Morgunblaðið - 09.01.2013, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 9. J A N Ú A R 2 0 1 3
Stofnað 1913 6. tölublað 101. árgangur
VINNUR AÐ VERKI
Í FRUMSKÓGI
Í SÚRÍNAM
KATRÍN RYÐUR
BRAUTINA Í
LIVERPOOL
VINNA MEÐ
VÖLDUM HÓPI
LISTAMANNA
BÍTLABORGIN ÍÞRÓTTIR HVERFISGALLERÍ 38TVÍÆRINGUR 2015 41
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Myglusveppur hefur komið upp í
nokkrum herbergjum í byggingu
Landspítalans við Hringbraut.
Björn Zoëga, forstjóri Landspítal-
ans, segir að verið sé að meta það
hvort loka þurfi herbergjum og legu-
rýmum. Um er að ræða elstu bygg-
ingu Landspítalans við Hringbraut
en í henni er meðal annars starfsemi
gjörgæslunnar. „Myglan fannst ný-
lega og kom upp vegna þess að
gluggarnir hafa lekið í nokkurn tíma.
Við höfum ekki haft fé til þess að
endurnýja húsnæðið. Að vísu stóð til
að gera við helming glugganna í
þessu húsnæði í sumar,“ segir Björn.
Læknar hafa veikst í vinnunni
Hann segir ekki liggja fyrir hve
víða áhrifa myglunnar gætir. Um sé
að ræða skrifstofur og rými þar sem
læknar hafa hvílst þegar þeir eru á
vakt. „Þetta greindist á hæðinni fyr-
ir ofan gjörgæsluna og er jafnvel í
einu herbergi á gjörgæslunni.
Brjóstholsskurðlæknar hafa notað
eitt af þeim rýmum, sem myglu-
sveppurinn hefur fundist í, til hvíldar
tvisvar í viku. Einhverjir í þeim hópi
hafa kvartað undan veikindum að
undanförnu,“ segir Björn.
Gætu þurft að loka
herbergjum á gjörgæslunni
Hann segir ekki ljóst hversu stór-
an hluta byggingarinnar þarf að
rýma þar sem umfang myglusvepps-
ins liggi ekki fyrir. „Ef við þurfum að
loka herbergjum á gjörgæslunni þá
gæti það haft áhrif á starfsemina,“
segir Björn.
Hann segir að það hafi legið fyrir í
mörg ár að skipta þyrfti um glugga í
byggingunni. Aðilar utan spítalans
gerðu í haust úttekt á því hvernig
bæri að forgangsraða viðhaldi á spít-
alanum þar sem það var staðfest.
Fleiri gluggar halda ekki vatni
„Við höfum farið fram á aukafjár-
veitingu á hverju ári frá því fyrir
hrun en höfum ekki fengið.Við för-
um ekkert í felur með það að á suð-
urhliðinni á elsta hlutanum inni í
Fossvogi eru gluggar sem ekki
halda vatni í vissum áttum,“ segir
Björn.
Myglusveppur á Landspítalanum
Mygla hefur jafnvel greinst í herbergi á gjörgæslu Meta hvort loka þarf rýmum
Á norðurhjara veraldar bera eflaust margir blendnar tilfinningar til jan-
úarmánaðar. Menn strengja heit um bót og betrun á nýju ári en á sama
tíma er skrautinu pakkað niður og jólaljósin víkja fyrir vetrarmyrkrinu.
Seinni hálfleikur vetrar hafinn
Morgunblaðið/Golli
Ummerki jólanna hverfa
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Kona sem lét fjarlægja úr sér
sprungna PIP-brjóstapúða í mars í
fyrra er með silíkon í eitlum í hand-
arkrikum. Kom það í ljós í skoðun
sem hún fór í hjá Leitarstöð Krabba-
meinsfélagsins nokkrum vikum eftir
að hún lét fjarlægja úr sér púðana á
Landspítalanum.
„Eftir aðgerðina upplifði ég rosa-
lega mikinn létti á bringunni og átt-
aði mig á því hvað ég var búin að
vera með mikið af verkjum. Engu að
síður fékk ég mikla beinverki í
bringuna eftir aðgerðina, sérstak-
lega öðrum megin. Svo ég pantaði
mér tíma hjá Krabbameinsfélaginu.
Þar var ég tekin í mjög góða rann-
sókn og það kemur í ljós að ég er
með silíkon sem hefur lekið út fyrir,
farið í handarkrikana og er nú í eitl-
unum. Mér var tjáð eftir aðgerðina
að allt hefði verið hreinsað en svo
kemur þetta í ljós í ómskoðuninni,“
segir konan sem rætt var við í gær.
Hún segir að læknar hafi ráðlagt sér
að láta silíkonið í eitlunum eiga sig,
enda um erfiða aðgerð að ræða,
nema það fari að angra hana enn
meira. „Ég ákvað að bíða og sjá en
það koma upp bólgur annað slagið í
handarkrikanum sem ég verð aum í
og klæjar í.“
Ekki er útilokað að hún sé með
silíkon víðar í líkamanum. Sam-
kvæmt upplýsingum sem konan hef-
ur fengið á að vera hættulaust að
vera með silíkon í eitlum, t.d. er það
ekki talið krabbameinsvaldandi, þó
það valdi miklum óþægindum.
Konunni finnst vanta eftirfylgni í
PIP-málinu og segir utanumhaldið
ekki neitt. Hún segir margar þeirra
kvenna sem greindust með sprungna
silíkonpúða og létu fjarlægja þá sitja
eftir með lýti á líkamanum og sár á
sálinni.
Bætt þekking á íhlutum
Ár er liðið frá því PIP-málið kom
upp hér á landi. Púðarnir voru fram-
leiddir af franska fyrirtækinu Poly
Implant Prothese sem notaði ólög-
legt silíkon í þá. Um 400 konur fengu
púðana ígrædda hér á landi.
Geir Gunnlaugsson landlæknir
segir að það megi draga heilmikinn
lærdóm af þessu máli. „Ég held að
við getum fullyrt að PIP-málið hafi
vakið athygli og bætt þekkingu
stjórnvalda og almennings á að í-
græddir íhlutir í mannslíkamanum
eru aðskotahlutir sem geta haft
aukaverkanir í för með sér,“ segir
Geir. Honum finnst þær konur sem
voru með PIP-púða hafa fengið við-
eigandi meðferð hér á landi.
MMeð silíkon í eitlum »6
Með silíkon
í eitlum eftir
PIP-púða
Silíkon úr sprungnum PIP-brjósta-
púðum fannst í eitlum í handarkrikum
Morgunblaðið/Ómar
Aðgerð Ár er liðið síðan brjósta-
púðamálið kom upp hér á landi.
ms.is
Gráða & feta
ostateningar í olíu
Frá síðustu áramótum er óheimilt að
fljúga flugförum Landhelgisgæsl-
unnar út fyrir 12 mílna landhelgi,
samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins. Um áramótin breyttist
skráning á flugflota Landhelg-
isgæslunnar úr svokölluðum JAR-
flokki í State-flokk.
Til að fljúga út fyrir 12 mílna land-
helgi þurfa íslensk loftför að hafa
leyfi frá EASA, Flugöryggisstofnun
Evrópu. Samkvæmt heimildum
brýtur flugstjóri Gæslunnar gegn
reglugerð EASA fljúgi hann út fyrir
12 mílurnar. Þar með geta trygg-
ingafélög neitað að greiða bætur ef
tjón verður.
Ljóst er að verði ekki gerð breyt-
ing á skráningu íslenskra loftfara
Gæslunnar er björgunarstarf á sjó
innan íslenskrar efnahagslögsögu í
verulegu uppnámi, enda geta mín-
útur skipt máli þegar neyð er á hafi
úti. Haft var samband við Ögmund
Jónasson, innanríkisráðherra, sem
kvaðst ekki þekkja nægilega vel til
málsins til að geta tjáð sig um það
við fjölmiðla í gærkvöldi.
Efnahagslögsagan er 200 sjómílur
og hlutverk Gæslunnar er meðal
annars að sinna öryggis- og lög-
gæslu úti á hafi, þar á meðal fisk-
veiðieftirliti. ipg@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þyrla Landhelgisgæslunnar Má
ekki fara út fyrir 12 mílurnar.
Ekkert flug
út fyrir
12 mílur
Nýjar reglur um
flugför Gæslunnar