Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2013, Side 44

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2013, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.2. 2013 E kki þurftu fréttamenn að kvarta yfir vikunni sem var. En jafnvel dagblað verður að kannast við að viðburðarík vika sem auðveldar starf blaðamanna eða gerir það a.m.k. fjölbreyttara og jafnvel æsilegra er ekki endilega allt- af merki um gleðiríka tíð í veröldinni, nær eða fjær. Eldgos eða álíka hamfarir, snjóflóð hér heima, hryðju- verk og fellibylir í fjarlægum löndum, kæta ekki kraft- mikla fréttamenn, en þetta eru allt kröfuhörð við- fangsefni, sem gera þarf góð skil, enda kveikja þau jafnan óviðráðanlegan fréttaþorsta um allt. Fréttasprengja fyrir hálfri öld Í haust, nærri aldarafmæli Morgunblaðsins, verður hálf öld liðin frá því að 35. forseti Bandaríkjanna var ráðinn af dögum. Það sem sagnfræðin kann að segja okkur núna um John F. Kennedy, yfirgengilegt framhjáhald hans, lyfjamisnotkun, kosningasvik og náin samskipti við forkólfa undirheima Bandaríkjanna, breytir hér engu. Það var ekki mað- urinn sem var myrtur. Hinn maðurinn kom smám saman í ljós síðar. Hinn fjallmyndarlegi forseti og tískugyðjan, hin fínlega Jackie „fyrsta frú“, sem virt- ust lifa fyrirmyndarfjölskyldulífi með undursnotrum börnum sínum í lýðræðislegu konungshöllinni í hjarta Washington, nutu aðdáunar eins og draumaprins- essur og Hollywoodgoð njóta yfirleitt ein. Hún magn- aðist svo upp í ofurveldishæðir á ofbeldisaugnablikinu í Dallas og því varð hin mikla frétt að fréttalegri kjarnorkuspengju og geislunin frá henni mælist enn víða um heim. Sambærilegur fréttadynur fór um heimsbyggðina þegar Díana prinsessa lést eftir und- arlegan eltingaleik slúðurpressunnar í París við hana og nýjan ástmann. En sú mikla fréttabylgja stóð mun skemur. Vondir atburðir – góðar fréttir? Í öllum slíkum tilvikum leggja fréttahaukar dag við nótt. Hversu dapurlegt sem tilefnið er lifir það sér- stöku lífi sem magnað, yfirgengilegt, „adrenalínað“ og ógleymanleg fréttalegt viðfangsefni. Og þótt hart sé að viðurkenna það eru góðu fréttirnar færri og sjaldn- ast eins kynngimagnaðar og hinar vondu og fjara miklu fyrr út. Þannig hefur hver geimferðin af annarri heppnast og renna saman í eina, en tvær fóru hörmu- lega og standa ferskar í minningunni. Önnur geimferj- an sprakk fáeinum mínútum eftir að henni var skotið á loft en hin fáeinum mínútum fyrir lendingu. Allir um borð fórust. Og stundum gerast atburðir fyrir allra augum sem fáir gera sér grein fyrir á þeirri stundu að séu miklar örlagafréttir, þótt það komi svo í ljós síðar. En einmitt vikan sem var minnti okkur bæði á van- metna frétt úr sögunni og færði okkur góðan atburð og gleðilegan sem var jafnframt mikil frétt, þótt þeir væru til í þessu landi sem vildu að góða fréttin fjaraði helst út sem allra fyrst. Hin fyrri þessara var um að 80 ár væru frá því að Adolf Hitler komst til valda með allt að því lýðræðislegum aðferðum. Fróðlegt er að sjá hve „fréttaskýrendur“ og erlendir diplómatar þeirrar tíð- ar sem sendu skýrslur til höfuðborga sinna voru úti að aka þegar þessi atburður gerðist. Þeir sögðu að ekki þyrfti að hafa áhyggjur af stjórn undir forystu Hit- lers. Hann væri reynslulaus gasprari og myndi fara fyrir stjórn sem yrði skammlíf eins og aðrar þýskar stjórnir um þær mundir. Það yrði Von Papen, sá reyndi refur, sem myndi ráða ferðinni í ríkisstjórninni og Hindenburg forseti héldi að auki fast um tauma, þótt hann væri nokkuð við aldur. Hann lést árið eftir 87 ára að aldri. Skýrslur reynslubolta diplómatíunnar, sem staðsettir voru í Berlín, reyndust ekki einvörð- ungu marklaus skjöl, sem sýndu dómgreindarleysi og uppskafningshátt í senn. Þær ýttu því miður einnig undir að ríkisstjórnir þeirra landa sem áttu í hlut sváfu áfram á sínum verði. Skrif íslensks sendiherra í Brussel til starfsbræðra á staðnum á dögunum, um að ekkert væri að marka að hægt hefði verið á aðildarferli sem héldi áfram á sama hraða, eru ekki nándar nærri jafn afdrifarík, en sýna sömu blöndu af dómgreindarskorti og yfirlæti og gömlu skrifin. Það rignir ekki inn fréttum, það er skýfall * Ráðherra í ríkisstjórn Íslands,sem hafði forgöngu um að færafyrrverandi forsætisráðherra fyrir Landsdóm, hefur með opin augu og vísvitandi staðið fyrir brotum á stjórnarskránni og telur nú „ekki unnt að ganga lengra á þeirri braut“. Reykjavíkurbréf 01.02.13

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.