Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.01.2013, Blaðsíða 4
verkefninu og síðan var einangrað hvar
væri heppilegast að koma því fyrir. En
síðan dagaði það uppi.“
Kjarnorkuverið var í anda róttækra
hugmynda þess tíma, að sögn Lárusar.
„Menn voru virkilega að fara að virkja
Gullfoss og Geysi, þannig að þetta var
ekki vitlausara en hvað annað. Menn
réðust í nauðsynlegan undirbúning og
Björn Kristinsson starfsmaður Orku-
stofnunar skoðaði þetta í fullri alvöru.
Enda vissu menn ekki það sem vitað er
í dag um kjarnorkuna sem orkugjafa,
auk þess sem olían var dýr og fór bara
hækkandi á fimmta, sjötta og sjöunda
áratugnum. Leitað var hagkvæmra
lausna, þetta hafði gengið vel í Svíþjóð
og í Noregi var þetta til skoðunar.“
Ekki þarf að spyrja að afleiðing-
unum. „Þetta hefði getað orðið alvöru
flugeldasýning,“ segir Lárus og hlær.
„Nú þekkir maður ekkert inn á hvað
þetta hefði verið stórt og mikið. En
maður gefur sér að úraníum hafi nei-
kvæð áhrif. Það þarf ekki kjarneðlis-
fræðing til að átta sig á því.“
„Þetta er náttúrlega allt tæknilega
mögulegt,“ segir Ágúst Valfells kjarn-
Nú þegar 40 ár eru liðin frá eld-gosinu í Vestmannaeyjum ervert að rifja upp áform sem
voru til skoðunar árið 1959 um að reisa
kjarnorkuver í Eyjum. „Þetta átti að
vera lítið og sætt kjarnorkuver,“ segir
Lárus M.K. Ólafsson lögfræðingur, sem
vann hjá Orkustofnun og segir að þetta
sé orðinn hálfgerður innanhússbrandari
þar á bæ.
Í anda hugmynda þess tíma
„Það var alltaf verið að leita að hent-
ugri og ódýrri lausn til að mæta þess-
um jaðarkjörnum eða landshlutum sem
vantaði rafmagn og hita. Einhvern veg-
inn kom það til að íslensk stjórnvöld
fengu tilboð frá General Electric, sem
var að markaðssetja lítil sæt kjarn-
orkuver hér og þar, meðal annars í
Skandinavíu.“
Lárus segir það hafa verið skoðað í
fullri alvöru að leysa vanda Vest-
mannaeyja með kjarnorkuveri. „Það
átti að vera ódýr lausn til að skipta út
jarðefnaeldsneyti. Gefnar voru út þrjár
skýrslur um málið, allar árið 1959. Það
var gerð hagkvæmniúttekt, lýsing á
orkuverkfræðingur sem vann á Orku-
stofnun sumarið 1959, en þá nefndist
hún skrifstofa raforkumálastjóra, nánar
tilgreint orkudeild. En þess má geta að
sonur hans og alnafni er einnig kjarn-
orkuverkfræðingur. „Það hlýtur að vera
genetískt. Ég reyndi ekki að hafa nein
áhrif í þá átt.“
Ágúst segir að þetta sumar hafi ver-
ið miklar vangaveltur um hvað kjarn-
orkan yrði ódýr og menn verið bjart-
sýnir á framtíðina. „En síðan hafa
komið upp mörg atriði, sem ekki var
farið að íhuga á þeim tíma og gera
kjarnorkuna miklu dýrari en menn
höfðu væntingar um.“
Hann telur að það hafi aldrei verið
raunhæft að reisa kjarnorkuver í Vest-
mannaeyjum á þessum tíma. „Það hefði
sýnt sig,“ segir hann. „Síðan kom raf-
strengur frá landi sem var miklu ódýr-
ari. Þá var vatnsaflið talið dýrara, en
komið hefur á daginn að það er ódýr-
asta orkuframleiðsluaðferðin.“
Strik í reikninginn?
Ágúst er ófáanlegur til að kasta mati á
hvað hefði gerst ef kjarnorkuver hefði
verið reist í Vestmannaeyjum. „Það
hefði sýnt sig að svona lítið kjarn-
orkuver hefði aldrei komið til greina,“
segir hann. „Það var hægt tæknilega,
en raforkan var miklu dýrari úr því.
Það sama á við um kjarnorkuver og
önnur orkuver að það gæti hagkvæmni
stærðarinnar. Þau eru 1.000 megawött í
rafmagnsframleiðslu, eins og ein og
hálf Kárahnjúkavirkjun, og víða er það
næstódýrasta orkan. En vatnsaflið er
alltaf ódýrara og hagkvæmni stærð-
arinnar gætir ekki í litlum kjarnorku-
verum.“
En svo eru það hin vandamálin. „Ég
geri ráð fyrir að kjarnorkueldsneytið,
ef eldsneyti má kalla, hefði verið sent
til Bandaríkjanna í endurvinnslu. Við
hefðum því losnað við það vandamál
hvað ætti að gera við geislavirkan úr-
gang. Og víst hefði gosið getað sett
strik í reikninginn.“
Hér er brugðið á leik
með kjarnorkuver í Eyj-
um í samsettri mynd, en
fyrirmyndin að því leit
öðruvísi út, eins og sjá
má á innfelldu myndinni.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Kjarnorku-
ver í Eyjum
GENERAL ELECTRIC GERÐI RAFMAGNSVEITUM RÍKISINS
TILBOÐ Í LÍTIÐ KJARNORKUVER ÁRIÐ 1958. ÁFORM VORU UM
AÐ REISA ÞAÐ Í EYJUM. MÁLIÐ DAGAÐI UPPI ENDA AÐRAR
LEIÐIR HAGKVÆMARI Í ORKUÖFLUN. Í LJÓSI SÖGUNNAR
MÁ EF TIL VILL HRÓSA HAPPI YFIR ÞVÍ.
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.1. 2013
* „Það vantaði orkuver í Vestmannaeyjum. Menn vildu þvíkanna aðra möguleika, þar á meðal kjarnorku. Þess vegna varóskað eftir tilboði frá General Electric.“ Björn Kristinsson prófessor emiritus ÞjóðmálPÉTUR BLÖNDAL
pebl@mbl.is
„Kjarnorkuver fyrir Vestmannaeyjar“ er yfirskrift skýrslu sem
Björn Kristinsson skrifaði fyrir orkudeild raforkumálastjóra í
mars árið 1959 og er undirtitillinn „Lýsing á tilboði General
Electric“.
Skýrslan hefst á þessum orðum: „Í byrjun árs 1958 fengu raf-
magnsveitur ríkisins tilboð í lítinn suðuvatnsreaktor [með léttu
vatni og auðguðu úraníum] frá General Electric og voru þá
Vestmannaeyjar einkum hafðar í huga sem væntanlegur staður
fyrir reaktorinn. Með reaktor sem þessum mætti sjá eyjunum
fyrir raforku, en jafnframt gæti hann verið undirstaða hitaveitu
fyrir kaupstaðinn.“
Fram kemur að slík álver séu yfirleitt ofanjarðar, t.d. í Noregi
og Svíþjóð, og þurfi 2 hektara landrými. Reaktor af svipaðri
gerð hafi General Electric reist í Vallecitos í Kaliforníu. Það var
reist árið 1957 og var það fyrsta sinnar tegundar hjá GE, en
hætt var að nota það árið 1963. Reiknað er með úraníum-
hleðslu upp á 2.680 kg, 52 eldsneytishylkjum og að varmaaflið
sé 26,2 megawött.
Áætlað er að 24 vinni við álverið, 15 við rekstur á reaktor og
tækjum, átta við ýmiskonar þjónustu og skrifstofustörf og að
þar sé einn yfirmaður. Auk þess muni þurfa öðru hvoru á auknu
starfsliði að halda, níu manns við viðgerðir og lagfæringar og
fjórum við verkfræðiþjónustu.
FYRIRMYNDIN Í KALIFORNÍU
„Í mjög stuttu máli kom þetta þannig til að kjarn-
orkuveldin opinberuðu mikið af leyndarmálum sínum
árið 1952,“ segir Björn Kristinsson prófessor em-
eritus, sem vann skýrslurnar um kjarnorkuver í Vest-
mannaeyjum fyrir orkudeild raforkumálastjóra.
Orka úr krananum
„Þá var haldin risastór ráðstefna í Genf og gefið út mik-
ið bókasafn, þar sem kjarnorkuverum var lýst ítarlega. Í
framhaldi af því héldu menn að kjarnorkan væri handan
við hornið fyrir almenning. Þorbjörn Sigurgeirsson
prófessor orðaði það þannig, að það væri varla við því
að búast að vatnsaflið yrði mikils virði þegar hægt væri
að fá miklu meiri orku úr vatnskrananum heima hjá
sér.“
Tvær aðferðir eru til að vinna kjarnorku, ann-
arsvegar með sprengingu og úrani, en hinsvegar með
því að hægja á því í kjarnorkuveri, að sögn Björns. „Svo
er hægt að vinna hana líka með vetni, sameina vetn-
isatóm og fá út helíum, en við það losnar geysimikil
orka úr læðingi. Það hefur ekki tekist nema með
sprengingu, en þarna héldu menn að þetta myndi leys-
ast innan örskamms tíma.“
Ekkert rætt um virka eldstöð
Fyrir lá að það vantaði orkuver í Vestmannaeyjum.
„Þar var rafstöð með dísilvélum áður en rafstraum-
urinn kom úr landi og það var mjög dýrt að keyra hana
með olíu,“ segir Björn. „Menn vildu því kanna aðra
möguleika, þar á meðal kjarnorku. Þess vegna var ósk-
að eftir tilboði frá General Electric. Þá kom í ljós að
þetta var mjög lítið kjarnorkurver, fá megavött, og að
þau eru hlutfallslega mjög dýr. Þetta var því ekki nógu
vænlegur kostur.“
Á þeim tíma var ekkert rætt um að hugsanlega væri
virk eldstöð í Eyjum. „Nei, nei, menn töldu að þessi
eldstöð væri kulnuð,“ segir Björn og bætir við að hann
hafi ekki nennt að pæla í því hvað hefði gerst ef kjarn-
orkuver hefði risið í Eyjum fyrir eldgos. „Þá hefðu
menn þurft að slökkva og það hefði getað orðið
óþægilegt,“ segir hann. „Að vísu var byggður utan um
kjarnorkuverin mjög sterkur hlífðarskjöldur til að
losna við að það lækju út geislavirk efni. En ég get ekki
svarað spurningu þinni hvað væri líklegt að hefði skeð.“
MENN VILDU KANNA
AÐRA MÖGULEIKA