Morgunblaðið

Dagsetning
  • fyrri mánuðurfebrúar 2013næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    272829303112
    3456789
    10111213141516
    17181920212223
    242526272812
    3456789

Morgunblaðið - 21.02.2013, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 21.02.2013, Blaðsíða 10
Hátt Hér stendur Sigurbjörg á áttundu hæð en þó ekki í þeim hugleiðingum að stökkva. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is É„g bjó einmitt úti í Barce-lóna í íbúð á fjórðu hæð meðagnarlitlum svölum þegar égskrifaði þessa bók,“ segir Sigurbjörg Þrastardóttir rithöfundur um skáldsöguna Stekk sem hún sendi frá sér nýliðið haust. Í þeirri sögu segir af ungri íslenskri konu sem búsett er í Barcelóna og íhugar að stökkva fram af svölunum þar sem hún býr á fjórðu hæð. Hún er yfirkomin af sektarkennd og vill refsa sjálfri sér með því að slasa sig illa. Hún ætlar sér ekki að fyrirfara sér. „Mig langaði að skrifa sögu um líkam- leikann og um það að grípa með afger- andi hætti inn í framgang eigin lífs með því að skaða sig alvarlega. Við búum í líkamanum og það er stöðug athygli á útlit hans í samfélagi okkar. Það gleym- ist næstum hvernig fólki líður innan í þessum líkama. Við erum líkaminn okk- ar og við notum hann í samskiptum við aðra, til að tjá okkur. Þegar við viljum vera góð við einhvern, þá snertum við hann. Við notum líka líkamann til að vera vond við hvert annað, með því að hrinda eða slá.“ Var það góðverk eður ei? Grunnstefið í bókinni eru siðferðis- Að stökkva eða ekki fram af svölunum Sigurbjörg Þrastardóttir skrifaði fyndna bók um þá miður fyndnu líðan ungrar konu að vilja stökkva fram af svölum til að slasa sig viljandi. Til að refsa sér. Til að losna undan líkamlegum löngunum og koma í veg fyrir að hún geri óskunda. Skáldsaga Um Alexöndru. Á vef Borgarbókasafns má sjá að þar verður Alþjóðlegum móðurmálsdegi fagnað með tveimur viðburðum. Sá fyrri, Mál og Movement, verður í aðal- safni, Tryggvagötu 15, í dag, kl. 17.30- 18.30. Dagskrá:  Setning Alþjóðlega móðurmáls- dagsins.  Fimm ár með fjölmenningu í Borg- arbókasafni.  Kynning á Víðsýni, nýju fjölmenning- arlegu félagi, sem opnar bráðlega Vi- sion Media, nýjan fréttavef á mörgum tungumálum.  Karókísöngur á ýmsum tungumálum.  Skemmtiatriði. Léttar veitingar í boði. Ókeypis inn og allir velkomnir. Seinni viðburðurinn OKKAR MÁL verður næsta laugardag 23. febrúar kl. 13-16 í Gerðubergi. Vefsíðan www.borgarbokasafn.is Karókísöngur á ýmsum málum 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2013 Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Nú á laugardag, 23. febrúar, boðar Upplit, menningarklasi uppsveita Ár- nessýslu, til málþings á Hótel Gull- fossi í Brattholti í Biskupstungum. Yfirskriftin er „Hefur blómlegt menn- ingarlíf áhrif á búsetuval?“ Sérstakur gestur málþingsins verð- ur Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, menningarfulltrúi Eyþings. Erindi Ragnheiðar Jónu ber yfirskriftina „Skiptir menning máli?“ og er því ætl- að að virka sem kveikja að umræðum meðal fundarmanna að því loknu. Þar mun hún segja frá menningarstarfi á Norðurlandi eystra og þróunarverkefni sem nú er að fara af stað á jaðarsvæði Þingeyjarsýslu. Verkefninu er ætlað að laða ungt menntað fólk í menningu og listum ættað af svæðinu heim til að standa fyrir metnaðarfullum menn- ingarverkefnum. Menningarklasinn Upplit var stofn- aður snemma árs 2010 af hópi áhuga- samra einstaklinga um menningu og sögu uppsveitanna og fékk til þess styrk frá Vaxtarsamningi Suðurlands. Upplit hefur á undanförnum þremur árum staðið fyrir mánaðarlegum menningarviðburðum víðsvegar um uppsveitirnar og þannig lagt sitt af mörkum til að skapa ný tækifæri til uppbyggingar í menningartengdri ferðaþjónustu. Á árlegum málþingum sem haldin eru í tengslum við aðal- fund Upplits eru menningarmálin rædd frá ýmsum hliðum og góðir gest- ir fengnir úr öðrum landshlutum með ferskan gust inn í umræðuna. Allir þeir sem láta sig menningar- starfsemi í heimabyggð varða eru hvattir til að mæta. Málþingið hefst kl. 14 en að því loknu, um kl. 16, verður aðalfundur Upplits haldinn á sama stað. Á dagskrá eru venjuleg aðal- fundarstörf. Nánar á www.upplit.is. Málþing á Hótel Gullfossi í Brattholti „Hefur blómlegt menningarlíf áhrif á búsetuval?“ Erindi Ragnheiður Jóna Ingimars- dóttir verður gestur málþingsins. Fjarðarkaup Gildir 21.-23. febrúar verð nú áður mælie. verð Svínakótelettur, kjötborð .................................. 1.198 1.698 1.198 kr. kg Nauta innanlæri, kjötborð ................................ 2.798 3.398 2.798 kr. kg Kindafille, kjötborð .......................................... 2.898 3.498 2.898 kr. kg Hamborgarar, 4 stk., 80 g ................................ 620 720 620 kr. pk. Gríms frosnar fiskibollur, 2 kg ........................... 1.563 1.998 782 kr. kg Alí spareribs, soðið .......................................... 1.257 1.733 1.257 kr. kg Findus Wok frosið grænmeti ............................. 349 598 349 kr. pk. Hagkaup Gildir 21.-24. febrúar verð nú áður mælie. verð SS ítölsk helgarsteik ........................................ 2.249 2.999 2.249 kr. kg Íslandsnaut un gúllas/snitsel ........................... 2.249 2.999 2.249 kr. kg Íslandsn. hamb. 4 stk. m/brau ......................... 749 998 749 kr. pk. Holta leggir ferskir í magnp............................... 779 1.198 779 kr. kg Fjallabrauð ..................................................... 299 449 299 kr. stk. Pitsaslaufa ..................................................... 149 199 149 kr. stk. Kjarval Gildir 21.-24. febrúar verð nú áður mælie. verð Goða súpukjöt ................................................ 766 958 766 kr. kg Holta kjúklingabitar, magnpakk. ....................... 638 798 638 kr. kg Búrfells brauðskinka, 250 g ............................. 369 415 369 kr. pk. Frönsk smábrauð, 270 g.................................. 169 249 169 kr. pk. FP eldhúsrúllur, 4 stk. ...................................... 399 469 399 kr. pk. Ostakaka, 4 teg............................................... 1.124 1.249 1.124 kr. pk. Neutral þvottaefni stórv. 1,9 kg ......................... 899 999 899 kr. pk. Helgartilboðin 15% afsláttur Gildir út febrúar

x

Morgunblaðið

Gerð af titli:
Flokkur:
Gegnir:
ISSN:
1021-7266
Tungumál:
Árgangar:
111
Fjöldi tölublaða/hefta:
55740
Skráðar greinar:
3
Gefið út:
1913-í dag
Myndað til:
30.09.2024
Skv. samningi við Árvakur útgáfufélag Morgunblaðsins er ekki hægt að sýna efni frá síðustu þremur árum Morgunblaðsins í almennum aðgangi á Tímarit.is.
Útgáfustaðir:
Ritstjóri:
Vilhjálmur Finsen (1913-1921)
Þorsteinn Gíslason (1921-1924)
Jón Kjartansson (1924-1947)
Valtýr Stefánsson (1924-1963)
Sigurður Bjarnason frá Vigur (1963-1970)
Matthías Johannessen (1959-2000)
Eyjólfur Konráð Jónsson (1960-1974)
Styrmir Gunnarsson (1972-2008)
Ólafur Þ. Stephensen (2008-2009)
Davíð Oddsson (2009-í dag)
Haraldur Johannessen (2009-í dag)
Útgefandi:
Félag í Reykjavík (1924-1947)
Árvakur (1947-í dag)
Efnisorð:
Lýsing:
Dagblað. Fréttir og greinar um innlend sem erlend málefni.
Styrktaraðili:
Fylgirit:

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað: 43. tölublað (21.02.2013)
https://timarit.is/issue/370922

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

43. tölublað (21.02.2013)

Aðgerðir: