Morgunblaðið - 09.01.2013, Qupperneq 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Fjölskylduböndin eru eitthvað stíf
þessa dagana. Láttu allar áhyggjur lönd og
leið og mundu það framvegis að lofa ekki
upp í ermina á þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Ekkert er eins heilsusamlegt og að
njóta þeirrar hamingju sem lífið býður upp
á. Hikaðu ekki við að notfæra þér tengsl
sem þú hefur.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú býst við miklu af einhverju eða
einhverjum í dag og ert þess fullviss að allt
verði í lagi. Hlustaðu vel á þinn innri mann,
því þú býrð sjálfur yfir lausninni.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Tilraunir þínar til að afla og eyða
peningum ættu að fara að bera meiri árang-
ur en þær hafa gert að undanförnu. Láttu
fólk um að leysa vandamál sín sjálft og
sinntu sjálfur eigin málum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Reyndu að halda sambandi við vini
þína jafnvel þótt vík verði í milli. Mundu
samt að ekkert fær staðist til eilífðar. Ein-
hver þér eldri getur gefið þér góð ráð varð-
andi fjármálin.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Reyndu að láta aðra um sem flest
atriði og einbeittu þér að þeim, sem mestu
máli skipta. Hikaðu ekki við að koma hug-
myndum þínum á framfæri.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þegar margir möguleikar eru fyrir hendi
er valið þeim mun erfiðara. Láttu öfund
annarra sem vind um eyru þjóta því þú einn
veist hvað þér er fyrir bestu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þér hættir til að slá vandanum
á frest en þegar til lengri tíma er litið borg-
ar sig að leysa málin strax. Mannorð þitt er
í húfi.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Bogmaðurinn hefur fengið stór-
kostlega hugmynd. Með orðum geturðu
fengið fólk til að fylgja þér til enda veraldar,
svo þú verður að nota það vald ansi varlega.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Dagurinn í dag mun að líkindum
einkennast af spennu og átökum á heimili.
Sinntu líka fólkinu í kringum þig.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Dagurinn hentar vel til fasteigna-
viðskipta og annarra viðskipta sem tengjast
heimilinu og fjölskyldunni. Einhver á heim-
ilinu gæti leitað til þín með vandamál sín.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú átt erfitt með að velja á milli
starfs þíns, heimilis og fjölskyldu. Stattu
vörð um einkalífið. Minntu þig á að þú
stjórnar sjálfur huga þínum.
Hjálmar Freysteinsson fagnarnýju ári með hæfilegri hrifn-
ingu, eins og lesa má úr vísu hans:
Nú er komið kosningaár
og kjaftaskar víða á sveimi.
Gleðst við lýðskrum og góðærisspár
gleymnasta þjóð í heimi.
Davíð Hjálmar Haraldsson er
við sama heygarðshornið og færir
dagbók á nýju ári. Hann skrifaði
8. janúar:
Í hlýindum ég hliðra til
og hleyp því apríl núna
um Kaldbak, Emstrur, Kiðagil,
Kjöl og Gjallarbrúna.
En Sigrún Haraldsdóttir lætur
ekki plata sig frekar en fyrri dag-
inn:
Vorkunn mína væmna finn,
varla minnkar raupið.
Eflaust hefur eyminginn
á sig bara hlaupið.
Vésteinn Valgarðsson var raun-
ar fyrstur á Leirnum, póstlista
hagyrðinga, til að færa það í tal
að halda dagbók í bundnu máli.
Hann orti 1. janúar:
Ég samdi eina góða grein
og glamra lét í vösunum
af dobbelvakt með pompi og prakt
og púðurreyk í nösunum.
Og hann orti 2. janúar:
Á morgunvakt ég mætti seint
– mjög þarf tölvu að laga –
frá kaffidrykkju get svo greint
með góðvininum Braga.
Á meðan hann beið eftir að
tölvan virkaði varð honum að
orði:
Lítil átti áramót,
lítið fyndið skaupið,
lítið snæddi og lítil bót
að lítið fékk í staupið.
Magnús Ólafsson frá Sveins-
stöðum lofaði Véstein fyrr fram-
takið:
Afar glaður yrði nú
og yndi mínum hag.
Ef ég gerði eins og þú
eina stöku á dag.
Og hann bætti við að gefnu til-
efni:
Ýmsir höfðu á þeim trú
þau áður spjótin skóku.
En villikettir virðast nú
veslast upp hjá Jóku.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahornið
Af kjaftöskum á sveimi,
dagbók og hagyrðingum
eftir Jim Unger
„ÉG ÆTLA AÐ FÁ ÞAÐ SAMA OG Í GÆR,
SPAGETTÍ OG GOLFKÚLUR.“
HermannÍ klípu
„ÞAÐ HEFUR SEMSAGT KOMIÐ Í LJÓS
AÐ ÞAÐ ERU EKKI BARA BANDARÍKIN
SEM ÞURFA AÐ EIGA VIÐ ÞVERHNÍPI.“
eftir Mike Baldwin
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að gleyma ekki.
Til hamingju
með afmælið!
AF ÞVÍ AÐ KANARÍFUGLAR ERU
GULIR GÆTI MAÐUR HALDIÐ AÐ
ÞAÐ VÆRI SMJÖRBRAGÐ
AF ÞEIM.
EN ÞAÐ ER
ÞAÐ EKKI. FARÐU!
EÐA SÍTR-
ÓNUBRAGÐ!
SEGÐU MÉR VINUR,
NÚ ERT ÞÚ FARSÆLL EN
ÞÚ KANNT HVORKI AÐ
LESA NÉ SKRIFA ...
HVERNIG BORGAR
ÞÚ REIKNINGANA
ÞÍNA?
REIKNINGA?
Víkverji lét sér fátt um finnast þeg-ar tilkynnt var að innleiða ætti
sérstaka skynjara til að skera úr um
hvort bolti hafi farið yfir marklínu,
enda mun það kosta milljarða, en
hann furðar sig á tregðu knatt-
spyrnuyfirvalda til að nýta sér mátt
endursýningarinnar á leikjum, sem
teknir eru upp með tugum mynda-
véla. Ástæðan fyrir því að Víkverji
vekur máls á þessu er atvik í leik
Mansfield og Liverpool í enska bik-
arnum um helgina. Þar tók Luis Sua-
rez boltann greinilega með hendinni
áður en hann skoraði.
x x x
Dómarinn lét markið standa og vareinhvers staðar haft eftir honum
að hann teldi að ekki hefði verið um
ásetning að ræða þegar boltinn fór í
hönd leikmannsins. Ljóst er hins veg-
ar að Suarez baðaði út hendinni þeg-
ar boltinn fór í hana og Víkverji hefur
iðulega séð víti dæmd á varnarmenn
við svipaðar aðstæður – þótt bolt-
anum hafi verið þrumað af alefli og
varnarmaðurinn engan tíma haft til
að halda að sér höndum.
x x x
Víkverja gæti ekki staðið meira ásama um gengi Liverpool, hvort
liðið tapar eða vinnur. Honum fannst
hins vegar ekki síst súrt að þetta
mark skyldi látið standa, þar sem
andstæðingur risaliðsins frá Liver-
pool var utandeildarliðið Mansfield,
sem hæglega hefði getað haft betur ef
allt hefði verið með felldu. Topplið úr
úrvalsdeild enska fótboltans á ekki að
þurfa á slíkri forgjöf að halda til að
sigra utandeildarlið. Nægur er mun-
urinn samt.
x x x
Annars virðist Suarez veikur fyrirhandbolta og kannski hefur hann
smitast af því að nú er HM að hefjast
síðar í vikunni. Minnisstætt er þegar
hann stöðvaði knöttinn með hendinni
þegar hann var á leiðinni í markið í
leik með Úrúgvæ gegn Gana í átta
liða úrslitum heimsmeistaramótsins
2010. Svo virðist sem einhvers konar
vandræði elti Suarez á röndum, en
því er ekki að neita að hann er flinkur
knattspyrnumaður, sem getur verið
unun að fylgjast með. víkverji@mbl.is
Víkverji
Sjá, Guð er hjálp mín, ég er öruggur og
óttast ekki. Því að Drottinn er vörn mín
og lofsöngur, hann kom mér til hjálpar.
Þér munuð með fögnuði vatni ausa úr
lindum hjálpræðisins. (Jesaja 12:2)
V/Reykjalund - Mosfellsbæ - Sími 562 8500 - www.mulalundur.is
Múlalundur - fyrir betri framtíð
ALLT FYRIR SKRIFSTOFUNA