Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.01.2013, Page 60
60 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.1. 2013
Mikið hefur verið rætt og ritað um gjána sem hefurmyndast hin síðari misseri milli bestu liðanna íensku knattspyrnunni og þeirra liða sem eru í
næsta lagi fyrir neðan. Annað árið í röð stefnir í einvígi Man-
chester-liðanna, United og City, um meistaratitilinn. Önnur
félög virðast hreinlega ekki eiga möguleika.
Líklega hefur enginn stakur gjörningur endurspeglað þessa
gjá betur en vistaskipti Robins van Persies síðasta sumar en
hann gekk sem kunnugt er í raðir Manchester United frá
Arsenal. Tilgangurinn: Að vinna titla. Hollendingurinn er orð-
inn 29 ára og eftir átta ár hjá Arsenal gafst hann upp á að
bíða eftir meistaratign. Og hvar skyldi Arsenal hafa lokið
keppni á liðnum vetri? Í 3. sæti. Það var ekki eins og félagið
hefði lónað handan góðs og ills um miðja deild.
Arsenal er eitt fjögurra félaga sem unnið hafa úrvalsdeild-
ina, frá stofnun hennar 1992, fyrir utan Manchester United,
og fyrir fáeinum árum hefði þetta verið óhugsandi. Thierry
Henry, Patrick Vieira og
Dennis Bergkamp hefðu
aldrei gengið til liðs við
Manchester United. En
þá var öldin önnur, Ars-
enal var að vinna titla
og bestu leikmenn fé-
lagsins þurftu ekki að
leita annað til að svala
sínum faglega þorsta.
Breska ríkissjón-
varpið, BBC, birti fyrir
skemmstu forvitnilega
töflu á heimasíðu sinni.
Hún hverfist um vinn-
ingshlutfall bestu lið-
anna í ensku knatt-
spyrnunni undanfarin fjörutíu ár. Athygli vekur að Liverpool,
sem bar ægishjálm yfir önnur ensk félög á áttunda og níunda
áratugnum, var ekki með nema um 55% sigurhlutfall á þeim
tíma. Sigurhlutfall Manchester United, sem tók við keflinu á
tíunda áratugnum, var lítið eitt hærra, 57%, en hækkaði upp í
67% á fyrsta áratugi þessarar aldar. Það er umtalsvert stökk.
Lítil reynsla er vitaskuld komin á þennan áratug en hlutfallið
hjá United hækkar samt, losar nú 70%.
Liverpool vann ekki einn einasta meistaratitil á síðasta ára-
tug, eigi að síður er vinningshlutfall liðsins ekki langt frá því
sem það var á gullaldarárunum, 54%.
Arsenal vann bara tvo meistaratitla á síðasta áratug en
samt var sigurhlutfall liðsins, 60%, sumsé nokkru hærra en
það var hjá Liverpool á níunda áratugnum, þegar liðið varð
sex sinnum enskur meistari.
Morgunblaðið lagðist í frekari rannsóknir, skoðaði meðal
annars stigahlutfall ensku meistaranna fjóra áratugi aftur í
tímann. Til að gera langa sögu stutta fer það vaxandi. Féll
reyndar um 3 prósentustig frá áttunda áratugnum fram á
þann níunda, úr 72% að meðaltali í 69%, en hækkaði aftur á
þeim tíunda, upp í 70%. Á fyrsta áratug þessarar aldar fór
stigahlutfall meistaranna upp í 77% að meðaltali. Aðeins eru
tvö ár liðin af þessum áratug og meðaltalið því varla mark-
tækt en til fróðleiks má geta þess að það er 74%.
Chelsea náði hæstu hlutfalli stiga, 83%, þegar liðið setti
stigametið í úrvalsdeildinni árið 2005, 95 stig. Frá árinu 1971
hefur þetta hlutfall aðeins fjórum sinnum náð 80%, Liverpool
1979 (81%), Manchester United 2000 (80%), Chelsea 2005
(83%) og Chelsea 2006 (80%).
Lægsta stigahlutfall meistaraliðs á þessu sama tímabili er
63%, Derby (1975), Liverpool (1984) og Man. Utd (1997).
Ekki kemur á óvart að sífellt færri félög komast að meist-
aratitlinum. Á síðasta
áratug unnu aðeins
þrjú félög hann, fjögur
félög á tíunda og ní-
unda áratugnum en
fimm á þeim áttunda. Á
sjöunda áratugnum
urðu hvorki fleiri né
færri en sjö félög
meistari.
Annað sem fróðlegt
er að skoða í þessu
sambandi er munurinn
á meistaraliðinu hverju
sinni og liðinu sem
hafnar í fimmta sæti
deildarinnar (og verður
þar af leiðandi af sæti í Meistaradeild Evrópu, eins og fyr-
irkomulagið er núna). Það bil hefur einnig verið að breikka.
Á níunda áratugnum var þetta bil að meðaltali 18 stig og
19 stig á þeim tíunda. Á fyrsta áratug þessarar aldar jókst
bilið hins vegar upp í heil 25 stig að meðaltali. Það sem af er
þessum áratug er það 21 stig.
Mestur varð þessi munur 2005, þegar Chelsea varð hvorki
meira né minna en 37 stigum á undan liðinu í fimmta sæti,
Liverpool. Minnstur varð munurinn á hinn bóginn 1983, þeg-
ar meistarar Liverpool urðu ekki nema 13 stigum á undan lið-
inu í fimmta sæti, Nottingham Forest.
Á níunda áratugnum fór þessi munur aðeins tvisvar sinnum
yfir 20 stig, fjórum sinnum á tíunda áratugnum en á síðasta
áratug sjö sinnum, þar af í tvígang yfir 30 stig.
Allt ber þetta að sama brunni.
AFP
Bilið bítur
STIGAHLUTFALL GULLALDARLIÐS LIVERPOOL Á ÁTTUNDA OG NÍUNDA ÁRATUGNUM VAR UM 55%.
Á SÍÐASTA ÁRATUG NÆLDI SIGURSÆLASTA LIÐIÐ, MANCHESTER UNITED, Í 67% MÖGULEGRA STIGA.
ÞAÐ STAÐFESTIR AÐ BESTU LIÐIN Í ENGLANDI ERU AÐ RÍFA SIG ENN LENGRA FRÁ ÞEIM NÆSTU.
Sigurhlutfall liða eftir áratugum
Heimild: OPTA
1980-1989 2000-20091970-1979 1990-1999 2010-2012
70%
65%
60%
55%
50%
45%
40%
35%
30%
25%
Arsenal Chelsea Liverpool Man. City Man. Utd
44%
55%
40%
39%
31%
70%
61%
55%
51%
41%
Englandsmeistarar
Ár Meistari Stig % Leikir
1971 Arsenal 65 77 42
1972 Derby 58 69 42
1973 Liverpool 60 71 42
1974 Leeds 62 74 42
1975 Derby 53 63 42
1976 Liverpool 60 71 42
1977 Liverpool 57 68 42
1978 N. Forest 64 76 42
1979 Liverpool 68 81 42
1980 Liverpool 60 71 42
1981 AstonVilla 60 71 42
1982* Liverpool 87 69 42
1983 Liverpool 82 65 42
1984 Liverpool 80 63 42
1985 Everton 90 71 42
1986 Liverpool 88 70 42
1987 Everton 86 68 42
1988 Liverpool 90 75 40
1989 Arsenal 76 67 38
1990 Liverpool 79 69 38
1991 Arsenal 83 73 38
1992 Leeds 82 65 42
1993 Man Utd 84 67 42
1994 Man Utd 92 73 42
1995 Blackburn 89 71 42
1996 Man Utd 82 72 38
1997 Man Utd 75 63 38
1998 Arsenal 78 68 38
1999 Man Utd 79 69 38
2000 Man Utd 91 80 38
2001 Man Utd 80 70 38
2002 Arsenal 87 76 38
2003 Man Utd 83 73 38
2004 Arsenal 90 79 38
2005 Chelsea 95 83 38
2006 Chelsea 91 80 38
2007 Man Utd 89 78 38
2008 Man Utd 87 76 38
2009 Man Utd 90 79 38
2010 Chelsea 86 75 38
2011 Man Utd 80 70 38
2012 Man City 89 78 38
*Þriggja stiga regla tekin upp 1981-1982
Wayne Rooney og félagar í
Manchester United munu gera
allt sem í þeirra valdi stendur
til að ryðja David Silva og
þeim kempum í Manchester
City úr vegi í vetur.
„Ég er knattspyrnustjóri hjá frægasta félagi í heimi.“
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United.
Boltinn
ORRI PÁLL ORMARSSON
orri@mbl.is
Nærtækasta skýringin á því að bilið milli bestu liðanna í
ensku úrvalsdeildinni og þeirra sem koma þar á eftir
breikkar jafnt og þétt er auðvitað peningar. Manchester
United, langsigursælasta félagið í sögu úrvalsdeildarinnar,
hefur úr miklu fé að moða, mesta fylgið, bæði á lands- og
heimsvísu, og það er engin tilviljun að félagið hefur unnið
tólf meistaratitla á þeim tuttugu árum sem úrvalsdeildin
hefur verið við lýði.
Auðvitað má heldur ekki vanmeta framlag knatt-
spyrnustjórans, Sir Alex Fergusons. Hann er löngu yfir
alla gagnrýni hafinn.
Undanfarinn áratug hefur veldi Rauðu djöflanna aðeins
verið ógnað af nýríkum félögum, fyrst Chelsea og nú
Manchester City. Fjármagnið sem Roman Abramovitsj
dældi inn í Chelsea eftir að hann eignaðist félagið fyrir
áratug var án fordæma á þeim tíma. Það skilaði strax
tveimur meistaratitlum, 2005 og 2006, þeim fyrstu hjá
félaginu í hálfa öld. Þriðji titillinn kom 2010.
Fjárhagslegt bolmagn Manchester City varð jafnvel
enn meira eftir að Sjeik Mansour bin Zayed bin Zayed Al
Nahyan náði þar völdum árið 2007. Kappinn hefur varið
hátt í 500 milljónum sterlingspunda í kaup á leikmönnum
síðan og tryggði sér meistaratitilinn í fyrra.
Síðasta félagið til að verða Englandsmeistari án þess að
verja til þess yfirgengilegum fjármunum er Arsenal, 2004.
Eins og veður hefur skipast í lofti virðist Lundúnafélagið
eiga litla möguleika á að elta auðveldin uppi. Sama máli
gegnir um annað stórveldi, Liverpool, sem fór síðast
með sigur af hólmi í deildinni árið 1990. Tottenham
Hotspur, sem í sögulegum skilningi er stórt félag, varð
síðast enskur meistari árið 1961. Við núverandi skilyrði
geta þessi félög í besta falli keppt um meistaradeildarsæti.
Þarf frekari vitna við?
LEYST FRÁ BUDDUNNI