Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2012, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.12. 2012
Matur og drykkir
HLUTFÖLL
60 PRÓSENT MALT
40 PRÓSENT APPELSÍN
GÓÐUR SLURKUR AF KÓKI
Það er grundvallaratriði að það gleymist
ekki að setja kók út í jólablönduna að mati
Svanhildar Hólm Valsdóttur.
„Blandan af malti og appelsíni er um það
bil 60 af malti og 40 af appelsíni og góður
slurkur af sykurkóki út í,“ segir Svanhildur
og bætir við að sér finnist blandan ekki
mega vera of sæt – sem hún verði með of
miklu appelsíni. „Alvörufólk notar meira
malt.“
Svanhildur Hólm
HLUTFÖLL
30 PRÓSENT MALT
70 PRÓSENT APPELSÍN
SAFI ÚR EINNI SÍTRÓNU
Tónlistarmað-
urinn og matar-
gúrúið Magnús
Valdimarsson, eða
Maggi mix eins og
hann er jafnan
kallaður, notar
ívið meira appels-
ín í jólablönduna
sína. Þá kreistir
hann safa úr einni
sítrónu út í blönd-
una. „Svona upp á
frískleikann,“ segir Maggi. „Þá er gott að
lauma þremur klökum út í glasið og klakarnir
verða að vera þrír akkúrat.“ Maggi segir að
jólablandan bragðist enn betur ef fólk hlær og
hefur það gaman – „því jólin eru nú bara einu
sinni á ári“.
Maggi mix
HLUTFÖLL
50 PRÓSENT MALT
30 PRÓSENT APPELSÍN
20 PRÓSENT MIX
„Hefðin að blanda mixi saman við jólablandið
kemur frá tengdafjölskyldu minni en ég nota 50
prósent malt og svo eru hin 50 prósentin gos; app-
elsín og mix,“ segir Eva María Sigurbjörnsdóttir,
náttúrufræðingur og meistaranemi. Til er hópur
fólks sem notar mix út í jólablandið og Eva María
er ein þeirra. Þá nota sumir allt fernt; malt, appels-
ín, mix og kók. Eva María segir mikilvægt og alltaf
sé passað upp á að gosið fari fyrst ofan í, á undan
maltinu, því annars flæði út um allt.
Eva María
HLUTFÖLL
40 PRÓSENT MALT
60 PRÓSENT APPELSÍN
STUNDUM HVÍTÖL ÚT Í
Matreiðslubókahöfundurinn og bak-
arinn Jói Fel. vill hafa meira appelsín en
malt í jólablöndu aðfangadagskvölds.
Hans hlutföll eru 60 prósent appelsín á
móti 40 af malti. „Mér finnst maltið að-
eins of sterkt og hef því appelsínið ör-
lítið meira ráðandi. Ég á líka mjög góð-
ar æskuminningar um þegar ég sótti
hvítölið með pabba í gamla daga á
brúsa og stundum blanda ég hvítöli
með appelsíninu.“ Hvítöl er að stofni
til það sama og malt nema það er ekki
eins sætt vegna þess að minna korn er
notað í uppskriftina. „Annars á ég
mjög erfitt með mig yfir aðventuna því
ég er svo veikur fyrir þessum drykk. Ég
byrja að drekka malt og appelsín fyrsta
í aðventu og drekk þetta allan desem-
bermánuð.“
Jói Fel
HLUTFÖLL
46 PRÓSENT MALT OG
54 PRÓSENT APPELSÍN
„Allir sem hafa blandað malt og appelsín í
meira en áratug, eða í meira en tvo áratugi
eins og ég, vita að það á að nota meira app-
elsín en malt. Mýtan um meira malt er allt of
lífseig en ég þakka Morgunblaðinu kærlega
fyrir að gefa mér tækifæri til að leiðrétta
þennan leiða misskilning,“ segir Atli Fannar
Bjarkason, framkvæmdastjóri Bjartrar fram-
tíðar. Hlutföllin hjá Atla eru 54 prósent af
malti á móti 46 af appelsíni. „Við þau sem
bæta kóki út í vil ég segja eftirfarandi; Hættið
þessu. Kók á ekki heima í jólaöli. Maður setur
ekki kók út í gin og tónik og maður setur
sannarlega ekki kók út í malt og appelsín.“
Atli Fannar
E
kki er vitað hvaða snillingi datt fyrst í hug að blanda saman malti
og appelsíni en talið er að í kringum 1960 hafi siðurinn verið orð-
inn almennur. Þó þekkist það á meginlandi Evrópu, til dæmis í
Þýskalandi, að blanda ávaxtasafa og límonaði saman við dökkt öl.
Árið 2004 var í fyrst skipti hægt að fá malt- og appelsínblönduna til-
búna á dós en þótt slík þægindi séu fyrir hendi er meiri alúð lögð í að
blanda drykkinn persónulega á aðfangadag. Enda er þónokkuð stór hópur
sem hefur sterkar skoðanir á því hvernig hlutföllin milli malts og appels-
íns skulu vera og auk þess þekkist það víða að öðrum bragðefnum sé hellt
út í drykkinn eins og sjá má hjá þeim sem gáfu Sunnudagsblaði Morg-
unblaðsins uppskrift að jólablöndunni „sinni“. Má þar nefna kók og appels-
ín og í einni blöndunni er safi kreistur úr ferskri sítrónu út í könnuna.
Ólíkar upp-
skriftir að
jólablöndunni
HEFÐIN AÐ BLANDA SAMAN MALTI OG APPELSÍNI OG
DREKKA MEÐ JÓLAMATNUM ER ORÐIN UM FIMMTÍU ÁRA
GÖMUL. ÞJÓÐIN HEFUR STERKAR SKOÐANIR Á ÞVÍ
HVERNIG BLANDAN SÉ BEST ÚR GARÐI GJÖRÐ
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is