Morgunblaðið - 26.03.2013, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2013
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Undirbúningur við lokaáfanga
breikkunar Suðurlandsvegar um
Hellisheiði er á lokastigi. Byrjað
verður á austasta hluta leiðarinnar
á þessu ári, meðal annars tvöföldun
vegarins um Kamba.
Lengi hefur verið unnið að und-
irbúningi breikkunar Suðurlands-
vegar, frá Reykjavík til Selfoss.
Fyrir nokkrum árum var fallið frá
áformum um tvöföldun allrar leið-
arinnar vegna kostnaðar og ákveðið
að hafa þrjár akreinar (2 + 1) að
hluta. Hefur vegurinn verður
breikkaður á vesturhluta leið-
arinnar, að Hamragilsvegi sem er
við Hellisheiðarvirkjun.
Tilgangur framkvæmdarinnar er
að auka afkastagetu Suðurlands-
vegar og auka umferðaröryggi.
Umhverfismat hefur verið gert fyr-
ir alla leiðina.
Þrjár og fjórar akreinar
Næsti áfangi er að breikka veg-
inn frá enda núverandi 2 + 1 vegar
við Hamragilsvegamót, yfir Hellis-
heiði og niður Kamba. Vegurinn
verður þrjár akreinar (2 + 1) frá
Hamragilsvegi og austur á Kamba-
brún en tvær akreinar í báðar áttir
niður Kambana og niður fyrir
neðstu beygju. Vegrið aðgreinir
akstursstefnur í báðum tilvikum.
Tvöfaldi vegurinn niður Kambana
verður í svonefndu þröngu sniði
sem þýðir að vegrið aðskilur akst-
ursstefnur en ekki graseyjar að
auki. Vegurinn er að mestu í núver-
andi vegstæði en rétt úr neðstu
beygjunum. Undirgöng fyrir
göngufólk og hestamenn verða á
fjórum stöðum, meðal annars á
gamla veginum í Kömbum. Þá
verður útsýnisstaður áfram á
Kambabrún.
Síðasta kaflann að hringtorginu
við Hveragerði verður vegurinn ein
akrein í hvora átt því hann verður
hluti af seinni áfanga þegar gatna-
mótin við Hveragerði verða færð
100 metra til suðurs og haldið
áfram austur.
Vegurinn sem tekinn verður fyrir
í þessum áfanga er 14,5 km að
lengd og er áætlað að hann kosti
um tvo milljarða króna í heild. Er
þetta tæpur helmingur leiðarinnar
frá Hólmsá að Hveragerði. Að
framkvæmdinni lokinni verður öll
leiðin með framúrakstursakrein (2
+ 1) eða tvær akreinar í báðar átt-
ir.
Dreifist á þrjú ár
Kristján Kristjánsson, for-
stöðumaður hönnunardeildar Vega-
gerðarinnar, segir að undirbún-
ingur að útboði sé á lokasprett-
inum. Hveragerðisbær hefur þegar
auglýst útgáfu á framkvæmdaleyfi
fyrir þann kafla sem er innan bæj-
armarka Hveragerðis og Sveitarfé-
lagið Ölfus mun verða skammt á
eftir. Vonast Kristján til að útboðs-
gögn verði tilbúin um miðjan apríl.
Verktaki mun geta hafist handa
síðar á árinu, að loknu útboði og
samningsgerð, en verkið dreifist á
þrjú ár og lýkur ekki fyrr en á
árinu 2015, að sögn Kristjáns.
Vegurinn um
Kamba tvöfaldaður
Undirbúningur að breikkun Suðurlandsvegar á lokastigi
Breikkun Suðurlandsvegar um Hellisheiði
Loftmyndir ehf.
Hellisheiðarvirkjun
Skíðaskáli
Hverahlíð
Hellisheiði
Kambar
Hveragerði
Hengladalsá
Til
Reykjavíkur
Til Selfoss
2+1 frá
Hamragilsvegi að
Ölkelduhálsvegi
Að
Ölkelduhálsi
1+1 með
miðjuvegriði
að hringtorgi
við Hveragerði
(vegur fluttur
síðar)
G
ígahnúkavegur
2+2 frá
Ölkelduhálsvegi
niður Kambana
Áætlaðar framkvæmdir Undirgöng SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Þyrlumál Landhelgisgæslunnar
voru til umræðu á sameiginlegum
fundi fjárlaganefndar og atvinnu-
vegnefndar Alþingis í gærmorgun.
Fyrir nefndirnar komu m.a. Ög-
mundur Jónasson innanríkisráð-
herra og Georg Kr. Lárusson, for-
stjóri Landhelgisgæslunnar. Lagt
var fram minnisblað innanríkisráð-
herra, merkt trúnaðarmál, um nýtt
útboð til að kaupa fullbúnar björg-
unarþyrlur, eins og það er orðað í
fundargerð fjárlaganefndar. Fyrir-
hugaður er annar nefndafundur í
dag, sem Katrín Júlíusdóttir fjár-
málaráðherra hefur verið boðuð á.
Ögmundur segir í samtali við
Morgunblaðið að engar ákvarðanir
liggi fyrir um kaup á þyrlum eða að
fara í nýtt útboð. Hann hafi aðeins
verið að gera þingnefndunum grein
fyrir stöðu mála og sinni afstöðu.
Kaup hagstæðari en leiga
„Það er verið að vega og meta
kosti í stöðunni og engin niðurstaða
liggur fyrir. Góð samræða fór fram
um þessi mál og öll erum við sam-
mála, þvert á flokka, um að vel þurfi
að standa að björgunarmálunum og
velja þá kosti sem eru hagkvæmastir
fyrir skattborgarana til framtíðar
litið,“ segir Ögmundur, sem er þeirr-
ar skoðunar sjálfur að hagstæðara sé
fyrir ríkið að kaupa þyrlur frekar en
að leigja. Gengur minnisblaðið út á
það. Ákvörðun eigi hins vegar ekki
að taka nema að fyrir liggi góður
samhljómur um málið á Alþingi.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í síðustu viku hafnaði Land-
helgisgæslan tilboðum í leigu á nýj-
um þyrlum en útboð fór fram sl.
haust. Tvö tilboð bárust. Mat Gæsl-
an það svo að engar björgunarþyrlur
væru á leigumarkaði í dag. Talið er
að ein slík þyrla geti kostað um tvo
milljarða króna.
Í fjárlögum þessa árs er gert ráð
fyrir 250 milljónum króna til leigu á
þyrlu. Samkvæmt útboðinu frá í
haust hljóðaði annað tilboðið upp á
leigu fyrir 295 milljónir á ári, miðað
við gengi dollars í dag, og hinn að-
ilinn bauð þyrlu á ríflega 435 millj-
ónir á ári. Um sömu þyrlutegundin
var hins vegar að ræða.
„Við viljum skoða hagkvæmari
kosti, þó þannig að þeir fullnægi öll-
um öryggiskröfum,“ segir Ögmund-
ur ennfremur.
Málið lítið skýrst
Kristján Þór Júlíusson, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins, á sæti í fjár-
laganefnd. Hann segir mál lítið hafa
skýrst á fundinum í gær. Verið sé að
leita leiða til að bæta þyrlukost
Landhelgisgæslunnar. Allar áætlan-
ir ríkisstjórnarinnar hafi gengið út á
að leigja þyrlur en nú sé ljóst að það
sé hagstæðara að kaupa þyrlur.
Georg Kr. Lárusson svaraði ekki
skilboðum blaðsins í gær.
Nýtt útboð á
Gæsluþyrlum
til skoðunar
Þyrlukaup rædd áfram á Alþingi
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Gæslan Þyrlurnar gegna mikil-
vægu björgunarhlutverki.
Þyrlur LHG
» Landhelgisgæslan hefur
núna þrjár þyrlur til umráða.
» TF-SYN verður skilað í haust
og leigutími TF-GNA rennur út
1. maí árið 2014.
» Í september 2012 ákvað rík-
isstjórnin að falla frá samningi
við Norðmenn um kaup á nýrri
þyrlu, sem gerður var 2007. Þá
var ákveðið að fara leiguleið,
sem nú hefur verið hætt við.
„Erfitt er að komast í gögn um verð-
lag á myndum, þar af leiðandi er ekki
hægt að gera úttekt á myndlistar-
markaðnum hér landi,“ segir Vil-
hjálmur Bjarnason lektor. Hann
heldur erindið Tilraun um myndlist
og markað í dag í Háskóla Íslands og
tekur dæmi úr íslenskri og erlendri
myndlist.
„Staðan er undarleg á íslenska
myndlistarmarkaðnum. Það kom mér
á óvart hversu lítil hreyfing hefur
orðið eftir hrun, fá góð og gömul verk
eru boðin upp,“ segir Vilhjálmur.
Hann bendir á að ráð gæti verið að
fækka uppboðum á myndlistar-
verkum sem séu haldin hér á landi
nánast mánaðarlega. „Ef toppverk
yrðu boðin upp sjaldnar, þá yrði verð-
ið gegnsærra og heilbrigðari mynd af
markaðnum fengist,“ segir Vil-
hjálmur. Til samanburðar séu haldin
þrjú uppboð á myndlistarverkum á
ári í Noregi, segir hann.
Fjárfesting í myndlist
„Oft og tíðum er verið að setja háar
fjárhæðir í myndlistarverk og því er
mikilvægt að fá rétta mynd af verð-
laginu,“ segir Vilhjálmur.
Markaður fyrir myndlist er sér-
hæfður. Myndlist fellur illa að mark-
aðshugtakinu því hún er ekki sam-
kynja vara eins og t.d. hveiti. „Ekkert
er eins á myndlistarmarkaði, ekkert
er hlutlægt. Vonandi verður það allt-
af þannig, þó standa alltaf grunn-
atriði eftir; eins og að verkið sé fal-
legt, hafi boðskap, sé hluti af heild og
þar fram eftir götunum,“ segir Vil-
hjálmur og bætir við að fólk sem hafi
áhuga á myndlist og vilji fjárfesta
megi ekki gefast upp. thorunn@mbl.is
Ekki hægt að gera úttekt
á myndlistarmarkaðnum
Listaverk Myndlist fellur illa að
markaðshugtakinu.
Verður að
fækka uppboðum
Gert er ráð fyrir því í samgöngu-
áætlun að brú yfir Ölfusá við Sel-
foss verði næst á dagskrá, þegar
lokið hefur verið við breikkun
vegarins til Hveragerðis. Nokkur
ár eru í að það verði.
Brúargerðin er mikil og dýr
framkvæmd. Að henni lokinni
verður eftir að leggja nýjan veg á
milli Hveragerðis og Selfoss.
Guðmundur F. Baldursson,
skipulags- og byggingarfulltrúi
Hveragerðisbæjar, bendir á að
það sé hættulegasti kafli leið-
arinnar og segir slæmt að ekki
skuli fást úrbætur á þeim vegi
strax.
Í skipulagi Hveragerðis er gert
ráð fyrir mislægum gatnamótum
í stað núverandi hringtorgs í
Hveragerði. Því verður að færa
veginn sunnar, fjær bænum. Til
þess að það sé unnt þarf að rífa
eða færa háspennulínu Lands-
nets. Guðmundur segir að línan
verði fjarlægð þegar ný lína komi
yfir Hellisheiði og Landsnet sé
tilbúið að færa gömlu línuna til
bráðabirgða, ef á því þurfi að
halda. Hann segir að það sé því
ekki fyrirstaðan en eitthvað
vanti upp á fjárveitingar Vega-
gerðarinnar til að ljúka verkinu.
Ný Ölfusárbrú
kemur næst
HVERAGERÐI-SELFOSS BÍÐUR
Ómissandi á pizzuna,
í ofn- og pastaréttina,
á tortillurnar og salatið.
Heimilis
RIFINN OSTUR
ÍSLENSKUR OSTUR
100%