Morgunblaðið - 05.04.2013, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.04.2013, Blaðsíða 12
Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2013 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Bændur sem tóku lán í erlendri mynt fyrir hrun standa betur í dag en þeir sem tóku verðtryggð lán í íslenskum krónum á sama tíma, að mati Ólafs Þórs Þórarinssonar ráðgjafa hjá Bún- aðarsambandi Suðurlands. Hann hef- ur aðstoðað marga bændur við fram- talsgerð. Þegar erlendu lánin hækkuðu upp úr öllu valdi eftir hrunið gátu bændur líkt og aðrir sem eru í rekstri gjald- fært hækkunina, eða gengismuninn. Hjá þeim betur stæðu komu gjöldin á móti hagnaði og hjá þeim verr stæðu voru búin rekin með tapi. Þessir bændur borguðu því minni eða engan tekjuskatt á þessum tíma. Þegar erlendu lánin voru síðan leið- rétt var leiðréttingin færð sem tekjur. Það veldur því að nú verða bændur sem eru réttum megin við strikið í rekstri sínum að borga tekjuskatt af leiðréttingunni. Staða búanna ákaflega misjöfn „Þeim sem hafa rekið bú sín vel og gjaldfærðu hækkun lánanna bregður svolítið núna að fá leiðréttinguna sem tekjur og þurfa að borga skatt,“ sagði Ólafur Þór. Þeir bændur sem reka búin á eigin kennitölu borga skatt sem einstaklingar. Önnur bú eru rek- in sem hlutafélög eða sameignarfélög og eru skattlögð samkvæmt því. Dæmi eru um að bændur hafi ekki gjaldfært hækkunina eða gengis- muninn á lánum sínum þegar þau stökkbreyttust. Nú þurfa þeir að borga tekjuskatt af leiðréttingunni án þess að hafa nýtt sér gjaldfærsluna til skattalækkunar á árum áður. Þeir eiga þó rétt á leiðréttingu aftur í tím- ann hafi þeir ekki gjaldfært hækk- unina. Ólafur sagði að staða búanna sé ákaflega misjöfn. „Flestir sem tóku erlend lán eru búnir að fá leiðrétt- ingu. Ég held að staðan sé mun verri hjá þeim sem eru með íslensku verð- tryggðu lánin. Þau hafa ekki verið leiðrétt en hafa hækkað mikið. Manni finnst svolítið súrt að horfa upp á það að staðan sé verri hjá þeim sem ekki tóku áhættuna af erlendu lánunum,“ sagði Ólafur Þór. Hann sagði að fjárhagsstaða bænda væri ákaflega misjöfn. Það hefðu fyrst og fremst verið bændur í blönduðum búskap og kúabændur sem stóðu í fjárfestingum. „Þeir sem voru að framkvæma og byggja upp standa margir illa,“ sagði Ólafur Þór. Það var betra að taka erlent lán  Bændum bregður við að borga skatt af lánaleiðréttingu Morgunblaðið/Árni Sæberg Búskaparraunir Bændur sem steyptu sér í skuldir til að byggja upp og stækka bú sín fyrir hrun eru margir illa staddir í dag. Þeir sem tóku lán í erlendri mynt hafa fengið leiðréttingu en ekki þeir sem tóku verðtryggð lán. „Þetta er auðvitað bölvað klúður, ég get bara sjálfum mér um kennt,“ segir Guðmundur Franklín Jónsson, formaður Hægri-grænna, sem er ekki á kjörskrá og þar af leiðandi ekki kjörgengur. Guðmundur hefur meira og minna verið búsettur er- lendis síðan árið 1986 og var því ekki lengur með lögheimili hér á landi þegar hann flutti aftur til Íslands. Hélt sig vera á kjörskrá Frestur til að færa lögheimili til landsins og komast þannig á kjör- skrá áður en kosið verður til Alþing- is hinn 27. apríl næstkomandi rann út hinn 23. mars síðastliðinn. „Ég skráði mig inn á kjörskrá fyrir stjórnlagaráðskosningarnar,“ sagði Guðmundur Franklín í samtali í gær. „Samkvæmt reglunum á það að gilda í fjögur ár.“ Guðmundur segist hafa staðið í þeirri meiningu að hann væri nú þegar á kjörskrá. Vegabréf Guð- mundar rann einnig út um svipað leyti. „Ég gat því ekki fengið lög- heimili,“ segir Guðmundur. „Ég sótti um nýtt vegabréf og fór loks í morgun að breyta lögheimilinu,“ tekur Guðmundur fram. Hægri-grænir eru eitt hinna fjöl- mörgu nýju framboða sem standa kjósendum til boða í komandi al- þingiskosningum. Flokkurinn er stofnaður árið 2010 og er Guð- mundur Franklín einn stofnfélaga. Hægri-grænir kynna sig sem græn- an borgara- og millistéttarflokk. Lögmaður kannar stöðuna og möguleika á kæru „Þjóðskrá er að kanna stöðuna og lögmaðurinn minn er að kanna möguleikann á að kæra þetta inn á kjörskrá. Ef þetta gengur ekki, þá verðum við bara að finna annan mann í oddvitann,“ segir Guð- mundur, sem er sem stendur efsti maður á lista Hægri-grænna í Suð- vesturkjördæmi. Formaður Hægri- grænna ekki kjörgengur Morgunblaðið/Heiddi Kjörskrá Framboð Guðmundar Franklíns til Alþingis er í uppnámi.  Ekki með lögheimili hér á landi en ætlar að kæra Ólafur Þór Þórarinsson, ráðgjafi hjá Búnaðarsambandi Suður- lands, þekkir dæmi þess að bændur hafi brugðið búi vegna skulda og einhverjir séu að hugsa sig um hvort þeir geti haldið áfram búrekstri vegna skulda sinna. Ólafur starfar einnig við ráð- gjöf við bókaldsforritið Búbót hjá Ráðgjafarmiðstöð landbún- aðarins ehf. (RML). Ráðgjafar- miðstöðin varð til þegar ráð- gjafarþjónusta búnaðarsambanda og Bænda- samtaka Íslands var sameinuð í eitt félag. Það tók til starfa um síðustu áramót. Félagið er í eigu Bændasamtaka Íslands en með sjálfstæða stjórn og fjárhag. Framkvæmdastjóri er Karvel Lindberg Karvelsson. Ráðgjöf til bænda efld BÆNDUR MISJAFNLEGA STADDIR EFTIR HRUN Voltaren 11,6 mg/g, hlaup. Inniheldur 11,6 mg af díklófenaktvíetýlamíni. Ábendingar: Staðbundnir bólgukvillar. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir og börn 14 ára og eldri: 2-4 g af hlaupi borið á aumt svæði 3-4 sinnum á sólarhring. Mælt er með handþvotti eftir notkun, nema verið sé að meðhöndla hendur. Ef meðhöndla á bráð, minniháttar meiðsli í stoðkerfi skal ekki nota Voltaren lengur en 7 daga án samráðs við lækni. Hafið samband við lækninn ef einkenni eru viðvarandi eða versna eftir meðferð í 7 sólarhringa. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna, asetýlsalisýlsýru og öðrum bólgueyðandi gigtarlyfjum (NSAID). Sjúklingar sem hafa fengið astma, ofsakláða eða bráða nefslímubólgu af völdum asetýlsalisýlsýru eða annarra bólgueyðandi gigtarlyfja (NSAID) eiga ekki að nota lyfið. Síðustu 3 mánuðir meðgöngu. Má ekki nota handa börnum og unglingum 14 ára og yngri. Sérstök varnaðarorð: Má eingöngu bera á heila og heilbrigða húð og alls ekki á slímhúðir eða augu. Getur valdið húðertingu. Varast skal mikið sólarljós, notkun samhliða bólgueyðandi lyfjum eða að hylja notkunarsvæðið með loftþéttum umbúðum. Gæta skal sérstakrar varúðar hjá öldruðum eða astma-/ofnæmis-sjúklingum (hefur valdið berkjukrampa). Hætta á meðferð ef útbrot koma fram eftir notkun. Við notkun á stór húðsvæði eykst hættan á almennum aukaverkunum, t.d. á nýru. Við brjóstagjöf eða meðgöngu má eingöngu nota lyfið í samráði við lækni. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfis hafi: Novartis Consumer Health S.A. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ Fæst án lyfseðils Verkjastillandi bólgueyðandi ÁNÆGJA EÐA END URGREIÐSLA! Gildir frá 1. apríl - 30. júní 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.