Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2013, Blaðsíða 9
3.2. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9
„Það má segja að við höfum lítið stoppað í vetur. Við
höfum haft brjálað að gera,“ segir Jóhannes G. Her-
mundarson, starfsmaður Malbikunar KM á Ak-
ureyri, en fyrirtækið sér um það fyrir Vegagerðina,
að halda leiðinni yfir Öxnadalsheiði opinni, sem og
veginum á milli Akureyrar og Dalvíkur.
05.10 Mættur í vinnunna niðri á Óseyri. Bíll-inn er tilbúinn í átök dagsins því við
göngum alltaf frá honum og gerum kláran að lokn-
um vinnudegi. Set bílinn í gang, fæ mér kaffibolla á
meðan hann hitnar og útbý oftast eitthvert nesti.
05.30 Bruna út úr bænum. Þetta er Scaniavörubíll með snjómokstursbúnaði og
verkefnið hefst strax því við byrjum að hreinsa veg-
inn alveg við Shell-nestið í Þorpinu. Við erum fjórir í
þessu; tveir sem skiptumst á að halda Öxnadalsheið-
inni opinni og aðrir tveir sem sjá um Dalvíkurleið-
ina.
06.50 Vissi af dálitlum snjó og þegar égnálgast heiðina er bíll fastur á miðjum
veginum. Ég þarf að draga hann úr skafli, sem tók
dálítinn tíma en klukkutíma seinna er ég búinn að
hreinsa heiðina. Það getur tekið lengri tíma ef mað-
ur þarf hefil eða snjóblásara með sér. Um leið og ég
er búinn að hreinsa heiðina moka ég aftur alla leið
til Akureyrar þá daga sem snjóar, annars byrja ég á
því að breikka akstursleiðina því fyrstu ferð að
morgni brunar maður bara í gegn til að komast sem
fyrst upp á heiði. Þennan dag var mikill snjór og
nokkrir fylgdu mér yfir heiðina úr Norðurárdalnum.
Þeir hefðu ekki komist nema strax eftir að var mok-
að.
12.00 Ég reyni alltaf að stoppa í hádeginu,hlusta á fréttirnar og borða. Síðustu
dagar hafa verið þannig að ég hef borðað nestið mitt
uppi á heiði því ekki hefur verið tími til að skjótast í
bæinn. Þegar snjórinn er mikill og hríðar áfram þarf
að moka alla leiðina í bæinn aftur, þegar búið er að
hreinsa heiðina, og þá borðar maður í bænum.
12.45 Haldið af stað á ný. Byrja aftur við Shell-nestið og hreinsa veginn alla leið að Koti í
Norðurárdal, fyrsta bænum eftir að komið er yfir
Öxnadalsheiðina. Sumir dagar eru tiltölulega rólegir og
hægt að rúnta fram og til baka frá Akureyri og yfir í
Norðurárdalinn. Þetta var ekki einn þeirra!
15.00 Kominn á verkstæðið aftur, set olíu á bíl-inn og fæ mér kaffi áður en haldið er af
stað enn einu sinni. Ég hlusta reglulega á fréttir og
fylgist með veðrinu. Maður veit nokkurn veginn eftir
vindáttinni hvernig það er; það virðist reyndar vera al-
veg sér veður sem loðir við heiðina! Hún er hálfgert
veðravíti og verst er vest-suð-vestan áttin. Vestanátt er
líka mjög slæm, eins og var til dæmis eftir áramót í
fyrra og langt fram á vor. Þá er oft mjög gott veður í
bænum, fólk lítur út um gluggann og fer af stað, en
lendir svo í hávetri á heiðinni!
18.30 Þessi dagur var dálítið langt frá því aðteljast rólegur. Nokkrir bílar á suðurleið
eltu mig yfir heiðina og í Norðurárdalnum biðu nokkrir
sem komu með mér til baka. Ég ætlaði að halda áfram
að moka eftir að þeir voru úr augsýn á leið til Akureyr-
ar, en gat það ekki vegna veðurs. Mikið hafði snjóað og
komið var vitlaust veður. Eins og stundum gerist var
einfaldlega sjálfhætt og heiðinni því lokað.
20.30 Farinn af heiðinni en moka alla leið í bæ-inn. Yfirleitt er maður kominn á verk-
stæðið um klukkan hálftíu eða tíu.
22.30 Búinn að ganga frá bílnum, fylla hann afolíu og „klappa“ honum aðeins; boltar
geta brotnað úr snjótönninni eða eitthvað annað gerst
sem þarf að laga. það kemur ansi oft fyrir að maður er
klukkutíma á verkstæðinu að græja bílinn eftir daginn
svo hann verði tilbúinn að morgni.
Vinnudagarnir eru oft langir og starfið getur verið
þreytandi til lengdar ef veðrið er vont lengi. En ef
maður hefur gaman af þessu vörubílastússi eða er
jeppakarl – eins og ég þykist vera – leiðist manni þetta
ekki.
Jóhannes G. Hermundarson við Scania vörubílinn sem útbúinn er stórum og öflugum snjóplóg og ekki veitir af.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
DAGUR Í LÍFI JÓHANNESAR G. HERMUNDARSONAR SNJÓMOKSTURSMANNS
Heiðin veðravíti
VERKEFNI SNJÓMOKSTURSMANNA LANDSINS HAFA VERIÐ ÆRIN UNDANFARIÐ. SNJÓ
HEFUR KYNGT NIÐUR, HEIÐAR OG FJALLVEGIR VÍÐA VERIÐ ILLFÆRIR – OG SUMIR ÓFÆRIR.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Rannsóknir sýna að notkun sykurlauss Extra eykur
munnvatnsframleiðslu, jafnar sýrustig, heldur
tönnunum hreinum og stöðvar sýklaárásir á þær.
Extra minnkar upptöku hitaeininga og dregur
það úr streitu í amstri hversdagsins.