Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.01.2013, Qupperneq 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.01.2013, Qupperneq 16
*Með fjallaskíði á fótum geta ferðalangar farið um óbyggðir og kannað áður óþekktar slóðir »18Ferðalög og flakk Það er eitthvað notalega nostalgíukennt við að búa í enskum smábæ, sérstaklega þegar „vetrarhörkur“ standa yfir. Þá láta húseigendur loga glatt í arninum svo að á kvöldin liggur létt mistur yfir öllu. Annars notast Englendingar við nýtísku miðstöðvarkyndingu, en eru enn fastir í stríðsárasparnaðinum. Ekki má kynda tóm hús á daginn og algjör óþarfi að kynda á nóttunni þegar fólk er dúðað undir sæng. Þótt ég búi í nýlegu húsi finn ég hvernig kólnar um leið og slokknar á kyndingunni á kvöldin. Merkilegt að vera svo umhugað um að spara, en byggja samt hús sem halda hitanum ekki betur en þetta! Sem betur fer á ég nóg af íslenskum lopaflíkum; ég skelli mér bara í lopapeysu og fæ mér þrítugasta tebolla dagsins. Ingibjörg Rósa Björnsdóttir blaðamaður Segja má að tedrykkja sé nokkurs konar þjóðaríþrótt Breta. Ingibjörg Rósa unir sér vel í Dorset. Meira te! PÓSTKORT F RÁ DORSET arfarið er allt annað þarna eystra,“ segir Þóroddur. Hann segir lagskiptinguna mikla og virðingu borna fyrir þeim sem eldri séu og ofar settir í stiganum. Þá nálgist Jap- anar öll sín verkefni af meiri alúð og áhuga en hann hafi kynnst annars staðar. Hann nefnir þjónustulundina sem dæmi. „Japanar hafa al- veg ótrúlega þjónustulund, það er sama hvar maður er, í flugi eða á bensínstöð, fólk rýkur upp til handa og fóta til að aðstoða mann,“ segir Þóroddur. Loftslagsráðstefnan fór fram í Kyoto meðan Þóroddur var ytra og tók hann að sér að fjalla um hana fyrir Morg- unblaðið. „Það var ótrúlegt ævintýri. Ég var einn frá Morg- unblaðinu en við hliðina á mér voru sextíu manns frá CNN og annað eins frá BBC. Manni leið virkilega eins og maður væri staddur á vettvangi stórviðburðar.“ Engir aðrir útlendingar voru í skólanum, sem Þóroddur var í, og fyrir vikið umgekkst hann heimamenn meira en ella. „Útlendingar hafa tilhneigingu til að sækja hverjir í aðra en þarna var ekki um það að ræða. Fyrir vikið tengdist ég Japönunum betur. Þetta er mikið gæðafólk og ég ber mikla virðingu fyrir samfélaginu og ekki síður menningunni. Matarmenningin er til dæmis mjög heillandi.“ Japanar eru frægir fyrir vinnusemi sína og Þóroddur stað- festir það. „Þeir eru mjög duglegir og samviskusamir í vinnu og fara helst ekki heim fyrr en yfirmaðurinn er farinn. Fari yfirmaðurinn á barinn eftir vinnu fylgja undirmenn hans með. Fyrir vikið er ekki óalgengt að menn komi heim úr vinnunni um eða eftir miðnætti,“ segir Þóroddur og skellir upp úr. Þóroddur fékk tækifæri til að ferðast til Japan á ný árið 2009, þegar hann fékk úthlutað vinnustofu í borginni Yama- guchi í einn mánuð. Fátt hafði breyst á þessum rúma áratug nema hvað heimamenn töluðu um að efnahagurinn hefði heldur versnað. „Í þetta seinna skipti gafst mér tækifæri til að fara til hinnar víðfrægu borgar Hiroshima,“ segir Þór- oddur sem kom meðal annars í minnisgarðinn um kjarn- orkusprenginguna og „Ground Zero“, sem er beint fyrir neð- an staðinn þar sem sprengjan sprakk en hún sprakk sem kunnugt er meðan hún var ennþá í loftinu. „Það var mjög dramatísk upplifun að heimsækja Hiroshima.“ K ynni Þórodds Bjarnasonar af Japan hófust árið 1997 þegar hann hélt þangað til framhaldsnáms í mynd- list, ásamt eiginkonu sinni, Írisi Stefánsdóttur og syninum Styrkári, sem þá var tveggja ára. Dvaldist fjölskyldan um eins árs skeið í borginni Kitakyushu, sem er miðja vegu milli Tókýó og Sjanghæ. „Ég hafði nýlokið námi við Myndlista- og handíðaskólann og stóð líka til boða að fara til London en það var miklu meira spennandi að fara til Japan. Ég hafði heyrt myndlist- armenn lýsa dvöl sinni þar og það kveikti í mér. Síðan er Kitakyushu bara meira framandi en London,“ segir Þór- oddur. Vel var tekið á móti fjölskyldunni enda Japanar víðfrægir fyrir gestrisni sína. Þóroddur segir íbúa Kitakyushu þó al- mennt tala litla ensku, þannig að fingurnir voru mikið á lofti. Fjölskyldan ferðaðist heilmikið enda þótt þau væru „pen- ingalausir námsmenn“ og heillaðist fljótt af landi og þjóð. „Það er margt skemmtilegt og fallegt að sjá í Japan. Þetta er vestrænt samfélag, eins og okkar, og velmegun víðast hvar mikil. Samt eru Ísland og Japan tvennt ólíkt. Hug- JAPAN Í UPPÁHALDI Allt annað hugarfar ÞÓRODDUR BJARNASON MYNDLISTARMAÐUR HEFUR DVALIST Í TVÍGANG Í JAPAN OG BER LANDI OG ÞJÓÐ AFAR VEL SÖGUNA. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Þóroddur Bjarnason á Ground Zero í Hiroshima 2009. Heimsóknin þangað var mikil upplifun. Þóroddur og samnemendur hans með gjörningalistamanninum Marinu Abramović, sem var kennari við skólann veturinn 1997-98. Dæmigert japanskt hof – þetta er í borginni Yamaguchi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.