Morgunblaðið - 26.03.2013, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2013
Guðmundar- og Geirfinnsmál
„Ég er glöð með þessa niðurstöðu
og hef von um framhaldið en eftir
allt sem á undan er gengið hef ég
lítið traust. Ég vona bara að menn
sjái sóma sinn í því að klára þetta,“
sagði Erla Bolladóttir, ein sakborn-
inga í Guðmundar- og Geirfinns-
máli, eftir að niðurstöður starfs-
hópsins voru kynntar í gær.
„Þetta er sigur fyrir okkur öll –
ekki bara mig eða okkur [sakborn-
inga] í þessu máli,“ sagði Erla.
Spurð að því hvort hún hygðist
sjálf fara fram á endurupptöku, líkt
og starfshópurinn leggur til sem
eina af þremur leiðum, sagðist hún
ekki hafa skoðað það þar sem hún
hefði fyrst verið að heyra af þessari
niðurstöðu og ekki gefist ráðrúm til
þess. Hún vonast til að ríkissak-
sóknari hlutist til um að málið verði
tekið upp.
Í skýrslunni segir meðal annars
um Erlu: „Þegar hún hafði játað að-
ild að Geirfinnsmálinu var hún orð-
in þreytt, algjörlega hjálparlaus og
föst í lygavef og það, ásamt sam-
spili sálrænna þátta, sem gerðu
hana viðkvæma fyrir yfirheyrslum,
og aðstæðum við yfirheyrslurnar í
Síðumúlafangelsinu, leiddi til þess
að hún fór að þóknast rannsakend-
unum og sagði þeim sögu sem hún
taldi að þeir vildu heyra og var lík-
leg til að taka þrýstinginn af
henni.“ ipg@mbl.is
Morgunblaðið/Rósa Braga
Sigur Erla segir niðurstöður starfshópsins sigur. Hún var viðstödd blaða-
mannafundinn í ráðuneytinu í gær til að heyra helstu niðurstöður hópsins.
Vonar að saksóknari hlut-
ist til um endurupptöku
SVIÐSLJÓS
Ingvar P. Guðbjörnsson
ipg@mbl.is
„Hvað sem verður þá er þessi nið-
urstaða mjög mikilvæg fyrir þá ein-
staklinga sem hlut eiga að máli og
það er gleðilegt,“ sagði Ögmundur
Jónasson innanríkisráðherra eftir
að starfshópur um Guðmundar- og
Geirfinnsmál hafði kynnt niður-
stöður skýrslu sinnar á fjölmennum
blaðamannafundi í innanríkis-
ráðuneytinu í gær.
„Það verður að segjast alveg eins
og er að frágangur á gögnum í Guð-
mundar- og Geirfinnsmáli er ekki
góður. Við fengum öll gögn svo til
óflokkuð. Það er ekki til skjalaskrá
yfir gögn í Guðmundar- og Geir-
finnsmáli,“ segir Arndís Soffía Sig-
urðardóttir, formaður starfshópsins.
Hún segir starfshópinn hafa fengið
tvær sendingar af nýjum gögnum
frá Þjóðskjalasafni. Megnið af þeim
hafi þau haft áður undir höndum en
einhver ný hafi bæst við. Þau hafi
þó ekki varpað nýju ljósi á málið.
Vilja endurupptöku málanna
Starfshópurinn komst að þeirri
niðurstöðu að játningar sexmenn-
inganna sem tengdust málinu væru
allar óáreiðanlegar eða falskar og í
ljósi þess telur starfshópurinn
veigamiklar ástæður fyrir því að
málin verði tekin upp á ný.
Starfshópurinn leggur til þrjár
leiðir í málinu. Í fyrsta lagi að rík-
issaksóknari meti hvort tilefni sé til
aðgerða af hálfu ákæruvalds. Í öðru
lagi að dómfelldu í málinu leiti eftir
því að þau verði tekin upp á ný og
að slík umleitan verði studd með op-
inberu fé. Í þriðja lagi að lagt verði
fram lagafrumvarp sem mæli fyrir
um endurupptöku málanna.
Í skýrslunni, sem er tæpar 500
blaðsíður að lengd, er rætt um þátt
Karl Schütz – þýsks rannsóknarlög-
reglumanns sem fenginn var til
rannsóknarinnar. Þar segir:
„Greinilegt er að […] Karl Schütz
leit á sakborningana sem seka og
sitt hlutverk að samræma framburð
þeirra, en eftir margar, langar og
strangar yfirheyrslur og sampróf-
anir var stöðugt ósamræmi á milli
framburða sakborninganna. Einnig
er greinilegt að Schütz leit á ósam-
ræmið sem tilraunir sakborning-
anna til að flækja málin og tók ekki
mark á þeim þegar þau drógu fram-
burð sinn til baka.“
Vill bíða með lagafrumvarp
„Mér finnst rétt að við bíðum eft-
ir niðurstöðu varðandi fyrri tillög-
urnar tvær, annars vegar að við
fáum niðurstöður ríkissaksóknara
um hvort embættið hyggist gera
eitthvað í ljósi þessarar skýrslu sem
nú liggur fyrir. Í öðru lagi þá er það
einstaklinganna sem hlut eiga að
máli að meta hvort þeir vilja endur-
meta málið og þá hugsanlega leita
eftir fjárstuðningi til þess. Þetta er í
þeirra höndum. Þriðja leiðin kæmi
þá til þrautavara ef hinar kæmu
ekki til framkvæmda,“ sagði Ög-
mundur spurður að því hvort hann
hygðist leggja fram lagafrumvarp
um endurupptöku málanna.
Í skýrslunni segir meðal annars
um sakborningana: „Þegar litið er á
hvernig staðið var að gæslu-
varðhaldi sakborninganna í þessum
tveimur málum er greinilegt að það
hefur verið mjög erfitt fyrir þau að
draga framburð sinn til baka við yf-
irheyrslur hjá lögreglu eða fyrir
dómi og þegar þau drógu til baka
var hvorki tekið mark á þeim hjá
rannsakendum né fyrir dómi.“
Auk blaðamanna voru á fundinum
í gær Erla Bolladóttir, ein hinna
dæmdu, auk barna Sævars Marinós
Ciesielski og Tryggva Rúnars Leifs-
sonar, sem báðir hlutu dóma vegna
málanna, Sævar í báðum málum en
Tryggvi Rúnar í Guðmundarmáli.
Þeir eru báðir fallnir frá.
Ríkissaksóknari skoðar málin
„Ég hef ekki myndað mér skoðun
á þessu stigi. Þarf að fá svigrúm
fram yfir páska. Ég mun fela tveim-
ur saksóknurum að fara yfir þetta
með mér,“ sagði Sigríður Friðjóns-
dóttir ríkissaksóknari í gær og bætti
við: „Við skoðum þetta með eðlileg-
um hætti. Förum yfir þetta og för-
um eftir þeim reglum sem lögin
bjóða um þetta mál eins og önnur.“
Í skýrslunni er talað um að áber-
andi hafi verið við framburði sak-
borninga í málunum hversu mikið
ósamræmi hafi verið á milli þeirra
og hversu oft og mikið þau hafi
breytt framburði sínum.
„Það er greinilegt að rannsakend-
urnir túlkuðu þetta misræmi sem
mótþróa og vísvitandi tilraunir sak-
borninganna til að flækja málin.
Það er eins og rannsakendurnir hafi
ekki litið á aðra möguleika en sekt
sakborninganna. Mun líklegra er að
ósamræmið hafi stafað af þekking-
arleysi sakborninganna á málunum
og að þeir hafi hvergi komið þar ná-
lægt,“ segir í skýrslunni.
Hvorki lík né sönnunargögn
Þá segir að aldrei hafi tekist að
staðfesta sönnunargögn um að Guð-
mundur og Geirfinnur hafi í raun
verið myrtir. „Og að ef þeir hefðu
verið myrtir að sakborningarnir
hefðu komið nálægt því. Þetta er
mikilvægt þegar málin eru skoðuð
því enginn af sakborningunum sex
reyndist geta gefið áreiðanlegar
upplýsingar um þessa tvo menn
sem taldir voru myrtir og enginn
þeirra gat gefið upplýsingar um
hvar hin meintu lík væru niður-
komin. Líkin hafa aldrei fundist,“
segir í skýrslunni og enn fremur:
„Ósamræmið á milli sakborning-
anna í þessum tveimur málum, sem
voru stöðugt að breyta framburði
sínum, og skortur á áþreifanlegum
staðfestingum […] styrkir mat höf-
unda þessa kafla á því að fram-
burðir sakborninganna í Guð-
mundar- og Geirfinnsmálinu voru
fullkomlega óáreiðanlegir.“
„Ekkert sem kemur á óvart“
„Ég hugsa að fljótt á litið sé þetta
jákvætt,“ sagði Guðjón Skarphéð-
insson við mbl.is í gær en hann fékk
dóm í Geirfinnsmálinu. „En það er
ekkert sem kemur mér á óvart á
nokkurn hátt,“ segir hann um nið-
urstöðurnar. Hann segist gera ráð
fyrir því að málið fari fyrir endur-
upptökunefnd en hvort það verði
fyrir hans tilstuðlan sé óvíst.
Játningar óáreiðanlegar eða falskar
Starfshópur vill endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmáls 500 síðna skýrsla kynnt í gær
Ríkissaksóknari með málið í skoðun Líklegt að sakborningar hafi hvergi komið nærri málunum
Morgunblaðið/Rósa Braga
Niðurstöður Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra, Arndís Soffía Sigurðardóttir, formaður starfshópsins, ásamt
Jóni Friðriki Sigurðssyni, prófessor og yfirsálfræðingi, sem átti sæti í starfshópnum, á fundinum í ráðuneytinu í gær.