Morgunblaðið - 05.04.2013, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2013
551 1200 midasala@leikhusid.is leikhusid.is
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
SVIÐSLJÓS
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Mikið er af þorski á Íslandsmiðum,
samkvæmt niðurstöðum stofnmæl-
ingar botnfiska, svokallaðs vorralls.
Stofnvísitala þorsks mældist há og
eru vísitölur þessa árs og þess síðasta
þær hæstu frá 1985. Niðurstöðurnar
eru mjög í samræmi við fyrri áætl-
anir Hafrannsóknastofnunarinnar.
Framkvæmdastjóri Landssambands
íslenskra útvegsmanna vonast til að
þorskkvótinn verði aukinn í tæp 220
þúsund tonn, í samræmi við áætlanir
síðasta árs.
„Niðurstöðurnar varðandi þorsk
og ýsu eru í fullu samræmi við stofn-
mat okkar í fyrra. Fiskurinn er að
stækka og þorskurinn kominn í með-
alþyngd,“ segir Jóhann Sigurjónsson,
forstjóri Hafrannsóknastofnunar-
innar. Hann segir að vegna þess að
dregið hafi úr sókn í þorskstofninn
hafi einstaklingarnir náð að taka út
vöxt og þyngjast. Þá hefur fundist í
vorralli síðustu ára meira af loðnu í
þorskmögum enda loðna langmikil-
vægasta bráð þorsksins á þessum
árstíma. Loðna fannst í þorski allt í
kringum landið.
Í niðurstöðum Hafró kemur fram
að hækkun vísitölu þorsks undanfarin
ár megi einkum rekja til þess að sí-
fellt meira fáist af stórum þorski. Sú
þróun hafi haldið áfram nú í ár því
meira hafi fengist af þorski lengri en
90 sm en áður.
Ýsan veldur vonbrigðum
Fyrsta mat á 2012-árgangi þorsks
bendir til að hann sé undir langtíma-
meðaltali árganga frá 1955. Bent er á
það í skýrslu Hafró að hann komi í
kjölfar meðalstórra árganga frá 2008,
2009 og 2011 en árgangurinn frá 2010
er slakur. Jóhann segir að stofnmæl-
ing á eins árs þorski hafi reynst
býsna góð vísbending um styrk ár-
ganga. Hann bendir þó á að 2012-
árgangurinn sé í þokkalegu lagi þótt
hann nái ekki langtíma meðallagi.
„Það þarf að koma röð af með-
alsterkum eða sterkum árgöngum til
þess að við fáum virkilegan viðsnún-
ing í þróun stofnsins. Allt er þetta nú í
rétta átt,“ segir Jóhann.
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, segir niðurstöður
vorrallsins jákvæðar. Þær staðfesti til
dæmis styrk þorskstofnsins. Þá séu
stofnar gullkarfa, ufsa og fleiri teg-
unda að vaxa. Vonbrigðin eru þau að
ekki skuli meira mælast af ýsu. „Við
vorum að vonast til að ýsan næði sér á
skrið,“ segir Friðrik.
Stofnvísitala ýsu er svipuð og verið
hefur í vorralli frá 2010. Mikið fékkst
af ýsu stærri en 50 sm en lítið af
minni ýsu. Í skýrslu Hafró kemur
fram að lengdardreifing og aldurs-
greiningar bendi til að allir ýsu-
árgangar frá og með 2008 séu lélegir.
Hins vegar hafi meira fengist af 10
ára ýsu í þessu vorralli en áður. Jó-
hann segir að þessar niðurstöður séu
í samræmi við áætlanir stofnunar-
innar. Lítið sé af smærri ýsunni en
vegna minna veiðiálags séu eldri ár-
gangar að nýtast betur og fiskurinn
stór.
Ýsan veiddist á landgrunninu allt í
kringum land en meira fyrir norðan
land en sunnan. Þetta er staðfesting á
breytingu sem varð vart við í veruleg-
um mæli upp úr aldamótum.
Meðalþyngd 2-7 ára ýsu hefur farið
vaxandi og er nálægt meðaltali en
eldri ýsa er enn undir meðalþyngd.
Tillögur kynntar í júní
Of snemmt er að segja til um áhrif
af niðurstöðum vorrallsins á veiðiráð-
gjöf Hafrannsóknastofnunar. Þær
eru mikilvægur hluti árlegrar úttekt-
ar á ástandi nytjastofna við landið.
Mat á stærð helstu stofna og tillögur
Hafró um aflamark fyrir næsta fisk-
veiðiár verða kynntar í byrjun júní.
Mikið af þorski í sjónum
Vorrall Hafró bendir til þess að þorskurinn sé að þyngjast Ýsan veldur von-
brigðum Framkvæmdastjóri LÍÚ vonar að aflamark í þorski verði aukið
Formannskjör í Félagi íslenskra
hjúkrunarfræðinga hefur verið ógilt.
Kjörnefnd félagsins ákvað þetta í
gær og sagði jafnframt af sér störf-
um.
Ólafur G. Skúlason var kosinn for-
maður í rafrænni og skriflegri alls-
herjaratkvæðagreiðslu hjúkrunar-
fræðinga í síðasta mánuði. Sex buðu
sig fram og var kosningin svo jöfn að
aðeins munaði einu atkvæði á Ólafi
og Vigdísi Hallgrímsdóttur. Þegar
úrslit lágu fyrir komu upp efasemdir
um framkvæmd hins skriflega hluta
kosningarinnar og var fjallað um
málið í stjórn félagsins. Í kjölfarið
kærði Vigdís kosninguna.
Í niðurstöðum kjörnefndar kemur
fram að ekki sé hægt að útiloka að
talin hafi verið með atkvæði sem
skilað var skriflega en greidd eftir að
skriflegri atkvæðagreiðslu lauk.
Jafnframt sé ekki útilokað að um-
rædd atkvæði kunni að hafa haft
áhrif á úrslit kosningarinnar.
Kjósa þarf að nýju
Elsa B. Friðfinnsdóttir formaður
segir að lög félagsins séu fábrotin og
litlar leiðbeiningar um framkvæmd
slíkra hluta. Það bjóði upp á mistök
eins og þarna urðu.
Áformað var að nýr formaður tæki
við embætti á aðalfundi 3. maí næst-
komandi. Skipa þarf nýja kjörnefnd
og kjósa að nýju. Elsa B. Friðfinns-
dóttir formaður segir að stjórnin sé
að fjalla um næstu skref. M.a. liggi
ekki fyrir hvort fresta þurfi aðal-
fundi. helgi@mbl.is
Formannskjör hjúkrunar-
fræðinga úrskurðað ógilt
Kjörnefndin
segir af sér störf-
um í kjölfarið
Morgunblaðið/Golli
Á vaktinni Hjúkrunarfræðingar
þurfa að kjósa að nýju.
Vorrallið fór fram dagana 26. febrúar til 17. mars. Fimm skip tóku þátt,
þrír togarar og rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson.
Togað var með botnvörpu á tæplega 600 stöðvum allt í kringum landið.
Helstu markmið vorrallsins eru að fylgjast með breytingum á stærð,
útbreiðslu og líffræðilegu ástandi botnlægra fiskistofna auk breytinga á
hitastigi sjávar.
Togað á 600 stöðvum
FIMM SKIP TÓKU ÞÁTT
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Löndun Hrund SH og Brimsvala SH lönduðu í Reykjavíkurhöfn í gær. Vel veiddist í gær og fengust samtals 2,9 tonn
af þorski og ufsa á handfæri. Hrund og Brimsvala voru við veiðar á svonefndu Vestrahrauni á Faxaflóanum.
Stofnvísitala þorsks
Heimild: Hafró
Ví
si
ta
la
(þ
ús
un
d
to
nn
) 600
400
200
0
Vorrall 1985-2013
Haustrall 1996-2012
(Skyggða svæðið og lóðréttu línurnar
sýna staðalfrávik í mati á vísitölum.)
1985 1990 1995 2000 2005 2010
Friðrik J.
Arngrímsson
Jóhann
Sigurjónsson
Bensínverð hjá flestum olíufélag-
anna lækkaði í gær. Um kvöldmat-
arleytið í gærkvöldi var Orkan með
lægsta verðið. Skv. vefsíðunni
gsmbensin.is kostaði bensínlítrinn
þar 252,50 kr. Verð hinna olíufélag-
anna var frá 252,60–252.80 fyrir ut-
an Shell en þar kostaði bensínlítr-
inn á útsölustöðum á höfuðborgar-
svæðinu 254,90 kr.
Sömuleiðis var Orkan með
lægsta verðið á dísilolíu eða 248,30
kr á hvern lítra. Verð hinna olíufé-
laganna var 248,40–248,60 kr fyrir
dísilolíu. Atlantsolía reið á vaðið í
gærmorgun og lækkaði verð á
bensíni um 2 kr eða í 252,60 kr.
Einnig lækkaði dísilolía um 1 kr.
Hugi Hreiðarsson, markaðsstjóri
Atlantsolíu, segir skýringuna vera
styrkingu krónunnar og lægra inn-
kaupsverð.
„Við vorum með lægsta verðið í
byrjun dags. Við höfum lækkað
bensínið um 14 krónur og dísilolíu
um 20 krónur síðan um miðjan
febrúar,“ segir hann.
Morgunblaðið/Kristinn
Bensín Miklar sveiflur á eldsneytis-
verði eru þekktar á Íslandi.
Bensínið
lækkar
Lækkuðu um 2 kr.
Möguleg sala
bankanna verður
rædd á fundi
efnahags- og við-
skiptanefndar í
dag. Boðað er til
fundarins að ósk
þeirra Guðlaugs
Þórs Þórð-
arsonar og Pét-
urs H. Blöndal,
fulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins í nefndinni. Fyrir
fundinn munu koma fulltrúar
Landssamtaka lífeyrissjóða, og
fulltrúar slitastjórna Landsbank-
ans, Kaupþings og Glitnis. Einnig
mun Katrín Júlíusdóttir fjármála-
og efnahagsráðherra verða meðal
gesta ásamt Má Guðmundssyni
seðlabankastjóra.
Ræða sölu
bankanna
Guðlaugur Þór
Þórðarson