Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2012, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.12. 2012
HEIMURINN
KANADA
ABBOTSFORD Lögregl-
an í Abbotsford skammt frá
Vancouver þar sem glæpa-
tíðni er einna mest í Kan-
ada, sendir afbrotamönnum
borgarinnar jólakort í ár.
Þar sést lögreglustjórinn
í Abbotsford klæddur
jólasveinabúningi og
skotheldu vesti með hjálm
á höfði og hríðskotabyssu
í hendi. Kortið var sent
síbrotamönnum, innbrots-
þjófum og einstaklingum,
sem tengjast gengjum
og eiturlyfjamisferli. Spyr
lögreglustjórinn viðtak-
andann á hvorum gjafalista
jólasveinsins hann vilti lenda,
hinna góðu og fá eitthvað
fallegt eða hinna vondu og
fá kolamola.
RÚSSLAND
MOSKVU Ded
Moroz eða Afi
Frosti nefnist
jólasveinninn í
Rússlandi. Í vikunni
tók hann á móti
börnum að heimili
sínu í Kuzminskí-garði í suðausturhluta
Moskvu í aðdraganda nýársfagnaðarins,
sem er helsti hátíðardagur ársins í
Rússlandi.
JAPAN
TÓKÝÓ Jólasveinninn er
vanur að fljúga um í sleða, en í
Japan stundar hann einnig köfun.
Í Sunshrie-sædýrasafninu í Tókýó
kafar jólasveinninn tvisvar á dag
með fiskunum fram að jólum.
ÁSTRALÍA
HOBART Flugmálayfirvöld
í Hobart á Ástralíu greindu
frá því í vikunni að flugleið
jólasveinsins lægi fyrir og
hefði verið samþykkt. Aðrir
flugmenn myndu taka tillit
til jólasveinsins á þeirra
flugumferðarsvæði og gæta
þess að vera ekki í vegi fyrir
honum. Börn munu geta
fylgst með för jólasveinsins
á slóðinni www.airservices-
australia.com/santa.
BRASILÍA
RIO DE JANEIRO Jólasveinninn
klæddist bláu og hvítu til að minna
á sveitir friðarlögreglunnar í Bras-
ilíu þegar hann heimsótti hreysa-
hverfið Morro dos Macacos í Rio
de Janeiro 20. desember og gekk
meðal annars á þaki grunnskólans í
hverfinu og dreifði jólagjöfum til barna þar.
Múslímska bræðralagið hugð-
ist 1979 fylgja eftir klerkabylt-
ingunni í Íran og gera upp-
reisn í Aleppo. Vonuðust
liðsmenn bræðralagsins til að
fá almenning á sitt band. Liðs-
menn þess byrjuðu á að
myrða 83 kadetta úr röðum
alavíta í herskóla í Aleppo.
Stjórnvöld brugðust við af
hörku og tókst á skammri
stund að brjóta bræðralagið á
bak aftur. Stjórnvöld beita
byltingarmenn sama mis-
kunnarleysi nú og íbúar
Aleppo finna fyrir því
þegar sprengjum
rignir yfir borg-
ina.
Í
búar í Aleppo í Sýrlandi
hafa mátt þola grimmileg
átök í borginni undanfarna
mánuði og nú í upphafi
vetrar blasir við þeim
skortur á fæði og eldsneyti.
Í fréttaskeytum segir frá því að
fólk myndi langar raðir fyrir utan
bakarí í þeirri von að á boðstólum
verði brauð, sem stöðugt hækkar í
verði. Drengir binda kaðla utan
um tré til að sveigja þau niður og
höggva í eldivið. Aleppo var áður
viðskiptamiðstöð landsins. Nú
berst þaðan ákall til alþjóða-
samfélagsins um aðstoð og íbú-
arnir rétt skrimta.
„Olía og matur eru mjög dýr,“
sagði ávaxtasali, sem ekki vildi
láta nafns getið, í samtali við
fréttastofuna AFP. „Vandamálið
er ekki ávaxtaskortur, vandamálið
er brauð og eldsneyti.“
Götusali við hlið hans benti á
garð hinum megin götunnar og
sagði að fyrir nokkrum mánuðum
hefði hann verið fullur af trjám,
en nú væri búið að höggva þau
niður og nota til að kynda.
Bardagar milli sveita, sem eru
hollar Bashar al-Assad forseta, og
uppreisnarmanna hafa geisað síð-
an í júlí. Nú er svo komið að
skorið hefur verið á allan birgða-
flutning til hverfa og borgarhluta,
sem eru á valdi uppreisnarmanna.
Charles Glass, fyrrverandi
fréttamaður bandarísku sjónvarps-
stöðvarinnar ABC í Mið-Austu-
löndum, lýsir borginni þannig að
þar hafi myndast innri landamæri
í grein í tímaritinu New York Re-
view of Books.
Í einu hverfinu, Sulaimaniya,
hafi logað götuljós og kaffihús ið-
að af lífi þegar hann kom þangað
í október, en 50 metra í burtu, í
hverfinu Jdaideh, sjáist varla
hræða. Íbúarnir hafi forðað sé
þegar uppreisnarmenn komu mán-
uði áður.
Skortur grípur um sig
Vegna stríðsins er nú farið að
skorta vörur, sem framleiddar eru
í Aleppo og nágrenni, sápu, vefn-
aðarvörur, unna matvöru og lyf.
Það gengur hratt á birgðir af
nauðsynjavörum og reiðufé.
„Þú þarft ekki að fara til
Aleppo,“ hefur Glass eftir vini
sínum í Beirút. „Aleppo er hér.“
Þangað hafa margir flúið í út-
legð. Á kaffihúsum í Beirút
sitja stuðningsmenn og and-
stæðingar Assads hlið við
hlið og bíða þess að geta
snúið aftur.
Í hugum margra skar Aleppo
sig úr. Þar ríkti umburðarlyndi.
Aðeins einu sinni hefur verið gerð
aðför að kristna minnihlutanum í
borginni. Það var 1851, mannfall
var lítið og ofsóknirnar endurtóku
sig ekki.
Ef olía er frátalin urðu 65% af
þjóðarauði Sýrlands til í Aleppo.
Þar eru vefnaðarvörur unnar úr
sýrlenskri baðmull, framleidd lyf
og smíðuð húsgögn.
Víðtæk eyðilegging
Viðmælendur Glass segja að
Aleppo hafi ekki skorist í átökin,
átökin hafi borist til borgarinnar.
Þegar uppreisnarmennirnir
komu til borgarinnar var þeim í
upphafi fagnað í úthverfunum þar
sem búa bændur sem hafa flutt
þangað úr þorpum og sveitum
landsins.
Stuðningur hefur hins vegar
fjarað undan þeim. Uppreisn-
armennirnir eyðilögðu verksmiðjur
þar sem fjöldi manns vann. Þeim
hefur ekki tekist að ná Aleppo á
sitt vald og eru ófærir um að
tryggja öryggi íbúa þeirra hverfa,
sem þeir hafa náð, fyrir árásum
og sprengjuregni stjórnarliða.
Uppreisnarmennirnir eru farnir
að veita Mukhabarat, hinni ill-
ræmdu leyniþjónustu Assads, sam-
keppni. Grimmilegar aðfarir
stjórnarinnar hafa ýtt mörgum
stuðningsmönnum hennar í fang
uppreisnarmanna, sem aftur á
móti hafa hrakið frá sér stuðning
með ofbeldi, skemmdarverkum og
mannránum. Andstaða við stjórn
Assads er útbreidd, en ekki er
þar með sagt að almenningur
styðji að landið verði lagt í rúst
til að koma honum frá.
Talið er að 40 þúsund manna
hafi fallið í átökunum, tvær millj-
ónir hafi misst heimili sín og séu
á faraldsfæti og þar af hafi 400
þúsund manns flúið land. Og nú
er langur vetur framundan.
Blóðug
barátta
um Aleppo
ALEPPO VAR ÞRÓTTMESTA BORG SÝRLANDS. BARÁTTAN
UM ÞESSA BORG HEFUR NÚ STAÐIÐ MÁNUÐUM SAMAN,
SKORTUR ER FARINN AÐ GRÍPA UM SIG OG BÆÐI STJÓRN-
ARLIÐAR OG BYLTINGARMENN ERU ILLA ÞOKKAÐIR.
Móðir í Aleppo
heldur um barn
sitt í loftárás.
UPPREISNIN 1979
Mannþröng fyrir utan bakarí í borginni Aleppo í Sýrlandi 16. desember. Brauð er af skornum skammti í borginni vegna
átaka, sem staðið hafa síðan í sumar, og verðið fer hækkandi. Íbúar borgarinnar sjá fram á erfiðan vetur.
AFP
* „Þau fá hvorki brauð né heilsugæslu. Veturinn verður grimm-ur, ekki bara vegna bardaganna, heldur einnig aðstæðna.“Michal Przedlacki, stjórnandi Sýrlandsdeildar tékkneskra hjálparsamtaka.AlþjóðamálKARL BLÖNDAL
kbl@mbl.is