Morgunblaðið - 09.01.2013, Page 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2013
Breski popparinn David Bowie hélt
upp á sextíu og sex ára afmæli sitt í
gær með því að senda frá sér smá-
skífu, þá fyrstu í áratug. Afar lítið
hefur farið fyrir listamanninum síð-
an hann fékk hjartaáfall á tónleika-
ferð árið 2004 og hann sést sjaldan
opinberlega, en hann er búsettur
ásamt eiginkonu sinni, fyrirsætunni
Iman, og dóttur þeirra í New York.
Í kjölfar þess að Bowie harðneit-
aði óskum leikstjórans Dannys
Boyles um að koma fram á opn-
unarhátíð Ólympíuleikanna í sumar
veltu ýmsir poppfræðingar fyrir
sér hvort hann væri endanlega
hættur að hljóðrita tónlist og koma
fram. Ekkert hafði spurt út um
upptökurnar á þessu nýja efni, en
samhliða útgáfu lagsins Where Are
We Now? í gær var tilkynnt að von
væri á nýrri hljómplötu í mars.
Kunnur myndlistarmaður, Tony
Oursler, hefur gert myndband við
lagið og vísar það í fortíð Bowies
þegar hann bjó í Berlín á áttunda
áratug síðustu aldar. Söngvarinn
sést þar horfa á myndir af bílaverk-
stæðinu sem var undir íbúðinni sem
hann bjó í í iðnaðarhverfi í borginni
og aðrar svipmyndir frá borginni.
Nýja platan mun kallast The New
Day og er þrítugasta hljóðversskífa
Bowies. Upptökustjóri er Tony Vis-
conti en þeir unnu saman að mörg-
um vinsælustu plötum Bowies, með-
al annars Low og Heroes í Berlín
og síðar Scary Monsters.
Blaðafulltrúi Bowies vill ekkert
segja um væntanlega tónleika en
orðrómur er uppi um að hann
kunni jafnvel að koma fram á tón-
listarhátíðunum á Glastonbury og
Hróarskeldu í sumar.
Reuters
Kameljón David Bowie hefur brugðið sér í ýmis gervi á glæstum ferli.
Hann hefur selt 130 milljón hljómplötur en ekki komið fram í sex ár.
Bowie sendi frá
sér lag á afmælinu
Von á fyrstu plötu hans í áratug
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Myndlistarmaðurinn Snorri Ás-
mundsson verður fyrstur Íslendinga
til að sýna á myndlistartvíæringi
Suður-Ameríkuríkisins Súrínam en
sá fyrsti verður haldinn þar árið
2015.
„Ég er sem sagt að fara núna til
Súrínam til að vinna verkið fyrir þá
sýningu og mér er boðið að vera
þarna inni í frumskógi. Ég fæ hús,
bát og bátstjóra og eins marga að-
stoðarmenn og ég vil, þannig að
þetta er heilmikið tækifæri,“ segir
Snorri. Hann sé með nokkrar hug-
myndir að því hvað hann vilji gera
en muni ekkert ákveða hvað það
varðar fyrr en hann sé kominn til
Súrínam. „Þetta er tækifæri til að
gera kannski eitthvað stórt „monu-
ment“,“ segir hann þó.
Stofnuðu Manifesta
Tvíæringurinn verður haldinn á
stóru svæði í Súrínam og þá m.a. í
fyrrverandi fangabúðum Frakka á
Djöflaeyju, að sögn Snorra, sögu-
sviði bókarinnar Papillion sem sam-
nefnd kvikmynd var gerð eftir með
Steve McQueen og Dustin Hoffman í
aðalhlutverkum.
-Veistu hversu umfangsmikill
þessi tvíæringur verður?
„Hann er dálítið umfangsmikill.
Fólkið sem stendur að baki honum
hefur reynslu í þessum bransa og
stofnaði m.a. Manifesta-tvíæringinn
á sínum tíma. Það var nú stofnand-
inn sem í raun bauð mér þetta,“ seg-
ir Snorri. Hann hafi lítið vitað um
landið áður en honum var boðið að
sýna þar en sé nú öllu fróðari.
Leiðin niður í Amasón
„Saga þessa lands er mögnuð.
Þetta er nýlenda sem Hollendingar
fengu í skiptum fyrir Manhattan
sem hét þá Nýja-Amsterdam og það
var nú mjög ljót borgarastyrjöld
þarna fyrir 30 árum,“ bendir Snorri
á. Menningarlífið sé afar fjölbreytt í
Súrínam og þeir sem þekkingu hafi á
knattspyrnusögunni viti líka að
margir knáir sparkendur hafi komið
þaðan. Snorri bætir því við að sér
finnist náttúra landsins afar spenn-
andi. „Þetta er náttúrlega leiðin nið-
ur í Amasón og ég er með ýmsar
hugmyndir hvað það varðar,“ segir
hann.
-Hvenær ferðu til Súrínam?
„Ég er að klára verk sem ég er að
gera hérna á Íslandi, er að vinna það
og ætla svo að fara,“ svarar Snorri.
Það verk sé býsna stórt og ekki
tímabært að upplýsa fólk frekar um
það. Þó megi fullyrða að það verði
„eldheitt“.
Það verður vissulega spennandi
að sjá.
Snorri fer til Súrínam
Snorra Ásmundssyni boðið að sýna á fyrsta myndlist-
artvíæringi Súrínam Vinnur að verkinu í frumskógi
Ljósmynd/Spessi
Ævintýri Snorri heldur brátt til Súrínam í Suður-Ameríku þar sem hann
mun dvelja í frumskógi og vinna að verki sínu fyrir tvíæringinn 2015.
Act Heildverslun - Dalvegi 16b - 201 kópavogur
577 2150 - avon@avon.is
Tæki til hársnyrtingar fyrir alla
REMINGTON
merkið sem fólkið treystir
JÓLAMYND2012
FRÁ ÞEIM SÖMU OG
FÆRÐU OKKUR
OG
NAOMI WATTS
TILNEFND TIL GOLDEN GLOBE VERÐLAUNA
BESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI
100/100
„Fer beint í efsta sæti yfir þær myndir
sem fólk verður að sjá á árinu.“
100/100
„Ógnvænlega vel gerð.“
JÓLAMYND 2012
-V.J.V., SVARTHÖFÐI.IS
-EMPIRE
JÓLATEIKNIMYNDIN Í ÁR!
Í 2D OG 3D MEÐ
ÍSLENSKU TALI
-SÉÐ & HEYRT/VIKAN
Gleðilegt Nýtt Ár!
FRÁ FRAMLEIÐENDUM
PARANORMAL ACTIVITY OG INSIDIOUS
80/100
VARIETY
75/100
R. EBERT
STRANGLEGA BÖNNUÐ BÖRNUM
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
VIP
SINISTER KL. 8 - 10:20
HOBBIT: UNEXPECTED JOURNEY3D KL. 8
HOBBIT: UNEXPECTED JOURNEY KL. 6 - 10
HOBBIT: AN UNEXPECTED JOURNEY VIP
KL. 6 - 10
THE IMPOSSIBLE KL. 5:50 - 8 - 8:20 - 10:30
SAMMY 2 ÍSLTAL KL. 5:50
SAMMY 2 ÍSLTAL3D KL. 5:50
RED DAWN KL. 10:50
RISE OF GUARDIANS ÍSLTALI KL. 5:50
AKUREYRI
SINISTER KL. 10:20
THE IMPOSSIBLE KL. 8 - 10:20
RED DAWN KL. 8
KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI
LES TROYENS ÓPERA KL. 18:00
SINISTER KL. 5:40 - 8 - 10:20
THE IMPOSSIBLE KL. 5:30 - 8 - 10:30
SAMMY 2 ÍSLTAL KL. 5:50
KEFLAVÍK
THE IMPOSSIBLE KL. 8 - 10:20
HOBBIT: AN UNEXPECTED JOURNEY 3D KL. 8
SINISTER KL. 10:40
HOBBIT: UNEXPECTED JOURNEY 3D KL. 4:40 - 8
ATH: SÍÐASTA SÝNING Á HOBBIT 10. JAN (EGILSHÖLL)
HOBBIT: AN UNEXPECTED JOURNEY 2D
KL.7-10:20
LIFE OF PI 3D KL. 5:20- 8
THE IMPOSSIBLE KL. 5:30 - 8 - 10:30
SAMMY 2 ÍSLTAL3D KL. 5
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á