Morgunblaðið - 09.01.2013, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 09.01.2013, Qupperneq 35
Baltasar varð mjög hrifinn af Ís- landi eftir dvöl sína hér. Hann kom hingað aftur að lokinni Evrópureisu en þá kynntist hann Kristjönu konu sinni. Hann hefur síðan búið á Íslandi samfellt frá 1963. Myndlist Baltasar Baltasar er í hópi virt- ustu myndlistarmanna hér á landi. Hann hefur haldið á fjórða tug einka- sýninga eða sýningar ásamt Kristjönu, hér á landi, í Bandaríkjunum, Bretlandi, Belgíu, Hol- landi, Þýskalandi og Dan- mörku. Þá er hann m.a. þekktur fyrir hinar stóru veggmyndir sínar sem eru veggskreyting í Flat- eyjarkirkju; altaristafla á Ólafsvöllum á Skeiðum; veggskreyting í kapellu Landakotsspítala sem nú er að hluta til komin í klaustrið í Garðabæ; freska í Víðistaðakirkju sem er stærsta kirkju- skreyting hér á landi; freska í Húnavallaskóla, og útifreska á Eskifirði. Baltasar og íslenski hesturinn Baltasar var leiktjaldahönnuður á vegum Þjóðleikhússins og fleiri leik- húsa á árunum 1966-80, var kennari við Myndlistarskóla Reykjavíkur 1975-77 og við Handíða- og myndlist- arskólann 1977-80. Þá annaðist hann myndskreytingar í Morgunblaðið og fyrir Ríkisútgáfu námsbóka um skeið. Baltasar er mikill áhugamaður um íslenska hesta, hefur átt hesta um árabil og ferðast á hestum, ásamt fjölskyldu sinni, víða um land og er heiðursfélagi hestamannafélagsins Andvara. Baltasar hefur verið sæmdur borg- aralegri heiðursorðu af spænska kon- unginum. Hann var valinn heiðurslistamaður Kópavogs 2007. Fjölskylda Kona Baltasars er Kristjana Sam- per, f. 12.10. 1944, myndhöggvari. Hún er dóttir Guðna Guðbjartssonar, stöðvarstjóra að Ljósafossi, og k.h., Ragnheiðar Guðmundsdóttur sem eru látin, en þau voru bæði ættuð úr Dýrafirði. Börn Baltasars og Kristjönu eru Mireya, f. 9.8. 1964, myndlistamaður í sambúð með Víði Árnasyni, dóttir hennar er Asra Rán Björt; Baltasar Kormákur, f. 27.2. 1966, leikari og leikstjóri, giftur Lilju Pálmadóttur, börn þeirra eru, Baltasar Breki, Stella Rín, Sóllilja, Pálmi og Stormur; Rebekka Rán, f.5.5.1967,mynd- listamaður í sambúð með Geir Þor- steinssyni, sonur hennar er Baltasar Darri. Systkini Baltasars eru Jóhann, bú- settur í Reykjavík; Mireya, búsett í Valencia; Núría, búsett í Manresa. Foreldrar Baltasar: Ramiro Bas- compte de La Kanal efnaverkfræð- ingur og María Samper de Cordada. Seinni maður hennar var Joan Colom læknir, þau eru öll látin. Strokuhesturinn Mynd eftir myndlista- og hestamanninn Baltasar Samper. Afar og ömmur Baltasars Samper Baltasar Samper Maria de Cordada af ættum Baska Maria Samper de Cordada húsfr. í Barcelona Jeanette de La Kanal af frönskumættum, húsfr. í Barcelona Jean Bascompte af frönskumættum, stofnandi og forstjóri sama fyrirtækis Baltasar Ramino Bascompte de La Kanal efnafræðingur og forstjóri lyfja- og efnafræðifyrirtækis í Barcelona á Spáni Baltasar Samper frá Mallorka, tónskáld, organisti og stjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar í Barcelona, en flúði í Mexíkó undan Franco Julia Samper dómorganisti í Palma á Mallorka Baltasar Sjálfum sér líkur. ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2013 Gunnþórunn Halldórsdóttir,leikkona og kaupkona, fædd-ist í Reykjavík 9.1. 1872. Hún var dóttir Halldórs Jónatans- sonar, söðlasmiðs í Reykjavík, og k.h., Helgu Jónsdóttur húsfreyju. Gunnþórunn ólst upp í foreldra- húsum við Amtmannsstíginn í Reykjavík og átti heima við Amt- mannsstíginn alla tíð. Gunnþórunn þreytti frumraun sína á leiksviði með skólapiltum Menntaskólans í Reykjavík í Breið- fjörðsleikhúsi 1895 þar sem sýnd voru tvö leikverk, annað eftir Einar Benediktsson en hitt eftir Indriða Einarsson. Hún átti síðan eftir að leika í tæp sextíu ár í Fjalakettinum, Góðtemplarahúsinu, Iðnó, Bárunni og Þjóðleikhúsinu. Þá rak hún versl- un í Reykjavík um árabil, ásamt Guðrúnu Jónasson. Gunnþórunn var einn af stofn- endum Leikfélags Reykjavíkur 1897 og með fyrstu leikurum þess. Meðal annarra frumherja þess má nefna Árna Eiríksson, Hans Mortensen, Borgþór Jósefsson, Davíð J. Heil- mann, Friðfinn Guðjónsson, Hjálm- ar Sigurðsson, Jónas Jónsson, Krist- ján Ó. Þorgrímsson, Sigurð Magnússon, Stefaníu Guðmunds- dóttur, Þóru Sigurðardóttir, Þor- varð Þorvarðsson og Þuríði Sigurð- ardóttur. Árið 1905 kom upp ósætti innan leikhússins sem varð til þess að Gunnþórunn hætti að leika þar og kom þar ekki á fjalirnar aftur fyrr en 1924. Á þeim tíma lék hún mikið í Góðtemplarahúsinu með Sigurði Magnússyni, Ólafi Ottesen og Rein- hold Richter. Þá lék hún fjölda aðal- hlutverka í revíum þriðja áratug- arins, oft á móti Friðfinni Guðjónssyni. Gunnþórunn var fjölhæf leikkona, jafhvíg á alvarleg og gamanhlutverk og frábær gamanvísnasöngkona. Hún ávann sér snemma sess sem ein fremsta leikkona landsins og er án efa einn af mikilhæfustu frum- herjum íslenskrar leiklistar. Síðast lék hún Vilborgu grasakonu í Gullna hliðinu í Þjóðleikhúsinu er hún var áttræð, en sú sýning var haldin henni til heiðurs. Gunnþórunn lést 15.2. 1959. Merkir Íslendingar Gunnþórunn Halldórsdóttir 95 ára Sigurvin Elíasson 85 ára Haukur Pálsson 80 ára Agnes Engilbertsdóttir Anna Guðjónsdóttir Benedikt Axelsson Geir Hólm Lily Erla Adamsdóttir Sigurður Eggertsson 75 ára Ólafur Sæmundsson Ólafur Þór Kristjánsson Sjöfn Ísaksdóttir 70 ára Ester Tryggvadóttir Jón Sigfússon Ólafur G.E. Sæmundsen Steinar Þorsteinsson Þórður Rafn Sigurðsson 60 ára Anna Margrét Grétarsdóttir Árni Árnason Bjarni Guðmundur Bjarnason Guðgeir Þ. Ragnarsson Hjarðar Guðríður Ásta Halldórsdóttir Guðrún Guðnadóttir Guðrún Hauksdóttir Hafdís Helgadóttir Hildur Rögnvaldsdóttir Hildur Sigríður Sigurðardóttir Jón Ingi Pálsson Jónína Birna Bl. Birgisdóttir Ólafur Jónsson Sigurður Skagfjörð Sigurðsson Þorvaldur Ómar Hallsson 50 ára Anna Sigríður Jónsdóttir Anna Þórdís Gunnarsdóttir Björn Heiðar Pálsson Dagmar Rósa Guðjónsdóttir Guðni Ingi Johnsen Guðný Ragnarsdóttir Margrét Guðfinna Hreinsdóttir Steinunn R. Arnljótsdóttir Svandís Bodilsen Unnur Björgvinsdóttir Yngvi Karl Jónsson 40 ára Anna Katarzyna Kosmala Gizelle Suson Balo Guðbjörg Marta Björgvinsdóttir Indriði Níelsson Inga Rakel Guðmundsdóttir Jóhanna Þórunn Egilsdóttir Sveinn Sigfinnsson Wioletta Agnieszka Polinska 30 ára Anna Derlatka Arna Björg Arnarsdóttir Dávid Kontul Diana Igosina Jan Frederik Kindt Pétur Friðfinnur Kjærnested Sandra Finnsdóttir Thelma Guðmundsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Karl ólst upp í Reykjavík er IAK- einkaþjálfari og starfar hjá Reebok Fittness. Maki: Karlólína Lár- usdóttir, f. 1984, starfs- maður við leikskóla. Börn: Sara Björk Karls- dóttir, f. 2003. Foreldrar: Bjarni Þór Ólafsson, f. 1961, sím- smiður hjá Símanumm, og Sjöfn Finnbjörnsdóttir, f. 1964, starfsmaður hjá Já.is. Karl Arnar Bjarnason 40 ára Gunnlaugur lauk próf í vélaverkfræði frá HÍ 1997 og starfar hjá Mann- viti. Maki: Anna Heiður Heið- arsdóttir, f. 1981, þjón- ustufulltrúi hjá VÍS. Börn: Kolbrún Birna, f. 2003, og Jóhann Darri, f. 2009. Foreldrar: Ágúst Þór Ormsson, f. 1951, bif- reiðasmiður, og Ingibjörg Kristinsdóttir, f. 1954, skrifstofumaður. Gunnlaugur Ó. Ágústsson 40 ára Linda ólst upp í Langholtshverfi í Reykja- vík, er þar búsett núna, var bankastarfsmaður 2004-2011 og er nú að ljúka námi við frum- greinadeild HR. Börn: Klara Sól Freeman, f. 2000, og Tómas Jökull Freeman, f. 2001. Foreldrar: Ægir Þórð- arson, f. 1953, búsettur á Hellissandi, og Guðný Rut Hreiðarsdóttir, f. 1956, húsfreyja í Reykjavík. Linda Ýr Ægisdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.