Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2012, Síða 59
11.11. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59
LÁRÉTT
1. Sker hár uxa með hluta úr blaði. (8)
4. Stíf á Akureyri sér að gufa valdi lykt. (10)
7. Auðveld við horfnar ár. (10)
8. Hvað þokkalegur í Bandaríkjunum er án sársauka. (9)
11. Þvær goð á þessum stað í Reykjavík? (8)
12. Tekið úr rigningunni? (8)
13. Reiður Kelti er ástfanginn. (10)
14. Laugardagur í Vegas gerir þau heimilislaus. (8)
16. Inniloki barn að sögn. (4)
18. Óþrifarollur sleppa illu í gryfju. (8)
20. Drepur veru í heimi Tolkiens með innri krafti (9)
23. Þíði reiði. (5)
25. Með engum skít, ópi og agni skordýr birtist. (12)
28. Leyniplan byggir á því að fá áfengi til vinnu. (9)
30. Ekki öruggur kærleiki og erlent óöryggi. (12)
31. Þreytt á fínu efni sem berst eftir þekktri braut. (9)
32. Demantseyrnalokkur markast af eftirlæti. (5)
33. Hrosshár berst með sérstöku skeyti. (10)
34. Musterisþjónarnir fá hitunartækin. (7)
LÓÐRÉTT
1. Úlla nær hálfvegis að falda afturhluta á líkamshluta ákveðinnar
skepnu. (10)
2. Ekki dökkur radíus í orku eða efnisagnastraumi. (10)
3. Sagt er forarskurðir valdi nísku. (8)
4. Alvarlegri og feitri allri lokið. (8)
5. Ást fær krónu eina fyrir reglulegar sendingar. (7)
6. Egypskur guð á liðaslám snýr aftur til þátttakenda. (10)
9. Sá sem svipar til dauðs er sá sem við er að búast. (8)
10. Eigin hæð byggir á monti. (9)
14. Sjá voffa missa kjarna sinn út af draug. (4)
15. Grá skeifa óf einhvern veginn yfirskilvitlega hæfni. (11)
17. Vafði brjáluð í þæfingu. (5)
19. Þá gufa L-lið upp með beygingarmyndinni. (10)
20. Naslið bind einhvern veginn með lestinum. (10)
21. Hópur barna í skóla sem liggur í veikindum á bálki? (10)
22. Víður og fínn til hvílu. (8)
24. Heimskingi milli tveggja heilagra gangi stirðlega. (8)
26. Streymandi fyrir oss dragi andann. (8)
27. Mótstæður er fær til að drepa fugla. (8)
29. Hefur trompið og er talinn. (7)
Greinarhöfundur hefur séðglefsur úr bók sem nýveriðkom út þar sem hinn litríki
bandaríski stórmeistari, fæddur í
Ástralíu, Walter Browne, skrifar um
skákferil sinn: The stress of chess …
and its infinite finesse. Bókin fjallar
m.a. um það tímabil í skáksögunni
þegar Bobby Fischer gnæfir yfir
alla bandarísku meistarana og kem-
ur sem heiðursgestur og nýbakaður
heimsmeistari á stórmótið í San Ant-
onio haustið 1972 og teflir nokkrar
hraðskákir við Browne. Og fjallað er
um viðureign sömu aðila tveim árum
fyrr, skák sem tók fjóra daga að
ljúka. Fischer vann mótið með yfir-
burðum en var með gjörtapað tafl á
móti Browne:
Rovinj/Zagreb 1970
- Sjá stöðumynd 1 -
Browne – Fischer
Hér blasir við að „yfirvalda“ h1-
reitinn og leika 88. Hh7…“ en ég
vildi vinna þetta með stæl,“ skrifar
Browne og lék 88. c7? sem Fischer
svaraði með 88. …. Rd7! Nú kom 89.
Kc6? Enn var vinningsvon með 89.
Hh7. Fischer bjargaði sér með: 89.
… h1(D)! 90. Bxh1 Re5+ 91. Kb6
Bc5+! og eftir 92. Kxc5 Rxf7 fær
hvítur fær ekki lengur unnið. „Jafn-
tefli eftir 98 leiki“ og „… þúsund
martraðir þar á eftir.“
Ef undan er skilið atvik sem átti
sér stað meðan á skák hans við Jó-
hann Hjartarson stóð á Opna New
York-mótinu 1984 voru samskipti
Browne við íslenska skákmenn yf-
irleitt góð. Eftir keppni úrvalsliða
Norðurlanda og Bandaríkjanna í
Reykjavík veturinn 1986 varð hann
við áskorun um að halda ræðu og
þar sagði hann m.a. að í einni lítilli
hraðskák færi fram meiri hugsun en
í bandarísku ruðningsliði yfir heilt
keppnistímabil.
Það var óvenjuleg reynsla að tefla
við Walter Browne; þegar spennan
magnaðist hristist hann og skalf eins
og hrísla í vindi. Á hinu glæsilega
Reykjavíkurskákmótinu 1978 var
tekið upp nýtt tímafyrirkomulag, 1
½ klst. á 30 leiki og 1 klst. á næstu 20
leiki. „Teflt er nú mest um tíma-
hrak,“ orti Benoný. Browne vann
mótið og varð á undan Bent Larsen,
Friðriki, Hort, Miles og Polugaj-
evskí og fleiri góðum mönnum. Í 1.
umferð vann Browne sigur á Lev
Polugajevskí eftir mikinn bægsla-
gang í tímahraki. Heim kominn
skrifaði Polu grein í „64“ og kvartaði
undan tímafyrirkomulaginu og tók
nokkra staði úr skák sinni við
Browne sem dæmi um óhentugleika
þess. Spurning um aðlögunarhæfni
töldu aðrir. Browne hafði ekkert
fram að færa í byrjun þessar skákar:
Walter Browne – Lev Polugaj-
evskí
Slavnesk vörn
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. Rc3
c6 5. e3 Rbd7 6. Bd3 dxc4 7. Bxc4 b5
8. Bb3
Sjaldséður leikur en stórhættu-
legur. Algengast er 8. Bd3.
8. … b4 9. Re2 Bb7 10. O-O Bd6
11. Rf4 O-O 12. He1 c5 13. d5 exd5
14. Rxd5 Hc8 15. e4 c4 16. Rxf6
Dxf6 17. Bg5 Dg6 18. Bc2 Hfe8!
Með hugmyndinni 19. e5 Bxf3! 20.
Bxg6 Bxd1 21. Bf5 Rxe51 22. Bxc8
Hxe1+ 23. Kg1 Bxf3+! og vinnur.
19. Bf4 Bxf4 20. Dxd7 Db6 21.
Df5 Bh6 22. e5 g6 23. Dh3 Bg7 24.
e6 Hxe6 25. Rg5 Hxe1 26. Hxe1
Magnað sprikl sem á ekki að leiða
til neins. Svarta staðan er unnin, 26.
.. Da5! sem hótar riddaranum og 27.
…b3 vinnur og einnig 26. … h5!)
26. … h6?
27. Rxf7!
Þessum leik fylgdi mikill hvinur
og Polu kipptist upp af stólnum.
Hann á best 27. … Dc6! og á þá betri
stöðu.
27. … Kxf7 28. Dd7+ Kg8 29.
He7! Dd4 30. De6+! Kh8 31. Dxg6
Be4 32. Hxe4
- og Polugajevskí gafst upp.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
SKÁK
Þúsund martraðir Walters Browne
Verðlaun eru veitt fyrir
krossgátu vikunnar. Senda
skal þátttökuseðilinn í um-
slagi merktu: Krossgáta
Morgunblaðsins, Hádeg-
ismóum 2, 110 Reykjavík.
Frestur til að skila úrlausn
krossgátu 11. nóvember
rennur út á hádegi 16. nóv-
ember. Nafn vinningshafa er
birt í Sunnudagsblaði Morg-
unblaðsins 18. nóvember.
Vinningshafi krossgátunnar 4.
nóvember er Erla H. Ásmundsdóttir, Melastíg 41,
600 Akureyri. Hún hlýtur í verðlaun bókina Dauði
næturgalans eftir Kaaberøl & Friis í þýðingu Ing-
unnar Ásdísardóttur. Forlagið gefur bókina út.
KROSSGÁTUVERÐLAUN
Nafn
Heimilisfang
Póstfang