Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2013, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2013, Blaðsíða 37
var hún í töluverðu sambandi við fjölmiðla. „Áður fyrr notuðust menn við talstöðvar en nú er hægt að tala um allt suðurskautið í gegnum gervi- hnattasíma. Þegar ég beið eftir flugvélinni sem sótti mig talaði ég til dæmis við flugmennina í gegnum símann.“ Vilborg var heldur ekki með kveikt á staðsetning- artækjum sínum nema á morgnana og kvöldin, auk þess sem hún kveikti á þeim þegar hún tók pásur frá göngunni á daginn. Notaði tækin fyrst og fremst til þess að ákveða stefnuna og mæla hve langt hún hefði gengið. Hélt svo stefnunni með áttavitanum. Til að eiga alltaf nóga hleðslu á tækjunum var Vil- borg með sólarrafhlöðu sem hún setti út fyrir tjaldið á hverjum morgni og hafði þar í hálfa aðra klukku- stund. Opnunartímar: Smáralind Virka daga 11-19 | Fimmtudaga 11 - 21 | Laugardaga 11 - 18 Sunnudaga 13 - 18 | Sími 512 1330 Laugavegi 182 Virka daga 10-18 | Laugardaga 11 - 16 | Sími 512 1300 iPad mini Haltu á hinum stafræna heimi í einu undratæki sem smellpassar í lófann. Komin í verslanir 3.2. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37 Vilborg Arna hafði með sér iPod á suðurpólinn og valdi sér ýmislegt góðgæti til að hlusta á meðan á leið- angrinum stóð. Hún var bæði með ýmsa tónlist í farteskinu og nokkrar hljóðbækur. „Mér fannst mjög gott að hlusta á bækur fyrri hluta dagsins og skipti svo yfirleitt yfir í tónlist seinni part- inn. Tónlistina valdi ég bara eftir því í hvernig skapi ég var; ef færið var erfitt hlustaði ég oft á sama diskinn allan daginn, til þess að halda frekar sama takti. Það er betra að hafa rút- ínu á hlutunum þegar aðstæður eru þannig.“ Þegar veðrið var gott stoppaði hún hins vegar annað slagið til þess að skipta um tónlist. „Ég hafði það fyrir reglu í leið- angrinum að hlusta aldrei á neitt sem mér þótti ekki skemmtilegt eða gat verið íþyngjandi. Af bókum get ég nefnt ýmsar barnabækur. Ég hlustaði líka á allar Harry Potter- bækurnar – nema þá síðustu reynd- ar. Ég byrjaði á henni en upphafið er svo drungalegt að ég hætti fljótlega. Ákvað að geyma hana til betri tíma!“ Tónlistin sem Vilborg hlustaði á var oftast létt, fjörug og skemmti- legt. „Ég vildi hlusta á eitthvað sem byggir mann upp, alls ekki eitthvað sem dregur úr manni kjarkinn,“ seg- ir Vilborg Arna Gissurardóttir pól- fari í samtali við Sunnudagsblað Morgunblaðsins. HLUSTAÐI Á MARGT GOTT Á GÖNGUNNI Tónlist og Potter iPod nano kom í góðar þarfir á suð- urskautinu. Vilborg skemmti sér meðal ann- ars við það á göngunni að hlusta á Harry Potter-bækurnar lesnar. Staðsetningartækið sem Vilborg Arna not- aði til þess að mæla hvað hún hafði gengið langt. Með þessu gps- Garmin-tæki tók hún stefnuna að morgni en rataði svo dagleiðina með aðstoð áttavita.   Sólarrafhlaðan sem Vilborg hlóð á hverjum morgni. Setti hana út fyrir tjaldið um leið og hún kveikti á prím- usnum og lét sólina skína á þessa góðu græju í um það bil eina og hálfa klukkustund og gat með því móti hlaðið símann og önnur raftæki sem hún var með í fórum sínum. „Gamli, góði“ áttavitinn kom að góðum notum; Vil- borg var með Suunto global.  Vilborg hafði meðferðis Ca- non EOS 600- myndavél.  Gervihnattasíminn sem Vilborg fór með á pólinn. Lífæð hennar til umheimsins, segir hún. Vilborg bloggaði t.d. með símanum.  Tæki frá Pieps sem Vilborg ætlaði sér bara að nota sem neyð- arsendi. Ef eitthvað hefði komið uppá hefði hún getað ýtt á takka og þá hefðu aðstoðarfólki borist skilaboð um hvar hún væri stödd.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.