Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2012, Qupperneq 57
Hringurinn er spennusaga fyrir
ungt fólk eftir sænsku höfund-
ana Mats Strandberg og Söru
Bergmark Elfgren. Eins konar
sambland af Hungurleikunum
og Harry Potter. Aðalpersón-
urnar eru ungar stúlkur sem
þurfa að berjast fyrir lífi sínu í
glímu við ill öfl og koma upp
um morðmál. Þetta er hörku-
spennandi bók sem ungmenni
ættu að geta sökkt sér ofan í.
Sænskir
Hungurleikar
Uppheimar voru að kaupa
útgáfuréttinn á síðasta
verki Nobelsverðlaunahaf-
ans.Mo Yan. Sú bók kom
út árið 2010 og heitir í
enskri þýðingu Change.
Þetta er sjálfsævisögulegt
verk sem hugsað var sem
innlegg í umræðu um
kommúnisma. Böðvar
Guðmundsson mun
þýða verkið. Svo skemmti-
lega vill til að Pierre As-
tier umboðsmaður Gyrð-
is Elíassonar, sem sér um
sölu á verkum hans á
heimsvísu og rekur um-
boðsskrifstofu í París, er
jafnframt umboðsmaður
Mo Yan og þessa verks.
Af Böðvari er síðan
fleira að frétta þvi ný
skáldsaga eftir hann
Töfrahöllin kemur út 17.
nóvember.
Verk eftir nýja nóbelsskáldið
Mo Yan er væntanlegt.
Böðvar Guðmundsson þýðir
og gefur út skáldsögu.
BÖÐVAR GUÐMUNDSSON ÞÝÐIR BÓK
EFTIR NÝJA NÓBELSSKÁLDIÐ
Frábært hár er bók eftir Írisi Sveinsdóttur en þar er að finna hollráð og greiðslur
fyrir öll tækifæri. Sérstakur kafli er um eðlisfræði hársins og finna má uppskriftir að nátt-
úrulegri hárnæringu. Auk þess eru leiðbeiningar með myndum um alls kyns greiðslur.
Í bókinni Skórnir sem breyttu heiminum fjallar Hanna Guðný Ottósdóttir
um skó af öllu tagi. Flatbotna skór, háir hælar og strigaskór fá sitt pláss. Gefið er stutt
ágrip af sögu skósins og sérstakur kafli er um það hvernig eigi að finna vandaða skó. Þeir
sem vita ekki hvenær á að ganga á háum hælum fá svör við því. Myndir af alls kyns
skrautlegum skóbúnaði er svo vitanlega að finna í bókinni. Skófíklar munu fagna því að fá
bók eins og þessa á markað.
FRÁ TOPPI
TIL TÁAR –
BÆKUR
UM HÁR
OG SKÓ
„Hún skrifar bara góðar bæk-
ur,“ sagði kona nokkur, við-
skiptavinur í bókabúð Ey-
mundsson á Skólavörðustíg,
þegar hún keypti sér nýja skáld-
sögu Kristínar Mörju Bald-
ursdóttur. Nýja bókin, Kantata,
fjallar um brothætt samskipti
og fordóma en óvæntar svipt-
ingar verða í lífi fólks þegar út-
lendingur birtist á sviðinu. Í ljós
kemur að ekki er allt sem sýn-
ist. Þetta er vandlega unnin
saga, öguð og vel skrifuð með
sterkum lokaköflum.
Samskipti
og fordómar
Skáldkonur og
bækur fyrir
unglinga
ÁHUGAVERÐAR BÆKUR
GERÐUR KRISTNÝ OG KRISTÍN MARJA BALD-
URSDÓTTIR EIGA STÓRAN AÐDÁENDAHÓP OG
BÁÐAR SENDA FRÁ SÉR BÓK UM ÞESSI JÓL. UNG-
LINGAR SEM SAKNA HUNGURLEIKANNA ÆTTU
AÐ LESA SPENNUBÓKINA HRINGINN OG
UNGMENNI SEM HAFA ÁHUGA Á VÍSINDUM FÁ
EINNIG SÍNA BÓK FRÁ BILL BRYSON.
Í Stiklað á stóru um býsna margt útskýrir Bill Bryson fyrir ungu
fólki hinu ýmsar vísindakenningar og segir frá vísindamönnum.
Hann hefur einstakt lag á að gera flókna hluti auðskiljanlega í
skemmtilegum texta og svarar spurningum eins og: Hvað varð um
risaeðlurnar? og Hvers vegna er sjórinn saltur? Höfundurinn hefur
skrifað fjölda vinsælla vísinda- og ferðabóka fyrir fullorðna og
tekst ekki síður vel upp þegar hann talar til þeirra sem yngri eru.
Þetta er ómissandi bók fyrir forvitin ungmenni.
Vísindabók fyrir
forvitin ungmenni
Í nýrri ljóðabók, Strandir, sýnir Gerður Kristný að hún er meðal allra
bestu núlifandi ljóðskálda okkar. Hún þarf ekki að nota mörg orð til
að ná til lesandans og ljóð hennar eru meitluð, merkingarrík og
áhrifamikil. Hún dregur upp sterkar myndir þar sem dauðinn er oft
nálægur og kuldi leikur um umhverfið, eins og í ljóðabálknum Skauta-
ferðin sem lokar bókinni. Strandir er bók sem allir ljóðaunnendur
eiga að lesa og hlýtur að vekja hrifningu lesandans.
Gerður Kristný hlaut á sínum tíma Íslensku bókmenntaverðlaunin
fyrir ljóðabók sína Blóðhófnir. Hún á sannarlega einnig skilið verð-
laun fyrir Strandir.
Áhrifamikil ljóðabók
* Til að ná árangri í lífinu verðurmaður að vera andfélagslegur.Annars gleypa aðrir mann. Sean Connery BÓKSALA 21. OKT. - 3. NÓV.
Allar bækur
Listinn er byggður á upplýsingum frá Félagi íslenskra bókaútgefenda
1 ReykjavíkurnæturArnaldur Indriðason
2 HáriðSaga Sig ljósmyndir & Theodóra Mjöll
3 Iceland Small WorldSigurgeir Sigurjónsson
4 Fimmtíu gráir skuggarE.l. Jones
5 Stóra Disney heimilisréttabókinDisney
6 EldvitniðLars Kepler
7 Stóra prjónabókinÝmsir höfundar
8 KantataKristín Marja Baldursdóttir
9 Aukaspyrna á AkureyriGunnar Helgason
10 Makalaust lífAnna Ingólfsdóttir, Guðfinna Eydal &
Jóna Hrönn Bolladóttir
Uppsafnað frá áramótum
1 Grillréttir HagkaupsHrefna Rósa Sætran
2 Iceland Small WorldSigurgeir Sigurjónsson
3 Heilsuréttir fjölskyldunnarBerglind Sigmarsdóttir
4 Fimmtíu gráir skuggarE.l. Jones
5 Heilsuréttir HagkaupsSólveig Eiríksdóttir
6 Eldar kviknaSuzanne Collins
7 HungurleikarnirSuzanne Collins
8 EnglasmiðurinnCamilla Läckberg
9 SnjókarlinnJo Nesbø
10 HermiskaðiSuzanne Collins
MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR
Of seint er að byrgja brunninn
þá barnið er dottið ofan í.
11.11. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57