Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2012, Blaðsíða 16
*Hópur fólks fer í Bása í Þórsmörk með Útivist ár hvert til að upplifa öðruvísi áramót á fjöllum »18Ferðalög og flakk
Norsk jólastemming
„Jule brus“ er
ekkert líkt
jólaöli eins og
við þekkjum
það heldur er
þetta rauð-
leitur drykk-
ur, dísætur á
bragðið.
PÓSTKORT F
RÁ DRAMME
N
Hér í Drammen er jólastemningin að ná hámarki, allir Norðmenn sveittir í jólaund-
irbúningnum og ekki skemmir fyrir að jólasnjórinn þekur hús og jarðir. Jólainn-
kaupin ganga líka vel, og allt bendir til þess að jólaverslunin í Noregi sé að ná hæstu
hæðum, biðraðir á alla kassa í öllum búðum af fólki sem veit ekkert skemmtilegra en
að strauja kortið fyrir alls kyns nytsamlegum hlutum sem detta ofan í jólapakkana.
Jólamaturinn er ekkert líkur því sem við Íslendingar eigum að venjast, samanstendur
af „pinnakjöti“, jólapulsu, ribbe-steik og medisterkökum sem maður skolar niður með
norsku jólaöli sem kallast „Jule brus.“ Fyrir þá sem kjósa að bragða á betri drykkjum
þá er Aass-jólaölið fáanlegt á öllum stöðum og bragðast mun betur. Þess má geta að
Aass-bruggverksmiðjan í Drammen er elsta brugghús Noregs, stofnað árið 1834, og
drekka Drammen-búar einungis Aass-bjór því allt annað er „óþverri.“ Gleðileg jól!
Herjólfur Guðbjartsson starfar hjá Arctic Trucks í Drammen í Noregi.
„Torgið í miðbænum er orðið að skautasvelli og hægt að
skella sér í bæinn, taka einn skautarúnt með öllum krökk-
unum og enda svo í hefðbundnum norskum jólamat á einu af
betri veitingahúsum bæjarins, Gundersen,“ segir Herjólfur.
Í
miðborg Rómar, sem allar leiðir
eru sagðar liggja til, hefur ver-
ið mikið umleikis að und-
anförnu. Á strætum eru sölu-
tjöld þar sem ítalskir smávöru-
kaupmenn falbjóða alls konar glys;
jólaskreytingar, minjagripi, leð-
urvörur, leikföng, fatnað, sælgæti
og bakkelsi ýmiskonar.
Ameríski jólasveinninn, gjarnan
kenndur við Coca-Cola, stikaði um
stræti Rómar á dögunum. Sama
dag og tíðindamaður Morgunblaðs-
ins var í borginni „bar til um þess-
ar mundir“, eins og segir í jóla-
guðspjallinu, að páfinn brá sér í
bæinn.
Í kaþólskunni gildir að 8. desem-
ber er einn af hápunktunum; dagur
flekklauss getnaðar Maríu meyjar.
Samkvæmt pápískunni var María
getin án synda og lifði þannig.
Óhreinkaðist aldrei erfðasyndum.
Þessi helgisiður er sterkur í Róm
og löng hefð er fyrir páfamessu á
þessum degi þar sem þúsundir
sitja í spænsku tröppunum.
Rjómatertan er kennileiti
„Þetta er ótrúlega áhrifamikið. Ég
hef nokkrum sinnum verið við
þessa athöfn sem hefur sterk áhrif
á alla,“ segir sr. Þórhallur Heim-
isson, sem var leiðsögumaður hóps
Íslendinga sem fóru um borgina á
dögunum. „Róm er alltaf jafnynd-
isleg og hefur upp á margt að
bjóða. Í miðborginni eru hundruð
kirkna og litríkt mannlíf og mörg
söguleg mannvirki,“ segir Þórhall-
ur og nefnir þar Colosseum, Pét-
urskirkjuna og minnismerkið um
Vittorio Emanuele II, síðasta kon-
ung Ítalíu. Er það reist fyrir um
öld; tilkomumikið kennileiti og
minnir suma á rjómatertu.
RÖLT UM RÓM Á AÐVENTU
SVIPUR JÓLA FÆRIST NÚ YFIR RÓM. JÓLATRÉ ERU
Á TORGUM OG LJÓSASERÍUR ERU VÍÐA.
UM ALLAN HEIM ER NÚ HALDIN HÁTÍÐ.
Myndir og texti: Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is
Colosseum er fyrirmynd allra íþróttaleikvanga í heimi. Á útimarkaði var mannfjöldi og sveinki lét að sjálfsögðu sjá sig.
Horft yfir Péturstorgið úr höfuðkirkju kaþólskra. Margir fylgjast með hátíðarmessum þar, sem sjónvarpað er um jólin.
Páfinn Benedikt brá sér í bæinn og birtist á
skjánum, syndlaug líkt og María forðum.
Engin er
erfðasyndin
Minnismerkið um Vittorio Emanuele II síðasta konung Ítalíu.
Sr. Þórhallur Heimisson er hag-
vanur í Róm og þekkir borgina vel.
* „Á strætumhefur veriðkomið upp sölu-
tjöldum þar sem
ítalskir smá-
vörukaupmenn
falbjóða alls
konar glys“