Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2012, Blaðsíða 53
11.11. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53
Sýningin Þvert yfir Græn-
landsjökul 1912-1913
verður opnuð í dag á Veggn-
um í Myndasal Þjóðminja-
safnsins. Á sýningunni eru myndir
sem teknar voru í leiðangri þar sem
Grænlandsjökull var þveraður.
2
Tvær sýningar af Gullregni
verða í Borgarleikhúsinu um
helgina. Ragnar Bragason
kvikmyndagerðarmaður
þreytir með þessu verki frumraun
sína á leiksviði en hann er bæði höf-
undur og leikstjóri verksins. Mugison
semur tónlistina við verkið.
4
BÍÓ:DOX stendur fyrir
heimildarmyndahátíð í Bíó
Paradís dagana 9.-15. nóv-
ember. Þema hátíðarinnar er
list en alls verða fimm heimildar-
myndir sýndar á hátíðinni sem allar
eiga það sameiginlegt að gefa innsýn í
líf listamanna
5
Styrktartónleikar fyrir mun-
aðarlaus börn í A-Kongó
verða haldnir í Fríkirkjunni í
Hafnarfirði á sunnudag kl.
16. Fram koma Garðar Thór Cortes,
Páll Rósinkranz, Stefán Helgi Stef-
ánsson, Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir,
Helgi Már Hannesson, Krystyna
Cortes og Ólafur H. Ólafsson.
Tónlistarfólkið gefur vinnu sína.
3
Guðni Tómasson listfræðingur
tekur þátt í gestaspjalli um
listamanninn Erró á sunnudag
kl. 15 í Hafnarhúsi Listasafns
Reykjavíkur. Erró fyrir alla
er yfirskrift viðburðarins. Guðni fékk
að skyggnast inn í líf og list Errós fyrir
um ári þegar hann heimsótti vinnu-
stofu listamannsins í París.
1
VIÐBURÐIR HELGARINNAR
Helga verður fyrst og fremst að fá hrós fyrir þessa velgengni.Hún er svo dugleg og leggur svo mikið á sig fyrir þessa sýn-ingu. Hún hefur nú þegar lært sýninguna á fjórum tungu-
málum,“ segir Charlotte Böving meðhöfundur og leikstjóri sýning-
arinnar um Helgu Arnalds sem er bæði höfundurinn og flytjandinn.
Skrímslið litla systir mín fjallar um ungan dreng og þær sterku til-
finningar barna sem fylgja þeim viðburði að eignast lítið systkini.
Drengurinn kemst fljótt að því að litla systir er ekk-
ert venjulegt barn heldur skrímsli sem ætlar að éta
mömmu þeirra upp til agna. Hann leggur þá í æv-
intýralegt ferðalag um skuggalega skóga og dimmar
drekaslóðir og lærir á ferðalagi sínu að elska systur
sína. Frásögnin er í höndum Helgu Arnalds sem not-
ar svartan penna og hvítan pappír til að gæða sýn-
inguna lífi.
Sýningin var fyrst frumsýnd í Norræna húsinu í
byrjun árs og hlaut Grímuverðlaunin sem besta
barnaleiksýning ársins 2012. Þessi óvenjulega sýning hefur farið víða
og m.a. verið sýnd á barnaleiklistarhátíðinni Spring Festival í Dan-
mörku. Nú er stefnan tekin á Sviðslistamessuna Cinars í Montreal í
Kanada sem hefst 12. nóvember. „Sýningin er svo heil og einlæg og
svo lyftir rosalega falleg tónlist Eivörar Pálsdóttur henni upp. Hún er
full af myndlist þannig að leikhústungumálið er svo allt öðruvísi en það
sem ég hef séð áður og hún fjallar um efni sem eiginlega allir þekkja,“
segir Charlotte þegar hún er innt eftir því hvort hún kunni skýringu á
þessum góðu viðtökum.
Þrátt fyrir að Skrímslið sé á flakki heimshorna á milli gefst Íslend-
ingum nú aftur tækifæri að sjá þessa sýningu þar sem hún er sýnd í
Norræna húsinu frá 9. nóvember til 2. desember. Helga Arnalds þarf
að vera iðin við tungumálaskipti því að það stendur líka til að fara með
sýninguna til Færeyja á næstunni. „Mér finnst við búnar að búa til
leikhúsperlu sem á sér bjarta framtíð út um allan heim. Það er jafnvel
kominn upp sá möguleiki að sýningin fari alla leið til Tasmaníu og nú
er líka fullt af hugmyndum á lofti um þessa litla sýningu sem á örugg-
lega eftir að fara víðar,“ segir Charlotte.
SKRÍMSLIÐ LITLA SYSTIR MÍN TIL KANADA
Öðruvísi leikhústungumál
BARNASÝNINGIN SKRÍMSLIÐ LITLA SYSTIR MÍN HEFUR
HLOTIÐ FÁDÆMA GÓÐAR MÓTTÖKUR FRÁ UPPHAFI
OG ER EKKERT LÁT Á VELGENGNINNI
Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is
Pappírinn lifnar við í höndunum á Helgu Arnalds.
Morgunblaðið/Kristinn
Charlotte
Böving
Magnús Stephensen landshöfðingi í embættisskrúða. Nafnið Magnús er algengt í Stephensensættinni og veldur því að nöfnum er gjarnan ruglað saman.
Magnús landshöfðingi var sonur Magnúsar Stephensen sýslumanns sem ólst upp í Viðey hjá föðurbróður sínum, Magnúsi Stephensen dómstjóra …