Morgunblaðið - 05.04.2013, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.04.2013, Blaðsíða 16
SVIÐSLJÓS Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Ég hef metnað til að klára þetta en verð að taka áhættu og leggja allt undir. Það er oft skemmtileg- ast,“ segir Guðmundur Friðrik Björgvinsson sem er efstur í ein- staklingskeppni meistaradeildar- innar í hestaíþróttum fyrir loka- mótið í kvöld. Í næstu sætum eru góðir knapar sem einnig stefna ákveðið að sigri, Viðar Ingólfsson er aðeins 4,5 stigum á eftir Guð- mundi og Sigurður V. Matthías- son er einnig skammt undan. Á lokamótinu er keppt í slak- taumatölti og fljúgandi skeiði í gegn um Ölfushöllina á Ingólfs- hvoli. Þótt þrír efstu menn hafi bestu stöðuna eiga sex efstu knaparnir raunhæfa möguleika á sigri þar sem knapi getur bætt við sig 24 stigum með því að vinna báðar greinarnar og þeir eru allir reyndir knapar og með góðan hestakost. Þrír til viðbótar eiga fræðilegan möguleika á sigri en þá þarf lukkan aldeilis að vera með þeim. Artemisia Bertus, sig- urvegarinn frá síðasta ári, er ekki meðal efstu keppenda. Spenna til loka Guðmundur og Sigurður Vignir hafa ekki sigrað í einstaklings- keppni meistaradeildarinnar og raunar var Guðmundur að vinna sitt fyrsta mót í vetur. Sigurður hefur verið í baráttunni en aldrei náð að landa þeim stóra. Viðar er hins vegar tvöfaldur meistari. „Fyrst maður er í þessari stöðu, verður að stefna að sigri. Ég er í ágætri aðstöðu til að berjast um verðlaunin,“ segir Viðar. Hann bendir á að allt geti gerst á loka- kvöldinu og rifjar í því sambandi upp að meira hafi verið á bratt- ann að sækja þegar hann sigraði 2007. Þá hafi hann verið í 4. sæti fyrir síðasta mótið en náð að sigra í annarri greininni og þriðja sæti í hinni og það hafi dugað til sigurs. Viðar kemur með Björk frá Enni í slaktaumatöltið og á ráslistum er hann skráður með Segul frá Mið- Fossum í skeiðið. Sigurður Vignir óttast ekkert. „Þetta verður spennandi fram á síðasta sprett. Ég heyri að allir eru með alla anga úti til að reyna að ná lokasigri,“ segir Sigurður. Hann reiknar með að mæta með Baldvin frá Stangarholti í slak- taumatöltið og Óm frá Hemlu í skeiðið. Guðmundur segist vera að kenna Hrímni frá Ósi slaktaumatölt og það hafi gengið ágætlega. Þá mæti hann með Gjálp frá Ytra-Dalsgerði í skeiðið. Viðurkennir Guðmundur að brugðið geti til beggja vona með bæði hrossin. Þannig gæti Gjálp sigrað á góðum degi en að öðrum kosti lent í einhverju af neðstu sætunum. Guðmundur er liðsstjóri Top Reiter / Ármóta sem sigraði í liðakeppninni á síðasta vetri. Komst liðið fram fyrir Hrímni á síðustu stundu. Liðið er nú með álitlega forystu fyrir loka- mótið en lið Lýsis sem er með 33 stigum minna á einnig raunhæfa möguleika á sigri. Lið Hrímnis / Export hesta er í þriðja sæti og telur Viðar Ingólfsson liðsstjóri hæpið að hægt sé að ná efsta sæt- inu úr þessu. Tvö efstu liðin séu líklegri til að berjast um sigurinn. Knaparnir æfðu í Ölfushöllinni í gær og fyrradag. „Nei, þetta fer allt fram í mesta bróðerni,“ segir Guðmundur Björgvinsson, þegar hann er spurður um ríg á milli knapa og liða fyrir lokamótið. „Við hjálpum hver öðrum. Ég segi bara: Megi besti knapinn og besti hest- urinn vinna.“ „Verð að leggja allt undir“  Sex knapar eiga möguleika á sigri í meistaradeildinni í hestaíþróttum  Lokamótið fer fram í kvöld  Úrslit gætu ráðist á síðasta spretti Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Líklegir Þrír efstu knaparnir í einstaklingskeppninni, Sigurður Vignir Matthíasson, Guðmundur Björgvinsson og Viðar Ingólfsson, voru saman á palli í fimmgangskeppni meistaradeildar, en í annarri röð en þeir eru nú. Þeir eru allir líklegir til afreka í kvöld ásamt þremur ungum en reynslumiklum knöpum sem koma þar á eftir. Staðan í meistaradeildinni í hestaíþróttum Einstaklingskeppni (10efstu knapar) Sæti Knapi Stig 1 Guðmundur Björgvinsson 39,5 2 Viðar Ingólfsson 35 3 Sigurður V. Matthíasson 32 4 Árni Björn Pálsson 28,5 5 Þorvaldur Árni Þorvaldsson 27 6 Eyjólfur Þorsteinsson 26 7 Sigurður Sigurðarson 21 8 Ævar Örn Guðjónsson 20 9 Sigurbjörn Bárðarson 16 10 Jakob Svavar Sigurðsson 15,5 Liðakeppni Sæti Lið Stig 1 Top Reiter / Ármót 295 2 Lýsi 262 3 Hrímnir / Export hestar 224 4 Ganghestar / Málning 221 5 Spónn.is/Netvistun 219,5 6 Hestvit / Árbakki 219 7 Auðsholtshjáleiga 202,5 8 Gangmyllan 157 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2013 Á lokamóti Meistaradeildar í hestaíþróttum sem fram fer í Ölfushöllinni á Ingólfshvoli í kvöld og hefst klukkan 18.30 kjósa áhorfendur fagmannleg- asta knapann og skemmtileg- asta liðið. Úrslit í stigakeppni deildarinnar ráðast í þeim tveimur greinum sem eru á dag- skrá í kvöld, slaktaumatölti og fljúgandi skeiði. Meistaradeild í hestaíþrótt- um er mótaröð. Eru þetta vin- sælustu hestamót vetrarins, Ölfushöllin er troðfull flest kvöldin. Keppnisgreinarnar eru átta og er keppt til verðlauna í þeim. Átta lið með fjórum knöp- um hvert taka þátt í keppninni en aðeins þrír úr hverju liði fá að taka þátt hverju sinni. Efsta liðið í stigakeppninni fær verð- laun. Eftirsóttustu verðlaunin eru þó í stigakeppni knapa. Áhorfendur taka þátt VINSÆL HESTAMÓT Eingöngu selt á hársnyrtistofum Lögreglan í Vestmannaeyjum hef- ur upplýst innbrot á veitingastaðn- um Cornero við Skólaveg í Eyjum en þaðan var stolið töluverðu magni af áfengi. Tilkynnt var um innbrotið að morgni miðvikudags. Þetta var í annað sinn á nokkrum dögum sem brotist hefur verið inn á þennan stað. Síðdegis á miðvikudag handtók lögreglan þrjá sem grun- aðir voru um innbrotið og við leit í húsnæði hjá einum þeirra fannst mest af því áfengi sem stolið var. Tveir af þessum þremur viður- kenndu að hafa brotist inn á staðinn um nóttina og tekið áfengið en þeir hafa báðir komið við sögu lögregl- unnar í Vestmannaeyjum. Annar þeirra sem viðurkenndi innbrotið er á 17. ári en hinn verður tvítugur á árinu. Þeir neituðu báðir að eiga þátt í fyrra innbrotinu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Eyjar Lögreglan hefur haft í nógu að snú- ast í vikunni við að upplýsa innbrot. Þrír handteknir fyrir að hafa stolið miklu af áfengi í Eyjum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.