Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2013, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2013, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.2. 2013 Matur og drykkir H ann var glæsilegur vinkvennahópurinn sem bauð Sunnu- dagsblaði Morgunblaðsins að fylgjast með þegar þær sett- ust að snæðingi á myrku janúarkvöldi. Þær segjast alls ekki gera nóg af því að borða góðan mat saman. „Nei, en stefnum að því að gera meira af því. Þetta var hugmynd sem kom upp því Agnes er í skóla í París og var að fara aftur eftir jólafrí á Íslandi. Við ákváðum því að gera okkur glaðan dag saman og bjóða með nokkrum vel völdum vinkonum,“ segir gestgjafinn Ás- laug Arna Sigurbjörnsdóttir. Dagurinn hjá hópnum byrjaði á kaffibolla og svo var haldið í keilu áður en hópurinn skundaði á Nesveginn í matarboð. „Það var gaman að skemmta sér allar saman svona rétt áður en Agnes flaug aftur til Parísar. Hún bauð upp á dýrindiskampavín frá París í fordrykk sem gaman var að skála í,“ segir Áslaug Arna. Hún segist telja galdurinn við gott matarboð felast í félagsskapnum frekar en matn- um. Gleðin toppuð með góðum bröndurum „Það má ekki stressa sig of mikið á eldamennskunni og gestgjaf- arnir verða að geta skemmt sér jafn vel og gestirnir þrátt fyrir um- sjón með mat og drykk. Því er upplagt að geta undirbúið sem mest áður en gestirnir koma. Svo toppar maður matarboðið með góðu víni og skemmtilegum bröndurum,“ segir hún. Agnes og Áslaug Arna sáu um matargerðina saman en það var Áslaug Arna sem gerði rósakökuna sem var í eftirrétt. Hún lumar á nokkrum góðum ráðum þegar kemur að kökukgerð. „Það er um að gera að prófa sig sem mest áfram sjálfur, það hefur reynst mér vel í kökubakstri að prófa mig áfram og horfa á kennslumyndbönd á youtube. Kökurnar eru farnar að vekja athygli og fólk heldur að þetta sé mjög flókið, en í raun er þetta frekar einfalt, skemmtilegt og auðvitað einstaklega bragðgott. Svo er nauðsynlegt að einblína á að kökurnar bragðist vel, því útlitið er ekki allt,“ segir Áslaug Arna. Bökuð er venjuleg tveggja hæða súkkulaðikaka eftir uppáhaldsuppskrift hvers og eins. Kakan er skreytt með smjörkremi í þremur litum. SMJÖRKREM 200 gr smjör 1 egg 2 eggjahvítur sletta af vanilludropum 2 pakkar flórsykur bleikur matarlitur Á þessa köku voru notaðir þrír mismunandi litir af smjörkremi. Kreminu er skipt upp í þrjár skálar og settur mismikill matarlitur í hvern skammt. Notaður er kökuskreytistútur 2D til að gera rósirnar og svo eru settar sykurkúlur ofan á. Rósakaka Rósakakan vakti mikla lukku. Skálað fyrir góðum vinkonum og frænkum áður en sest er til borðs. Stelpurnar voru búnar að fá sér kaffibolla og fara í keilu áður en kom að því að borða saman. MATARBOÐ Á NESVEGI Gaman saman Sólveig Halldórsdóttir, Eydís Arna Líndal, Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir, Rebekka Guðmundsdóttir, Selma Harðardóttir, Valdís Guðrún Þórhallsdóttir og Agnes Guð- mundsdóttir nutu þess að borða saman góðan mat á Nesveginum. FRÆNKURNAR ÁSLAUG ARNA SIGURBJÖRNSDÓTTIR OG AGNES GUÐMUNDSDÓTTIR HAFA GAMAN AF ÞVÍ AÐ ELDA SAMAN. ÞÆR BUÐU VINKONUM SÍNUM Í KJÚKLING OG SALAT. Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.