Morgunblaðið - 21.02.2013, Blaðsíða 38
38 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2013
Auðbrekku 3 ~ 200 Kópavogur ~ Sími: 564 1660 ~ oreind.is
Þar sem að gervihnattabúnaðurinn fæst
LAGNAEFNI FYRIR
TÖLVUR OG NET
Digitus net lagnaefnið hefur verið á
markaðnum um allan heim
síðan 1994 við góðan orðstýr.
Frá þeim fáum við allt sem
þarf til að gera gott
netkerfi fyrir heimili
eða fyrirtæki.
Mótari sem sendir mynd
frá myndlykli um húsið
með loftnetslögnum sem
er fyrir í flestum húsum.
TRI
AX
TFM
001
MÓ
TAR
I
NÝJUNG HJÁ OKKUR
K
aren fæddist í Reykja-
vík 21.2. 1973 en ólst
upp í Keflavík. Hún var
í Myllubakkaskóla og
Holtaskóla, lauk versl-
unarprófi frá Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja, BBA-prófi í markaðsfræði
og MBA-prófi frá Lamar University í
Beaumount í Texas. Þá hefur hún
LPGA-réttindi sem viðurkenndur
golfkennari, er með einkaþjálfarapróf
frá World Class og lærði á klassískan
gítar í Tónlistarskóla Keflavíkur
1982-87.
Karen vann í Leirunni á Hólmsvelli
á sumrin, var í sumarvinnu í tollinum
í Leifsstöð og var golfþjálfari við
Lamar University, var útibússtjóri
við útibú Wood Forrest National
Bank í San Antonio í Bandaríkjunum
2001-2007 og í lokin jafnframt aðstoð-
arframkvæmdastjóri þar.
Karen flutti aftur heim 2008 og fór
Karen Sævarsdóttir, bankamaður og golfkappi – 40 ára
Heima á Faxabraut Karen fyrir 15 árum með nokkra af þeim aragrúa verð-
launagripa sem hún hefur fengið á sigursælum ferli sínum.
Sigursælust golfkvenna
„Í Leirunni“ Karen og Sören, sonur hennar, með Hólmsvöll í baksýn, fyrir tveimur árum.
Einar Guðmann Örnólfsson fagnar í dag fjörutíu ára stór-afmæli og segir að dagurinn muni hefjast á því að sinna bú-skapnum og rýja ærnar. Hann á stóra fjölskyldu, konu og
þrjú börn, og er bóndi á Sigmundarstöðum í Borgarfirði.
„Þetta er svona kjarnafjölskylda eins og í gamla daga og for-
eldrar mínir byggðu sér sitt eigið „elliheimili“ á bænum,“ segir Ein-
ar. Það séu nú flestir dagar eins í sveitinni en Einar ætlar að fagna
afmælinu með nánustu fjölskyldu og í kvöld liggur leiðin á söng-
æfingu með karlakórnum Söngbræðrum. Nýverið var haldin í sveit-
inni árleg hrossakjöts- og sviðaveisla sem karlakórinn stóð fyrir og
var mikið líf og fjör. Aðspurður segist Einar ekki fara oft í frí en
skemmtilegt flakk kemur á sumrin þegar hjónin fari með börnin sín
á unglingalandsmót vítt og breitt um landið.
Einar er menntaður búfræðingur frá Bændaskólanum á Hvann-
eyri og kennaramenntaður frá Háskólanum á Akureyri. Hann segist
hafa tekið að sér að kenna í afleysingum á Varmalandi.
„Það vill svo skemmtilega til að ég er að kenna næstu tvær vikur,
stærðfræði og íþróttir,“ segir Einar. Sjálfur fari hann með strákun-
um í sveitinni í körfubolta einu sinni í viku. „Það er spriklað í þessu
og það er ákaflega gott fyrir heilsuna, bæði andlega og líkamlega,“
segir Einar að lokum glaður í bragði.
Einar Guðmann Örnólfsson 40 ára
Fertugur Einar Guðmann á hlaðinu á Sigmundarstöðum.
Söngelskur bóndi í
Borgarfirðinum
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Neskaupstaður Aron Leví fæddist 20.
apríl. Hann vó 900 g og var 35 cm
langur. Foreldrar hans eru Jóhanna
Smáradóttir og William Geir Þor-
steinsson.
Nýir borgarar
Kópavogur Emma Lilja fæddist 9. maí
kl. 9.51. Hún vó 2.470 g og var 46 cm
löng. Foreldrar hennar eru Lovísa
Kristín Karlsdóttir og Tómas Aquinas
Rizzo.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is