Morgunblaðið - 05.04.2013, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2013
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
var snemma í gærmorgun tilkynnt
um mann að stela kjöti í vestur-
borginni og flytja það í bifreið.
Þegar lögreglumenn komu á
staðinn kom í ljós að maðurinn
hafði stolið 60 kg af kjöti sem var á
lítilli vörutrillu og átti að fara í
mötuneyti. Hann hafði dregið vöru-
trilluna að bifreið sem hann átti
ekki og var inni í henni að leita að
verðmætum þegar lögregla kom að
honum. Maðurinn var undir mikl-
um áhrifum fíkniefna og var hann
handtekinn og færður á lögreglu-
stöð. Þar var hann vistaður þangað
til hægt var að taka af honum
skýrslu.
Undir áhrifum og
stal 60 kg af kjöti
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Harður þriggja
bíla árekstur
varð í austur-
borg Reykjavík-
ur á níunda tím-
anum í gær-
morgun.
Ökumaðurinn
sem var valdur
að árekstrinum
reyndist vera talsvert ölvaður.
Hann var handtekinn og færður á
lögreglustöð þar sem tekið var
blóðsýni úr honum.
Að því loknu var hann vistaður í
fangageymslu þar til hægt var að
taka af honum skýrslu.
Ölvaður olli þriggja
bíla árekstri
Guillaume Xavier-Bender flytur
erindi föstudaginn 5. apríl kl. 12-13
í fundarsal Norræna hússins.
Erindi hans nefnist: Verndar-
stefna eða frjálshyggja? Evrópski
markaðurinn og staða Evrópusam-
bandsins í alþjóðastjórnmálum. Í
erindinu fjallar hann m.a. um lík-
legusta leið Evrópusambandsins til
þess að hafa áhrif í utanríkis-
málum.
Guillaume Xavier-Bender starfar
hjá German Marshall Fund í Bruss-
el og sér um viðskipti, þróunarsam-
vinnu og efnahagsmál. Hann starf-
aði áður á skrifstofu forsætis-
ráðherra Frakklands í París.
Ræðir stöðu ESB í
alþjóðastjórnmálum
Á sýningunni HönnunarHlemmi,
sem umhverfis- og skipulagssvið
Reykjavíkurborgar stóð fyrir á
Hlemmi í tengslum við Hönnunar-
mars, var meðal annars hægt að
taka þátt í samráði um framtíð
Hlemms.
Miðstöð Strætó flyst á næstu ár-
um frá Hlemmi yfir á umferðar-
miðstöðina við Hringbraut (BSÍ) og
því var spurningin um framtíð
Hlemms borin upp. Gestir gátu
skrifað á hugmyndavegg og einnig
merkt við þá starfsemi sem þeir
vildu sjá í framtíðinni á Hlemmi.
Þar sýndi sig mikill áhugi fyrir því
að Hlemmur yrði kaffihús, torg eða
markaður. „Það er spurning hvort
hægt verði að slá þeim möguleikum
saman í skemmtilegan Hlemm í
framtíðinni,“ segir Hildur Gunn-
laugsdóttir, arkitekt og einn skipu-
leggjanda HönnunarHlemms, í til-
kynningu frá borginni. „Ýmsar
aðrar skemmtilegar hugmyndir litu
einnig dagsins ljós en þær voru
meðal annars að setja fiskabúr í
glerrými við innganga, halda hjóla-
skautadiskó á Hlemmi auk þess sem
bent var á skort á klósettum.“
Alls komu 126 hugmyndir frá
gestum á vegginn. „Við tökum
þetta samráðsferli alvarlega og vilj-
um vinna áfram með þessar hug-
myndir,“ segir Valný Aðalsteins-
dóttir verkefnisstjóri og verða
tillögur lagðar fyrir umhverfis- og
skipulagsráð Reykjavíkurborgar.
Hlemmur Hugmyndasamkeppni á Hönnunarmars leiddi af sér fjölda hug-
mynda um hvernig breyta mætti og bæta Hlemm og svæðið í kring.
Samkeppni um
framtíð Hlemms
126 hugmyndir á Hönnunarmars
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Erla Bolladóttir, einn af sakborning-
unum í Guðmundar- og Geirfinns-
málinu, hefur lagt fram kæru á
hendur rannsóknarlögreglumanni
sem hún segir hafa nauðgað sér þeg-
ar hún var í gæsluvarðhaldi í Síðu-
múlafangelsi veturinn 1975-’76.
„Ég lagði kæruna fram í gær hjá
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
og hún verður núna send ríkissak-
sóknara,“ sagði Erla í samtali við
mbl.is í gær.
Erla segist hafa orðið fyrir kyn-
ferðislegu ofbeldi á meðan hún var í
gæsluvarðhaldi vegna málsins í
Síðumúlafangelsinu 1975-’76. Um
hafi verið að ræða tvo menn, annar
þeirra káfaði á Erlu að næturlagi,
hinn nauðgaði henni.
Í samtölum við starfshópinn sem
vann nýútkomna skýrslu um Guð-
mundar- og Geirfinnsmálið nafn-
greindi hún báða mennina og hyggst
nú kæra þann síðarnefnda. Arndís
Soffía Sigurðardóttir, formaður
starfshópsins, hefur staðfest við
mbl.is að um sé að ræða lögreglu-
mann.
Erla segir það vera samfélagslega
ábyrgð sína að kæra. Meintur kyn-
ferðisglæpur sé táknrænn fyrir þá
meðferð sem hún og aðrir sakborn-
ingar í málinu hlutu á sínum tíma.
„Þessi verknaður er táknrænn
fyrir eðli þessarar rannsóknar í heild
sinni. Í rannsókninni vorum við
neydd til þess að gera hluti sem
rannsóknaraðilar vildu að við gerð-
um. Það var hvergi staldrað við til
þess að taka mið af mannúð, engum
var umhugað um okkar velferð,
hugsanlegt sakleysi eða friðhelgi í
neinum skilningi. Ég treysti mér til
að fullyrða og get rökstutt það að
þessi rannsókn hafi verið í eðli sínu
ákveðið afbrigði nauðgunar,“ sagði
Erla við mbl.is fyrir nokkrum dög-
um.
Erla leggur fram kæru
Kærir lögreglumann fyrir nauðgun Á að hafa gerst í
gæsluvarðhaldi í Síðumúlafangelsi veturinn 1975-1976
Kærir Erla Bolladóttir var í varð-
haldi í Síðumúla 1975-1976.
Morgunblaðið/Rósa Braga
Hamraborg 9 | sími 564 1451 | www.modurast.is
opið 10-18 virka daga og 12-16 laugardaga
Úrval burðarpoka og ferðarúma
ÞAR SEM BARN ER