-
ingum á írönskum eignum í BNA yrði aflétt.
Af 66 gíslum var þrettán manns, allt konum
og svörtum Bandaríkjamönnum, sleppt nokkr-
um dögum eftir innrásina í sendiráðið. Fjór-
tánda gíslinum var sleppt í júlí 1980 þegar
hann veiktist alvarlega.
Carter Bandaríkjaforseti hafnaði öllum
kröfum og í apríl 1980 sendi hann herinn af
stað til að frelsa gíslana. Aðgerð arnarkló
misheppnaðist algjörlega. Átta þyrlur voru
sendar af stað og gekk mjög illa að komast á
leiðarenda. Aðgerðin var blásin af á miðri
leið, en á bakaleiðinni skullu saman ein af
þyrlunum og Herkúles-flutningavél, með þeim
afleiðingum að bæði loftförin eyðilögðust og
átta hermenn létu lífið.
Þótti þetta mikil niðurlæging fyrir Banda-
ríkin og er talið hafa átt stóran þátt í að Ro-
nald Reagan sigraði Jimmy Carter í kosn-
ingum í nóvember sama ár.
Gíslatökunni lauk með Alsír-sáttmálanum.
Stjórnvöld í Alsír höfðu milligöngu um sátt
milli bandarískra og íranskra stjórnvalda og
var sáttmálinn undirritaður skömmu eftir að
Regan tók við embætti. Fól samkomulagið í
sér, auk frelsunar gíslanna 52, afnám við-
skiptahindrana, afnám eignafrystinga og lög-
mæta úrlausn ýmissa ágreiningsmála milli
þjóðanna.
Umfjöllun úr Morgun-
blaðinu frá 23.nóvember
1980 þegar gíslarnir
höfðu verið í haldi í rúmt
ár. 52 af 66 gíslum var
haldið í 444 daga.
ÓTRÚLEG ATBURÐARÁS ÞEGAR 66 GÍSLAR VORU TEKNIR Í ÍRAN
Bandarísku þjóðinni
haldið í gíslingu
ÁHRIF GÍSLATÖKUNNAR Í SENDIRÁÐINU Í TEHERAN Á BANDARÍSKT SAMFÉLAG
VORU MIKIL OG SEGJA MÁ AÐ ALLRI ÞJÓÐINNI HAFI VERIÐ HALDIÐ FANGINNI
Ben Affleck og Bryan
Cranston í hlutverkum
sínum á augnabliki í
myndinni þar sem ótrú-
leg björgunaraðgerðin
fær grænt ljós.
Affleck segist ekki hafa
getað staðist að taka
að sér aðalhlutverkið.
Ljósmyndir/Claire Folger
Mikillar nákvæmni er gætt í myndinni og
leikararnir sláandi líkir fyrirmyndum sínum.
11.11. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51
Handrit Argo heldur mikilli
tryggð við sögulegar stað-
reyndir. Ben Affleck segir það
vitaskuld þannig að þeir sem
upplifðu atburðina hafi oft
ólíkar sögur að segja og mis-
jafna sýn á atburðarásina, en
sagan sem birtist í myndinni er
ekki ýkt eða bjöguð svo
nokkru nemi. „Á mælikvarða
Hollywood erum við að segja
frá hlutunum alveg eins og
þeir gerðust. Við bættum að-
eins við ákveðnum atriðum til
að auka ögn á spennuna, en í
öllum megindráttum gerðust
atburðirnir árið 1980 á þann
hátt sem myndin sýnir,“ segir
hann.
„Ef eitthvað er þá þurftum
við að fella burt enn flóknari
og ótrúlegri hluti úr atburða-
rásinni, eins og t.d. aðkomu
kanadískra stjórnvalda að
björguninni. Kanadíska rík-
isstjórnin aðstoðaði við björg-
unina með því að útbúa
„fölsk“ kanadísk vegabréf
handa hópnum, og þurfti til
þess að breyta lögum landsins
með mikilli leynd. Það munaði
líka minnstu að fréttir sem
flettu ofan af björguninni röt-
uðu í fjölmiðla á röngum tíma
en í ljósi þeirra hagsmuna sem
voru í húfi fengust fjölmiðlar
með vitneskju um málið til að
ritskoða sjálfa sig.“
ARGO
Sagan
sögð af
nákvæmni