Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2013, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2013, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.2. 2013 Ég tel þetta ekki dóm gegn breskum eða hol-lenskum hagsmunum. Þetta er skynsamurdómur sem við ættum öll að fagna. Hann skerpir skilning á markaðslögmálunum og þeirri aðgreiningu sem verður að vera á milli hins op- inbera og einkageirans. Einkafyrirtæki eiga ekki að geta komið skuldum sínum yfir á hið opinbera.“ Þessi ummæli eru ekki frá íslenskum skatt- greiðanda í sigurvímu eftir Icesave-niðurstöðuna, heldur eru þau lausleg þýðing á viðbrögðum les- anda bresks dagblaðs í kjölfar EFTA-dómsins. Og hann var ekki sá eini sem brást þannig við. Við- brögð sem þessi voru nokkuð almenn hjá evrópsk- um lesendum þessa stórblaðs daginn sem dóm- urinn féll. Þannig sagðist annar styðja niðurstöðuna heilshugar, Íslendingar hefðu gert rétt með því að neita að greiða skuldir sem ekki væru þeirra og þeir sem ekki treystu sér til að una því hefðu aldrei átt að taka þátt í þeirri áhættu sem bankastarfsemi fylgir. Það er ekki aðeins íslenskur almenningur sem fagnar niðurstöðunni, það gera líka skattgreið- endur í öðrum löndum. Og þegar stóra samhengi þessa dóms verður skoðað verður það án efa skiln- ingur flestra að dómurinn hafi verið réttur, mikil- vægur og sanngjarn. Mun þá engu skipta að vegna skammtímahagsmuna hafi ESB og einstaka aðild- arríki sagt niðurstöðuna óvænta, óskiljanlega og ósanngjarna. Réttlætið sem dómurinn felur í sér mun blasa við öllum og tryggja að sigurinn verður ekki aðeins Íslands, heldur einnig almennings í þeim ríkjum sem sóttu málið og Evrópu allrar. Líkt og ljómandi ljúfur frændi minn, sem sagði JÁ í þjóðaratkvæðagreiðslum þar sem við flest sögðum NEI, og hefur nú sagt að hann hafi aldrei verið ánægðari með að hafa haft rangt fyrir sér, munu þessar þjóðir líka sjá að kröfur þeirra voru rangar. Enda voru þær aldrei kröfur almennings í ESB eða kröfur almennings í einstökum löndum. Þær voru kröfur stjórnvalda, studdar af yfirþjóð- legum stofnunum og kröfuhöfum, sem kusu að nota vald sitt til að beita lítið land í erfiðri stöðu hörku, óréttlæti og þvingunum. En ef marka má fjarlægðina sem var á milli íslenskra stjórnvalda og íslensks almennings í þessu máli, er ekki ólík- legt að einhver munur hafi verið á viðhorfum ESB, evrópskra ríkisstjórna og þeirra sem þar búa. Niðurstaða EFTA-dómstólsins er sannarlega áfall fyrir bresku og hollensku ríkisstjórnirnar en hún er sigur fyrir almenning í þessum löndum. Al- menningur, sama hvar hann býr, veit nefnilega yfirleitt betur en stjórnvöld og stjórnmálamenn hvað er fólkinu sjálfu fyrir bestu. Og þessi sami al- menningur veit og skilur að fólk sem ekki tók áhættu á ekki að þurfa að greiða skuldir þeirra sem það gerðu. Frelsinu á að fylgja ábyrgð en aldrei ríkisábyrgð. Þetta skilur íslenskur almenn- ingur, en líka breskur, hollenskur og evrópskur al- menningur. Það væri óskandi að stjórnvöld þess- ara landa hefðu sama skilning. Líka sigur Breta og Hollendinga *Niðurstaðan er áfallfyrir bresku og hollensku ríkisstjórnirnar en hún er sigur fyrir almenning í þessum löndum. ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM Hanna Birna Kristjánsdóttir hanna.birna.kristjansdottir@reykjavik.is Veðurklúbburinn í Dalbæ á Dalvík hefur birt spá sína fyrir febr- úar. Fundur var haldinn nýverið, og sagði einn fundarmanna frá draumi sem hann hafði dreymt nýlega. „Hann var staddur í fjárhúsi og sá yfir króna þar sem hann sá bíldóttar ær og tvö lömb með sama lit. Þetta er álitinn fyrirboði þess að tíð verði rysjótt í febrúar.“ Steingrímur Sævarr Ólafs- son slær oft á létta strengi á Fa- cebook síðu sinni. Hann sagði í vik- unni: Ef ég ætti að lýsa sjálfum mér í þremur orðum, þá yrði það líklega: „Ég er afleitur í stærðfræði“. Blogg Vilborg- ar Davíðsdóttur hefur vakið mikla athygli. Þar fjallar hún um lífið og tilveruna en eig- inmaður Vilborgar, Björgvin Ingi- marsson, er alvarlega veikur og á stutt eftir. „Ég hef lært svo ótal margt á þessari göngu með Mínum heittelskaða um ævintýraskóginn og nú þegar hans vegferð er í þann mund að ljúka hef ég öðlast nýjan skilning á mikilvægi þess að tala um dauðann rétt eins og lífið. Því það er í hverfulleika lífsins sem gildi þess er falið. Við elskum lífið vegna þess að því lýkur, líkt og við hríf- umst af fegurð blómsins vegna þess að það á eftir að fölna og döguninni vegna þess að við vitum að sólin á eftir að hníga í sæ.“ Sigurjón M. Egilsson vinnur eftir áætlun sem hann nefnir 60/ 90 en hún gengur út á að léttast um 75 grömm á dag. „Eftir fyrstu lotu er ég á undan áætlun, í stað 75 gramma hef ég lést um 100 grömm að meðaltali á dag. Get nú hneppt jakka sem ég gat ekki hneppt um áramótin. Barasta gaman.“ AF NETINU Breska söngkonan V V Brown er þekkt fyrir stöku lög hérlendis og fyr- ir nokkrum árum birtist grein um hana í Morgunblaðinu þar sem hún var talin vera sú söngkona Bretlands sem gæti átt eftir að slá algerlega í gegn. Bretar voru þar sammála. Söngkonan hefur þó lítið látið á sér bera síðustu misseri en undirbýr nú magnaða endurkomu í sviðsljósið. Að- alfréttin fyrir Íslendinga í þessu er að Valgeir Sigurðsson aðstoðar hana í þessum undirbúningi og hefur Brown dvalið á Íslandi síðustu daga við upp- tökur á efni sínu ásamt upptökustjór- anum Valgeiri sem er vel þekktur fyr- ir nærri 10 ára farsæl störf sín með Björk Guðmundsdóttur. V V Brown sótti meðal annars tíma í íslensku meðan á dvölinni stóð. V V Brown vinnur með fyrrverandi upptökustjóra Bjarkar Guðmundsdóttur. AFP Vinnur á Íslandi Unnur Eggertsdóttir komst áfram í úrslit Söngvakeppninnar með lag- inu Ég syng! en í undanúrslitum vakti hún athygli fyrir skemmti- lega framkomu og fallegan söng. Enda er Unnur þaulvön að koma fram og margir muna eftir henni í hlutverki Sollu stirðu í Latabæ. Fjölskylda Unnar er uppfull af hæfileikafólki og má þar nefna Benna Hemm Hemm. Benni og Unnur eru systkinabörn en faðir Unnar, Eggert Benedikt Guð- mundsson, sem gegnir starfi for- stjóra N1, og móðir Benna, Sólveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup á Hólum í Hjaltadal, eru systkini. Þess má geta að afi þeirra var Guð- mundur heitinn Benediktsson, ráðuneytisstjóri í forsætis- ráðuneytinu Unnur Eggertsdóttir og Benni Hemm Hemm. Eru systkinabörn Vettvangur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.