Morgunblaðið

Dagsetning
  • fyrri mánuðurfebrúar 2013næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    272829303112
    3456789
    10111213141516
    17181920212223
    242526272812
    3456789

Morgunblaðið - 21.02.2013, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 21.02.2013, Blaðsíða 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2013 Kveðja frá félögum í Val Stundum er lífið svo ósann- gjarnt að maður skilur ekki til- ganginn. Það er ósanngjarnt þegar ungir og efnilegir menn eru hrifnir á brott, rétt í þann mund að þeir eru að byrja að vinna úr menntun sinni og stofna fjölskyldu. Haustið 1993 komu tveir ungir efnispiltar úr Gróttu og gengu til liðs við handknattleiksdeild Vals. Þeir hófu æfingar með þriðja flokki. Þetta voru bræðurnir Jónas og Bjarki Hvannberg. Þessir piltar voru félaginu mikill fengur, vel uppaldir og vel gerðir drengir og góðir handboltamenn. Við fé- lagarnir í þriðja flokki Vals átt- um því láni að fagna að eignast þessa bræður fyrir félaga og vini, og með okkur tókst traust og góð vinátta. Það er eins og gengur í lífinu að svona hópar tvístrast, sumir halda áfram í boltanum aðrir fara í framhalds- nám. Þessi flokkur hefur haldið vel saman í gegn um tíðina og kveðjum við nú þennan kæra vin með söknuði. Það gerum við öll sem kynntumst þessum ljúfa og góða dreng. Jónas Hvannberg ✝ Jónas Hvann-berg bækl- unarskurðlæknir fæddist í Reykjavík 5. janúar 1978. Hann lést fimmtudaginn 31. janúar 2013 á líknardeild Landspít- alans í Kópavogi. Útför Jónasar fór fram frá Dómkirkj- unni 11. febrúar 2013. Hans líf var sem vonin er vornóttin ól, Í vetrarins gróandi sárum. Hann var eins og ljómi frá logandi sól, á ljósvakans fjarlægu bárum. Hann var eins og geisli frá Guðanna stól, Sem glitrar í mannanna tárum. (Steinn Steinar) Valsmenn votta fjölskyldu og vinum samúð sína. Guð gefi látnum ró og þeim líkn sem lifa. Ómar Ómarsson. Jónas vinur minn var lífs- kúnstner af guðs náð. Það verð- ur ekki annað um drenginn sagt. Hann lét fá tækifæri fram hjá sér fara og lét sér ekki nægja að eiga drauma og hug- myndir, heldur framkvæmdi, uppfyllti og gerði drauma sína að veruleika. Hann ferðaðist vítt og breitt, hvort sem það var neðansjávar í Taílandi, ofar skýjum á skíðum vítt og breitt eða á jafnsléttu í Afríku. Ég held samt ekki að hann hafi gert þetta vegna þess að hann grun- aði að hann ætti stutt líf fram- undan. Þannig var bara Jónas. Jónas framkvæmdi það sem hann ætlaði. Ég kynntist Jónasi þegar hann var á 4. ári í læknisfræð- inni, renglulegur ungur maður, og ég starfandi á krabbameins- deild Landspítalans. Það hófst á milli okkur vinátta sem hélst fram að endalokum. Jónas vissi alltaf hvert hann stefndi, hvað hann vildi, hvað hann ætlaði að gera næst og ég öfundaði hann oft af því hvað hann var ákveð- inn og fylginn sér. Hann gat vel sleppt sér inn á milli, en hann var alltaf með sín markmið skýr og vann ötullega að þeim. Eins og sést einna best á því að eftir að hann greindist og veiktist kom aldrei neitt annað til greina hjá honum en að klára það sem hann var byrjaður á. Hann ætl- aði ekki í neitt veikindaleyfi, hann ætlaði sér að ná í sérfræði- réttindi sín sem bæklunarskurð- læknir. Sem honum að sjálf- sögðu tókst á endasprettinum, eins og honum einum var lagið. Við Jónas vorum sammála um marga hluti. Það ber kannski ekki fyrst að nefna, en við vorum ákaflega sammála hvað stjórnmál varðar og vorum bæði oft höfð að skotspæni með- al vinnufélaga okkar fyrir að fylgja Sjálfstæðisflokknum. Margar heitar umræður sköp- uðust seinna meir á kaffistofu slysadeildarinnar, þegar Jónas var orðinn læknir á bæklunar- deildinni og ég starfandi á slysadeildinni og enginn ætlaði að gefa sig. Sömuleiðis höfðum við álíka sýn á stefnu stjórn- valda á rekstri Landspítalans eftir bankahrun og skipti þá engu þótt Jónas flyttist utan. Hann fylgdist alltaf með frétt- um af öllu sem málinu viðkom frá Gautaborg. Líka eftir að hann veiktist. Og hann hafði sínar skoðanir á málunum, þótt hann hafi þreyst á að segja þær og skorti að lokum orku. En Jónas var ekki dauður úr öllum æðum. Hann kaus bara að beina sinni orku að því sem honum fannst mikilvægast. Hann var svo mikið þakklátur fyrir að ná að kynnast ást lífs síns og eiga með henni góðar stundir, þótt þau bæði vissu að tíminn yrði takmarkaður. Ég veit að hann var líka ofur þakklátur fyrir guðbarn sitt og þann heiður sem honum var sýndur með því að vera beðinn fyrir það hlutverk. Ég fyrir mitt leyti er ótrúlega þakklát fyrir að hafa átt Jónas fyrir vin. Stundum heyrðumst við og sáumst oft, stundum leið langt á milli, jafnvel heilt ár. En maður þekkir sína vini þegar tíminn skiptir ekki máli. Þegar það er alltaf eins og maður hafi heyrst í gær þegar maður talar saman. Ég er líka þakklát Jón- asi fyrir þann trúnað og það traust sem hann sýndi mér í sín- um veikindum. Ég votta eiginkonu og fjöl- skyldu Jónasar innilega samúð mína. Hvíl í friði, elsku vinur minn. Við sjáumst seinna. Lilja Guðlaug Bolladóttir. Jónasi vini mínum kynntist ég í Hinu húsinu við félagsstörf sem hann sinnti sem virðulegur Inspector Scholae í MR. Það gustaði af honum og var aug- ljóst frá fyrsta degi að þar fór bardagamaður sem ætlaði sér að sigra lífið. Hann vildi gera það besta úr tilverunni og gerði það af heiðarlegum metnaði. Það kom ekki á óvart að Jón- as ákvað að leggja fyrir sig læknisfræði. Agi hans fyrstu mánuðina í náminu var virðing- arverður og hann sagði mér að mamma hans hefði sagt að hún væri búin að átta sig á því að hann væri fluttur á Þjóðarbók- hlöðuna – hún myndi hins vegar fá áhyggjur ef hann kæmi ekki heim til að horfa á Bráðavakt- ina. Læknisstörfin áttu svo eftir að eiga hug hans allan þar sem hann fór iðulega fram úr skyld- um sínum. Klókur og pólitískur hugur hans fann sér þar einnig viðfangsefni og það voru ófáar umræðurnar þar sem hann reif- aði hugmyndir um hvernig væri hægt að reka íslenskt heilbrigð- iskerfi á skynsamlegri og sann- gjarnari hátt. Við sem fengum að þekkja hann vitum að metnaður Jón- asar beindist einnig að þeim sem honum þótti vænt um. Hann studdi vini sína skilyrð- islaust og var alltaf boðinn og búinn að hlusta, greina og græja. Þegar ég fór í prófkjör var Jónas fjarri góðu gamni þar sem hann var búsettur í Gauta- borg. Þrátt fyrir það sat hann við kvöld eftir kvöld og hringdi til Íslands öll þau mögulegu símtöl sem hann taldi að gætu orðið mér til aðstoðar. Þetta var ótrúlega ósérhlífið en hann vildi ekki ræða það neitt – honum fannst þetta sjálfsagt. Hjá Jón- asi var einfaldlega alltaf sjálf- sagt að vera með fólkinu sínu í liði á hvern þann hátt sem kost- ur var. Jónas var skemmtilegur og viðræðugóður. Hann var glaður á meðal fólks og naut samvista við það. Í partíhöldum tilver- unnar var hann hnarreistur, glaðbeittur og stórtækur – og talaði mikið og hátt. Í vináttunni hafði Jónas gaman af að virða hefðirnar sem þróast með tím- anum. Fyrir mörgum árum gaf hann mér óvart sama ljóðasafn Steins Steinarr með stuttu millibili. Ég gerði að sjálfsögðu smá grín að því og upp frá því fékk ég eingöngu einhver ljóða Steins í tækifærisgjafir frá hon- um. Hann gerði mikið af því að rifja upp sameiginlegar sögur, vildi gjarnan að við færum á sömu veitingastaðina og gekk hart að mér að virða regluna um að hittast á aðfangadagsmorgun til að kaupa síðustu jólabókina og fá okkur það sem hann kall- aði jóla-latte. Þetta voru hefðir sem þróuðust mínútu fyrir mín- útu sem eru nú hver og ein dýr- mætari en mig hefði grunað. Minningar sem munu lifa. Mann setur hljóðan and- spænis ósanngirni þess að Jón- as hafi þurft að kveðja svo snemma lífið, sem hann hafði unnið svo ötullega fyrir. Honum virtust allir vegir færir, með menntunina í annarri hendi og ástina í hinni, þegar reiðarslagið kom. Það var sársaukafullt að fylgjast með hvernig hann mætti óvinnandi bardaganum – en aðdáunarvert hvernig hann barðist af æðruleysi og hug- rekki allt til enda. Anniku, foreldrum og bróður Jónasar votta ég mína dýpstu samúð. Þín verður sárt saknað, elsku vinur. Hildur Sverrisdóttir. Kveðja Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Bekkjarbróðir okkar, Jónas Hvannberg, er fallinn frá, langt um aldur fram, og skilur eftir sig stórt skarð í okkar hópi. Minningin um magnaðan per- sónuleika, einstakan vin og góð- an kollega lifir í hjörtum okkar allra. Hann var engum líkur. Foreldrum Jónasar, eigin- konu, bróður, mágkonu og öðr- um aðstandendum vottum við okkar dýpstu samúð á þessum erfiðu tímum. Fh. bekkjarfélaga úr lækna- deild Háskóla Íslands, Kristbjörg Heiður Olsen. Það er sunnudgur og ég er á leið á Frakkarstíg 5, í sunnu- dagskaffi hjá Katrínu ömmu minni og Jóhanni afa. Amma tek- ur fagnandi á móti mér, og kallar út um eldhúsgluggann á mömmu og spyr hvað hafi tafið okkur, hún sé búin að bíða alllengi eftir okk- ur. Þórir frændi minn er mættur í sunnudagskaffið hjá ömmu og afa og skipar stórt hlutverk í Þórir Björn Jóhannsson ✝ Þórir Björn Jó-hannsson fæddist 3. sept- ember 1944 í Reykjavík. Hann lést á Landspít- alanum við Hring- braut 13. janúar 2013. Útför Þóris fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. mínum huga sem ungri stúlku, enda var hann vanur að kalla mig „drottn- ingu“. „Er ekki eitthvað til handa drottning- unni“? „Gefðu drottningunni coke, eða það sem hún vill“, átti hann til að segja við ömmu. Það var ekki annað hægt en að líða vel í návist þinni, Þórir, með þinn smitandi hlátur og létt- leika. Þú áttir til að vera stríðinn en fórst sjaldan yfir strikið og ef það kom fyrir var Áslaug, kona þín, vön að sussa á þig. Ég fékk að spila á píanóið, spila rommý við ömmu, eða hvað sem hugurinn stefndi að, enda stemningin góð og oft kátt á hjalla á Frakkarstíg 5, á æsku- heimili ykkar systkina. Ég kom stundum í heimsókn í Skálagerði á heimili ykkar Ás- laugar, þar sem ég og dóttir þín, Ásta, lékum okkur saman. Jólaboðin sem haldin voru til skiptis á milli ykkar systkina, eft- ir að amma dó, tengdi fjöldskyld- una saman og eftir sitja góðar minningar sem lifa enn. Ég hitti þig síðast þegar þú og Áslaug kona þín voruð að halda upp á 40 ára brúðkaupsafmæli ykkar 16. desember sl., þá varstu brosandi eins og í gamla daga. En allt hefur sinn tíma eins og almættið segir, eitthvað sem við fáum engu um ráðið. Ég kveð þig nú, kæri frændi, og þakka fyrir samveruna með þér, en um leið votta ég mína dýpstu samúð til ykkar, Áslaug, Ásta, Guðni, Sigrún og Elvar, og ykkar allra í fjölskyldunni. Lát koma vor með klið og söng, en kveðja þennan vetur, – Með fuglakvæðin, fögur, löng, og fossa nið um heiða göng. Lát koma dægrin ljós og löng, en líða þennan vetur. (Þorsteinn Gíslason.) Sigrún Ásta. Ég kveiki á kerti fyrir frænda. Ég minnist hlýja og sterka faðmlagsins sem hann var óspar á, húmorsins í honum. Ég minnist góðrar nærveru hans og yfirvegunar. Fallega heimilisins þeirra hjóna Steinunnar, systur föður míns, á Smáravegi á Dal- vík. Hversu gott var að koma til þeirra og bara vera hjá þeim, hversu velkominn þau létu mann alltaf finnast. Smáravegurinn var sem mitt annað heimili á Dalvík. Halldór Jóhannesson ✝ Halldór Jó-hannesson fæddist á Sandá í Svarfaðardal 21. apríl 1922. Hann lést 2. febrúar 2013 í Dalbæ, Dalvík. Útför Halldórs fór fram frá Dal- víkurkirkju 9. febr- úar 2013. Ég kom oft til þeirra og fékk að leika mér að dótinu í gamla kassanum með trélokinu. Þann sama kassa fengu börnin mín síðar að opna og leika sér að. Ég minnist þess hversu mikla um- hyggju og áhuga frændi sýndi mér og lífi mínu í gegnum tíðina og ekki síst börnunum mínum þegar þau komu til sög- unnar. Frændi og frænka elsk- uðu okkur sem værum við þeirra eigin. Ég minnist djúpu og óm- fögru bassasöngraddarinnar og næmis hans fyrir tónlistinni. Hann kunni allar bassalínur gömlu sönglaganna; „Grænkandi dalur“, „Dal einn vænan ég veit“. Ég heyri bassann hans frænda svo vel. Ég minnist gleðinnar í kring- um hann og félagana í Hinu svarfdælska söltunarfélagi. Söngur, dans og hlátrasköll. Óborganleg fyndni og hlátra- sköll. Ég þakka fyrir að bróðir minn skyldi taka upp eitt slíkt söngkvöld og festa á hljómdisk. Ómetanlegar heimildir um svarf- dælska gleði og vinskap sem var- aði heila ævi. Ég minnist æðru- leysisins hjá frænda í gegnum þær breytingar sem veikindi konu hans og flutningur á Dalbæ höfðu í för með sér; einstaks æðruleysis hans í gegnum hans eigin veikindi. Ég minnist þegar við kvödd- umst síðast og föðmuðumst. Frænda minnist ég með þakk- læti og söknuði og kveiki á kerti fyrir hann. Við fjölskyldan sendum Stein- unni frænku og fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Eftir stendur minning um yndislegan mann sem hafði áhrif á alla þá sem hann mætti á lífsleiðinni. Aðalbjörg Kristín Jóhanns- dóttir (Kitta) og fjölskylda, Reykjavík. Fyrir um 70 ár- um hófu mörg ung- menni nám í undirbúningsdeild Verzlunarskóla Íslands í gamla skólahúsinu við Grundarstíg. Ein af þeim var Inga og hafa leiðir okkar legið saman síðan. Við stofnuðum saumaklúbb þeg- ar við vorum í fjórða bekk og Ingunn Egilsdóttir ✝ Ingunn Egils-dóttir fæddist í Reykjavík 17. sept- ember 1928. Hún lést 25. janúar 2013. Útför Ingunnar fór fram frá Ás- kirkju 5. febrúar 2013. síðan höfum við hist nánast vikulega, fyrst á þriðjudags- kvöldum til fjölda ára og seinna í há- degismat hver hjá annarri. Eftir að aldurinn færðist yf- ir höfum við hist á ýmsum veitinga- stöðum. Við vinkonurnar þrjár sem nú erum eftir af hópnum viljum í örfáum orðum minnast Ingu. Þriðju- dagskvöldin voru okkar kvöld og fátt gat hindrað að við mættum allar. Þar ríkti fyrst og fremst gleði og mikið var oft hlegið. Þó komu tímar þar sem sorgin kvaddi dyra og einhverjar þurftu á huggun að halda. Árið 1949 giftist Inga Matt- híasi Guðmundssyni, en hann andaðist í mars 2012. Þau voru alla tíð samstiga í lífinu og sköp- uðu sér og börnum sínum fallegt og hlýlegt heimili, þangað var alltaf notalegt að koma. Hjónin ferðuðust víða, innan lands og utan, stunduðu laxveiðar og skíði og svo var sumarbústað- urinn við Laxá í Kjós þeirra annað heimili. Nú er komið að kveðjustund. Að baki eru margar ógleyman- legar samverustundir bæði í gleði og sorg, við munum sakna Ingu sárt. Við vottum börnum, tengdabörnum og barnabörnum okkar innilegustu samúð og megi Guð veita þeim styrk. Guðrún Jónsdóttir, Sigrún Flóvenz og Valdís Blöndal. Í dag kveðjum við með söknuði og mikilli sorg góðan og öflugan göngufélaga. Birna Steingríms- dóttir var ein af þeim fjölmörgu sem höfðu smitast af útivistar- Birna Steingrímsdóttir ✝ Birna Stein-grímsdóttir fæddist 31. júlí 1954 í Reykjavík. Hún lést af slysför- um 3. febrúar 2013. Jarðarförin fór fram frá Digra- neskirkju 13. febr- úar 2013. áhuganum og vildi upplifa eins og við hin náttúruna í allri sinni mynd, fjöllin og dalina, fossana og fjallahringinn, og naut þess alls sem náttúran bauð upp á. Birna gekk reglu- lega á fjöll með ýms- um útivistarhópum og hafði gert undan- farin ár. Eftir Birnu var tekið fyrir einstaklega góða nærveru, hún var hæglát, sjálf- stæð en umfram allt traustur og góður félagi. Hún var ein af okk- ar góðu göngufélögum, hörku- dugleg, alltaf jákvæð, alltaf bros- andi og alltaf tilbúin. Við biðjum Guð að blessa minning þína og breyta sorgarmyrkri í ljósan dag og láta kærleiksröðul skæran skína og skreyta jörð við lífs þíns sólarlag. (Guðmundur Guðmundsson) Hugur okkar er og verður hjá fjölskyldu og aðstandendum Birnu um ókomna tíð. Fyrir hönd göngufélaga vottum við fjölskyld- unni okkar dýpstu og innilegustu samúð og biðjum allar góðar vættir að styrkja ykkur og að- standendur alla. Minning um góðan félaga mun lifa um ókomin ár. Fyrir hönd fararstjóra og göngufélaga Fjallavina, Fríður Halldórsdóttir og Þórður Marelsson.

x

Morgunblaðið

Gerð af titli:
Flokkur:
Gegnir:
ISSN:
1021-7266
Tungumál:
Árgangar:
111
Fjöldi tölublaða/hefta:
55740
Skráðar greinar:
3
Gefið út:
1913-í dag
Myndað til:
30.09.2024
Skv. samningi við Árvakur útgáfufélag Morgunblaðsins er ekki hægt að sýna efni frá síðustu þremur árum Morgunblaðsins í almennum aðgangi á Tímarit.is.
Útgáfustaðir:
Ritstjóri:
Vilhjálmur Finsen (1913-1921)
Þorsteinn Gíslason (1921-1924)
Jón Kjartansson (1924-1947)
Valtýr Stefánsson (1924-1963)
Sigurður Bjarnason frá Vigur (1963-1970)
Matthías Johannessen (1959-2000)
Eyjólfur Konráð Jónsson (1960-1974)
Styrmir Gunnarsson (1972-2008)
Ólafur Þ. Stephensen (2008-2009)
Davíð Oddsson (2009-í dag)
Haraldur Johannessen (2009-í dag)
Útgefandi:
Félag í Reykjavík (1924-1947)
Árvakur (1947-í dag)
Efnisorð:
Lýsing:
Dagblað. Fréttir og greinar um innlend sem erlend málefni.
Styrktaraðili:
Fylgirit:

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað: 43. tölublað (21.02.2013)
https://timarit.is/issue/370922

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

43. tölublað (21.02.2013)

Aðgerðir: